Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1988, Page 8

Æskan - 01.10.1988, Page 8
Söngferillinn hófst í Kvennaskólanum Stefán Hilmarsson í opnuviðtali ,Kæra Æska. Viltu vera svo góð að taka viðtal við Stefán Hilmarsson? Hann er eftirlætissöngvari minn og margra sem ég þekki. Mig langar m.a. til að vita hvað hann er gamall. Er hann trúlof- aður eða giftur? Er hann hættur að syngja með Sverri Stormskeri? Getið þið látið veggmynd af honum fylgja Æskunni? Ein áhugasöm.“ Þetta hréf er dæmigertfyrir þau sem okkur hafa borist með óskum um viðtal við þennan vinsæla söngvara. Nú geta aðáendur Stefáns sannarlega glaðst því að hann hefur verið valinn í opnu- viðtal að þessu sinni. „Ekkert mál! Ég kem til þín á skrif- stofuna á eftir,“ svarar söngvarinn þegar blaðamaður fer þess á leit við hann að fá spjall sem fyrst. Klukkustund seinna stendur hann ljóslifandi á teppinu fyrir framan hann. Penninn er dreginn úr slíðrum og tekinn fram stafli af blöðum til að skrifa á. Nú skulu garnirnar raktar úr söngvaranum. Prjálslegur og mannblendinn Stefán er nýjasta stirnið á himni ís- lenskrar dægurlagatónlistar. Pað eru ekki nema þrjú ár síðan söngferill hans hófst en samt er hann orðinn vel þekkt- ur. Hann var fulltrúi íslands í Söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fór í Dyflinni á írlandi í vor og stóð sig með mikilli prýði. Skær og hljom- mikil rödd hans náði til milljóna manna 1 Evrópu. Ef einhverjir íslendingar vissu ekki fyrir þá keppni hver hann var vita þeir það núna. Það var ekki úr vegi að hefja viðtalið a söngvakeppninni í Dyflinni. Hvað hefur Stefán að segja um þá reynslu sína nu nokkrum mánuðum seinna? „Hún var í einu orði sagt mj°S skemmtileg,“ svarar hann um hæl- „Þessar þrjár mínútur, sem flutningur lagsins tók, voru ekki eins lengi að h'ða og ég átti von á. Ég hugsaði um það extt að standa mig vel og tók varla eftir sjon- varpsvélunum. Fyrir keppnina setti da- lítinn ugg að mér vegna þess að ég fékk flensu og óttaðist að raddböndin brygð- ust mér á úrslitastundu. En ég var orð- inn skárri á keppnisdaginn og róaðist þegar við höfðum æft lagið nokkrum sinnum. Þá fyrst fann ég að mér myndi takast þetta. Hvað aðra liði söngvakeppninnar varðar þá var ég óánægður bæði með hljómburðinn og hljóðblöndunina. Við íslendingar eigum að vera með okkar eigin hljóðmann í þessari keppni. írsku tæknimennirnir voru á aldur við afa minn og fíngur þeirra stirðir á tökkunum þegar fyrstu lögin voru flutt (íslendingar voru fyrstir á svið eins og flestir muna)- Tæknibúnaðurinn var mjög fullkominn hvað sjónvarpsmyndgæði snerti, - sa besti sem völ var á frá Sony-fyrirtækinu, en hljóðkerfið var því miður ekki eins gott. Hljómgæðin í aðalkeppninni skipta miklu máli því að þá heyra margir dom- nefndarmenn íslenska lagið í fyrsta sinn- Nefndirnar eru valdar með tveggja eða þriggja daga fyrirvara og þessi lög erU -r r'* > \ Sfc. 1 „Ég bauð henni í bíó og hún þáði það. “ Nú eru þau hjón, Anna Björk og Stefán. - =

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.