Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1988, Side 10

Æskan - 01.10.1988, Side 10
sló á hópinn. Maður fann að það var ekki endilega verið að vekja athygli á því að gott lag væri í vændum heldur miklu frekar hvaða þjóð átti í hlut. Þess vegna segi ég að það má mikið vera ef við kom- umst í eitthvert af tíu efstu sætunum á næstu árum.“ - Hvernig var andrúmsloftið meðal keppenda? „Ég hafði reyndar ekki mikið af öðr- um keppendum en Finnum að segja. Ég tók þó eftir að margir keppenda voru að pukra saman, hver hópur í sínu horni. Mér virtust ýmsir þekktir tónlistarmenn vera dálítið merkilegir með sig. Þeir voru sjálfum sér nógir og töldu sig ekkert hafa að sækja til annarra.“ - Gætirðu hugsað þér að taka aftur þátt í þessari söngvakeppni? „Já, vissulega. Ég er orðinn reynsl- unni ríkari og veit nákvæmlega að hverju ég geng næst.“ - Hvernig líkar þér að vera orðinn víðkunnur? „Mér líkar það ágætlega. Ég gæti mín á því að einangrast ekki eins og alltaf er hætta á þegar menn eru orðnir þekktir. Ég er frjálslegur að eðlisfari og mann- blendinn. Frægðinni fylgja auðvitað kostir og gallar en ef maður tekur létt á henni eru kostirnir fleiri. Maður verður að læra að lifa með frægðinni, sætta sig við hana.“ - Gefa krakkar sig oft á tal við þig? „Já, það er dálítið um það. í sjálfu sér er það ánægjulegt því að þá fínn ég að ég höfða til þeirra.“ Talið berst næst að Sverri Stormskeri. Er hann eins sérkennilegur og hann virð- ist vera? Hvað segir Stefán, sem kynnst hefur honum mjög vel, um það? „Sverrir fer ótroðnar slóðir. Það hefur ekki farið framhjá neinum,“ svarar Stef- án og glottir. „Það er ósköp svipað að kynnast honum og sjá hann í fjölmiðl- um. Hann er ákaflega sérlundaður og sérkennilegur maður, hefur óvenjulegar skoðanir á mönnum og málefnum. Ég hef átt gott með að umgangast hann því að ég tek hann eins og hann er. Ég veit hins vegar að hann fer í taugarnar á mörgum. Mín skoðun á Sverri er sú að hann sé tónsnillingur þó að sérkennileg- ur sé! Hann á ótal lög í handraðanum og ég er viss um að eiga eftir að njóta vin- sælda. Hann er ekkert að flýta sér að gefa þau út. Ég hef sagt oftar en einu sinni við hann að hann ætti að fara utan og reyna að koma þessum lögum á fram- færi við heimsfræga tónlistarmenn. Það er nú ef til vill ekki auðvelt en það kæmi mér samt ekki á óvart að Sverrir yrði einhvern tíma heimsfrægur lagasmiður!“ - Er samstarfi ykkar lokið? „Já, í bili að minnsta kosti. Það var ágætt á meðan það var. Hvorugur okkar er ómissandi hinum. En hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér?“ HandKnattleiKsmaðurinn Stefán Stefán Hilmarson er 22ja ára, fæddur 26. júní 1966. Hann sleit barnsskónum í Reykjavík nema hvað hann átti heima á Reykjanesi við Djúp í tvö ár. Móðir hans var kennari þar við héraðsskólann. Stef- án á fimm hálfsystkini og er elstur. Þeg- ar hann var átta ára stóð hann frammi fram að hann hafi „smíðað“ þá Geir Sveinsson, Júlíus Jónasson og Jakob Sig- urðsson. Ég er enn með hugann mikið við handknattleikinn, styð Val heilshug- ar og fer á flesta landsleiki.“ - Hvaða handknattleiksmönnum hef- urðu mest dálæti á? „Það er erfitt að gera upp á mill1 þeirra. Geir Sveinsson er mjög góður og harður varnar- og línumaður. Þeir Bjarki og Júlíus eiga líka bjarta framtíð fynr sér. Svo get ég nefnt Sigga Sveins. Hann er mjög skemmtilegur leikmaður.“ Eftir að hafa lokið grunnskólaprófi fór Stefán í Kvennaskólann og lauk stúd- entsprófi þaðan á þremur og hálfu ari- Ástæðan fyrir því að hann fór í „kvenna - skóla var sú að honum leist vel a íþróttabrautina sem þar var í boði. „Sumir héldu að ég væri í húsmæðraskóia. “ fyrir því að flytjast með mömmu sinni og stjúpa til Danmerkur eða verða eftir hjá ömmu sinni í Hlíðunum. Hann valdi ömmu sína. Hann gat ekki hugsað sér að fara brott af „klakanum“ eins og hann orðar það. Stefán gekk í Hlíðaskóla og lauk þar skyldunámi. Hann kveðst hafa verið prúður nemandi og átt marga góða fé- laga. Hann var mikill íþróttagarpur, m.a. varð hann íslandsmeistari í knatt- spyrnu með 5. flokki Vals og þrefaldur íslandsmeistari í handknattleik með sama félagi. Þegar hann hafði leikið eitt ár með 2. flokki handknattleiksliðsins varð hann að leggja skóna á hilluna vegna þess að hann var farinn að þjást af ofnæmi og læknirinn sagði að ekki væri um neitt annað að ræða en hætta bolta- leikjum. „Það var synd að svona skyldi fara,“ segir Stefán. „Ég var í mikilli framför um þetta leyti og hafði fullan hug á því að reyna að komast í meistaraflokk þegar fram liðu stundir. Við höfðum frábæran sovéskan þjálfara og ég vil halda því „Við strákarnir vorum 16-17 en stelp' urnar 150,“ segir Stefán um Kvennaskól- ann. „Margir kunningjar og ætting)ar urðu hvumsa þegar ég sagði þeim frá þvl í hvaða skóla ég væri og vissu hreinleg3 ekki hvaða nám færi þar fram. Sumir héldu að ég væri í nokkurs- konar hus- mæðraskóla! Ég kunni alla tíð vel vl(>' mig í Kvennaskólanum og lét fordoma alls ekki aftra mér frá því að stunda þar nám.“ Söngferill Stefáns hófst á Kvenna- skólaárunum. Þá var hann 19 ára og 1 stjórn nemendafélagsins. Framhalds- skólarnir í Reykjavík ætluðu að halda skemmtun í Háskólabíói og þar áttu skólarnir að koma hver með sitt skemmtiatriði. Þegar þarna var kom1 sögu var Stefán byrjaður að æfa með bíl- skúrshljómsveitinni Bjargvætturin Lauf- ey. Björgvin Ploder, skólafélagi Stefáns og síðar trommuleikari í SniglabandinUj kom þeirri hljómsveit saman. í henm voru tveir trommuleikarar, - en slíkt er mjög óvenjulegt. „Nú, en Kvennaskólann vantaði

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.