Æskan - 01.10.1988, Síða 14
f&tas
.Q ’t'Cs
w /v-» , _
r. *
-O
•=- + fl
S'-f5C. *r,
- rZ ~ <-
L - 4-
Meiriháttar stejnumót nejnist ný
unglingabók ejtir Eðvarð Ingóljsson,
höjund metsölubókanna Fimmtán
ára áJöstu, Sextán ára í sambúð, Ást-
arbréj tilAra og Pottþéttur vinur- svo
að nokkrar séu nejndar.
Lesendur Æskunnar ættu að kann-
ast við Jlestar söguhetjur í þessari
nýju bók. Framhaldssagan Stejnu-
mót sem birtist í 7. og 9. tölublaði í
Jyrra og 1. tbl. á þessu ári var um
sömu aðalpersónur.
íJáum orðum sagt Jjallar Meirihátt-
ar stejnumót um 15 ára strák,
Svenna, sem á heima á Akranesi.
Hann verður skotinn í tveim stelpum,
annarri á Akranesi og hinni í Reykja-
vík (Þið munið kannski ejtir Agnesi?).
Þegar hann kemst að því að þær haja
báðar mikinn áhuga á honum lendir
hann í verulegum vanda. Hann á aj-
ar erjitt með að gera upp á milli
þeirra en veit að ekki verður bæði
sleppt og haldið!
5. kajli bókarinnar gerist á loka-
skemmtun í skólanum. Hér á ejtir Jer
hluti kajlans.
Eftir að hafa gengið um dálitla stund og
rabbað við nokkra sem léku í leikritinu
hans fyrr um kvöldið rekst hann allt i einu
á Klöru, stelpu í 8. bekk, sem var með hon-
um í ritnefnd skólablaðsins í vetur.
Svenni hefur alltaf kunnað vel við hana.
Hún er mjög geðug og nokkuð sæt, kannski
engin draumadís en allt í lagi með hana.
Hún er lágvaxin með ljóst, stutt hár og stór,
blá sakleysisleg augu.
- Það má kannski bjóða rithöfundinum í
dans? spyr hún feimnislega eftir að þau hafa
talað stuttlega saman.
Hann verður vandræðalegur. Það er langt
síðan stelpa hefur boðið honum að dansa.
Hann hefur lítið verið að flagga danskunn-
áttu sinni á skólaskemmtunum enda engu
að flagga. Hann er ekki einu sinni viss um
að geta haldið takti.
- Hvað segirðu um það? ítrekar hún
þegar stendur á svari frá honum. Hún er
rjóð í kinnum.
o«'ú' nírri Mh efti,
n9rri bók eftir
• r r> t
’ O o J *
Hann er á báðum áttum, langar að segja
nei en kann ekki við það. Hann hugsar með
sér að hann hafí trúlega engu að tapa, hann
geti látist vera lasinn ef hann verður í vand-
ræðum með að hrista sig eftir hljómfallinu.
- Allt í lagi, segir hann svo ákveðinn. En
þú veist að ég dansa sjaldan. Ég kann það
varla.
Það er betra að nefna það áður en hún sér
það.
Það hýrnar yfir Klöru.
- Hugsaðu ekki um það, segir hún og
þrífur í handlegg hans og dregur hann út á
gólfið. Allir kunna að dansa, hver á sinn
hátt. Ekki verður aftur snúið. Þau eru
komin út á gólf.
Hljómsveitin leikur fjörug lög, ætlar
greinilega að gera sitt til að fólk skemmti
sér. Henni hefur gengið vel að fá krakkana
til að dansa. Það er orðið þröngt á gólfinu
og sviti byrjaður að perla á enni þeirra sem
hamast mest.
Svenni og Klara spjalla saman á milli
laga. Hún er eitthvað svo undurblíð og
mjúk í kvöld, virðist komin til að vera hjá
honum. Hann er ekki frá því að hann eigi
möguleika ef hann prófar sig áfram. Hon-
um finnst það liggja í loftinu.
Eftir marga hraða dansa róar hljómsveit-
in liðið með ljúfu lagi og ljósin eru deyfð.
Svenni og Klara horfa vandræðaleg hvort
á annað. Nú er annað hvort að dansa rólega
saman eða fara af gólfinu. Hann er á báðum
áttum - þar til hún kemur upp að honum,
leggur hægri hönd sína á öxl hans og tekur
um vinstri hönd hans.
- Við verðum að reyna, segir hún og er
fallega rjóð í vöngum.
Þeim gengur vel að halda sama takti.
Ljúfir tónar líða um huga hans og hann
nýtur sín til fulls. Hann gæti dansað svona
til eilífðar.
Klara færist nær og nær. Hann verður
dálítið ringlaður, veit ekki hvort hún er að
reyna við hann eða hvort nálægð hennar er
tilviljun. Hvað skal taka til bragðs? Þetta
kemur svo flatt upp á hann. Hann veit varla
sitt rjúkandi ráð. Hann er ekki alveg viss
um að hann vilji vera með henni. Hún hef-
ur eiginlega aldrei verið á óskalista hans þó
að hún sé sæt og góð stelpa.
Svo er það Agnes sem eykur heilabrottn.
Ætlar hann að gefa hana upp á bátinn þó að
það séu litlar sem engar líkur til þess að þau
eigi eftir að byrja saman? Getur hann hugs-
að um tvær stelpur í einu? Er það mögu-
legt?
Það getur verið afdrifaríkt fyrir hann að
hrinda Klöru frá sér. Ef til vill missir hann
hana fyrir fullt og allt. Hún gæti orðið góð-
ur vinur. Hann er viss um það því að hun
er slík stelpa.
Hvílíkur heimur! Hvílíkt vandamál! Af
hverju þarf allt að vera svona flókið?
Þau dansa þétt. Hún notar nákvæmlega
sama ilmvatn og Eva, systir hans. Hann
kemst ekki hjá því að finna það. Alh 1
kringum þau vanga krakkar. Hinir hafa flU"
ið af gólfinu.
Svenni veit ekki fyrr en hann hefur losað
vinstri höndina, stungið henni undir hand-
arkrikann á henni og aftur fyrir bak Þar
sem hún mætir hægri hönd hans. Svo þrýst-
ir hann henni fast að sér. Höfuð hennar
nemur við höku hans. Hann finnur nota-
lega lykt af sjampói.
Hún virðist taka þessari nýju dansaðferð
vel; að minnsta kosti streitist hún ekki a
móti.
Klara! Fyrr mátti nú vera! Af hverju er
hún að reyna við hann núna, á síðasta
skólaballinu? Hafði hún ekki kjark til þess
fyrr? Er þetta bara eitthvað sem allt í einU
flaug í kollinn á henni þegar þau hittust áð-
an? Varla! Kannski hefur hún verið ánægð
með leikritið og það ýtt undir þetta? Hvað a
hann að halda? Hugsanir þyrlast um í höfði
hans.
Svenni lokar augunum bæði til að njota
dansins betur og eins til að þurfa ekki að sja
kunningjana í kringum sig. Þeir hljóta að
spá og spekúlera! Hann finnur að hann er
orðinn eins og glóandi hnöttur. Eins gott að
það er rökkur í salnum.
Svenni varpar öllum frekari heilabroturn
frá sér og ákveður að láta slag standa. Hann
langar til að kynnast Klöru nánar. Það er
áreiðanlega mikið varið í hana.
Hann styður fingrum laust undir höku
hennar svo að hún líti upp, beygir höfuðið
og kyssir hana. Fyrst léttum mömmukossi
en svo kyssast þau innilegar.
Svenni er undrandi á sjálfum sér. Þetta
getur hann þá eftir allt saman! Hann hefuf
aldrei áður komist svona nálægt stelpu.
Næst leikur hljómsveitin rokklag. Aal1
halda áfram að dansa og brosa hvort til ann-
ars.
Einhver potar í bakið á Svenna. Hann
snýr sér við, sér að það er Eva. Hún glotttr.
Það nægir. Hann skilur sneiðina. Hun,
stríðnispúkinn, hefur mátt til að láta hann
vita af nálægð sinni.
Svenni sér að skammt frá dansar Bjösst