Æskan - 01.10.1988, Blaðsíða 23
Sæl, kæra Æska!
Bestu þakkir fyrir gott lesefni. Get-
Urðu birt veggmynd af Stefáni Hilm-
arssyni?
Hér er ein skrítla:
Einu sinni voru tveir menn að
spjalla saman.
- Það er ekki gott með konuna
mína, segir annar þeirra.
- Nú?
- Já, hún vill alltaf hafa hundinn í
svefnherberginu og það kemur mikil
fýla af honum.
- Af hverju opnarðu ekki glugg-
ann?
- Ertu vitlaus, maður. Heldurðu
að ég ætli að hleypa öllum hænsnun-
um út?
íris Kristinsdóttir,
Hamri, Svínavatnshreppi,
A-Húnavatnssýslu.
ni""1111111"1 Vandamál?
Kæra Æska!
Ég á við hræðilegt vandamál að
stríða. Þannig er að ég er mjög hrif-
’nn af stelpu sem ég þekki vel. Við
höfum oft verið góðir vinir en nú
Ennst mér að hún líti ekki við mér.
Hvað á ég að gera? Á ég að hætta að
Vera hrifinn af henni eða halda því
áfram?
Bestu þakkir fyrir frábært blað.
Einn á báðum áttum.
Svar:
Þessu er nú fljótsvarað. Ef stelp-
an lítur ekki við þér bendir allt til
þess að hún hafi engan áhuga á þér,
a m.k. ekki að sinni. Þú verður
sJálfur að gera upp við þig hvort þú
heldur áfram að vera hrifinn af
henni eða ekki. Ef þið hafið verið
iiii"1111 Rafeindavirkjun
Langbesta Æska!
Mig langar til að spyrja þig um raf-
eindanám.
1. Hvar er hægt að læra rafeinda-
fræði?
2. Hvað kostar námið?
3. Hvaða grunnmenntun þarf að
hafa til þess að mega hefja nám?
4. Hvað þarf maður að vera gam-
all?
Með bestu þökk.
ísleifur Ámaon,
Faxatröð 12, Egilsstöðum.
Svar:
1. í iðnskólum.
2. Það kostar ekki mikið. Þú
þarft ef til vill að greiða lítilsháttar
fyrir afnot af efni.
3. Grunnskólapróf.
4. Þú getur hafið námið um leið
og þú hefur lokið grunnskóla.
Halló, kæri Æskupóstur!
Mig langar að lýsa draumaprinsess-
unni minni. Hún er um það bil 165
sm á hæð og alveg sjúklega sæt. Hún
er með gráblá augu, held ég, og er í
5.-B í Breiðholtsskóla. Ég veit að hún
æfir handbolta hjá Víkingi. Besta vin-
kona hennar heitir Hanný.
Einn að farast úr ást!
Dísin mín er 13 ára með blá augu
og krullur í hárinu. Hún er æðislega
sæt. Ég kynntist henni fyrst í Reið-
skólanum. Þessi stelpa á heima á
Kirkjubæjarklaustri. Ég vona að hún
sé hætt að hugsa um þennan Anton
og hugsi bara um mig.
Einn dansóður.
""Ósviknir draumaprinsar
Draumaprinsinn minn heitir Arnar
og verður þrettán ára í mars. Hann er
sjúklega sætur; ljósrauðhærður með
liðað hár niður á axlir og blá augu.
Hann klæðist oft snjóþvegnum bux-
um og gulum peysum og er mjög
góður í knattspyrnu. Hann er í 6-E í
Melaskóla.
Stelpa í 6-D, Melaskóla.
Ég er á Akureyri og er sjúklega ást-
fangin af strák sem á heima hérna.
Hann er með svart eða dökkbrúnt
hár og brún augu. Hann varð 14 ára í
ágúst, er í Gagganum á Akureyri og
auðvitað í 7. bekk. Þessi lýsing passar
aðeins við einn strák og það eru fjórir
stafir í fyrra nafni hans.
Ein sem er jafngömul draumaprins-
inum.
Kæri Æskupóstur!
Ég veit ekki hvort ég lifi þetta af
því að ég er að deyja úr ást til stráks í
6. bekk í Vopnafjarðarskóla. Hann
heitir Gústi.
Ein að deyja.
Prinsinn minn er skolhærður með
blá augu og góður í fótbolta. Hann er
nýorðinn 14 ára og æðislega sætur.
Hann er nemandi í Hrafnagilsskóla í
Eyjafirði.
260875-41.
Draumaprinsinn minn heitir Davíð
og er lítill, ljóshærður með æðislega
blá augu. Hann er í 8.-L í Öldutúns-
skóla í Hafnarfirði.
Ein úr 7. bekk í Öldó.
Kæra Æska!
Draumaprinsinn okkar er ljósskol-
hærður með gráblá eða grá augu.
Hann er meðalhár og vöðvastæltur,
alltaf brosandi nema þegar hann er í
fýlu en það er sjaldan. Hann er sjúk-
lega sætur og skemmtilegur. Hann er
„fjórtán bráðum fimmtán. . Seinni
hluti nafns hans er VAR og hann á
heima á Húsavík.
góðir vinir - eins og þú nefnir
~ gcetir þú svo sem prófað að rœða
Vlð stelpuna um vináttu ykkar og
spurt hana m.a. að því af hverju
hún sé hœtt að tala við þig. Ef þú
þorir það ekki getum við ekki gefið
bér nein ráð. Þú verður þá bara að
hingja því að þú fellur ekki í kram-
■á hjá henni sem stendur.
*SKANi
Draumastúlkan mín er dökkhærð og
brúneygð. Hún á heima í Hafnar-
firði. Aðaláhugamál hennar eru hand-
knattleikur og skíðaferðir. Hún er 12
ára. Ég veit ekki hvort ég lifi árið á
enda! Ég þori alls ekki að segja henni
að ég elski hana.
2x3.
Fegurðardrottningin hans.
Draumaprinsinn minn er langur og
mjór, dökkhærður og með brún
augu. Hann er í 7. bekk, æfir körfu-
bolta og er mjög sætur. En því miður
vill hann ekkert með mig hafa.
Guðbjörg í Grindavík.
23