Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1988, Síða 40

Æskan - 01.10.1988, Síða 40
Umsjón: Jens Kr. Quðmundsson Sykurmolarnir Kæra Popphólf! í plötudómi um plötu Sykurmolanna eru lögin þeirra ýmist kölluð enskum eða íslenskum nöfnum. Getið þið ekki ákveðið hvora leiðina þið veljið? Hrollur Sykurmola-aðdáandi. Svar: Sum lög plötunnar „Life is too good“ höfðu áður komið út með íslensku heiti eða voru kunn frá hljómleikum Sykurmol- anna með íslensku heiti („Afmæli“, „Tek- ið í takt og trega“ o.fl.) Önnur eru fyrst og fremst þekkt með erlendu heiti („Deus“ o.fl.). Við höllumst heldur að ís- lenska heitinu þar sem því verður við komið. Madonna Hæ, hæ, kæra Popphólf! Það mættu oftar vera veggmyndir og límmiðar af poppstjörnum í blaðinu, dagatal með afmælisdögum poppstjarna, mánaðarlegur vinsældalisti og blað með poppstjörnumyndum og auglýsingar aftan á. Viljið þið birta vcggmynd, límmiða og fróðleiksmola um Madonnu ásamt heimil- isfangi hcnnar? Henrý Sverrisson, Skálanesgötu 5, Vopnafirði. Svar: ALskan hefur birt veggmynd af Ma- donnu, límmiða og nokkrum sinnum fróðleiksmola, ma.a. póstáritun aðdáenda- klúbbs hennar oftar en einu sinni. Samt berast stöðugt óskir um þetta frá nýjum áskrifendum Æskunnar - og cinnig göml- um lesendum er hafa nýlega hrifist af Ma- donnu. Þetta bréf þitt, Henrý, var tekið úr hópi hliðstæðra bréfa sem í voru sömu óskir. Því er sjálfsagt að uppfylla þær. Veronica Madonna Louise Ciccone Penn fæddist 16. ágúst 1956 (á tímabili var hún sögð fædd 1957 og síðustu árin er far- ið að skrá hana fædda 1958. Þes verður líklega ekki langt að bíða að hún verði sögð fædd 1959 eða 1960). Fæðingarstað- urinn var Rochester í Michigan-fylki í Bandaríkjum N-Ameríku. Madonna missti móður sína og nöfnu 8 ára. Toni Sylvio, faðir hennar, tók síðar saman við þjónustustúlku þeirra og hún gekk þá Ma- donnu í móður stað. í æsku var Madonna ætíð kölluð Nonni litla. Hún var listhneigð en það tók hana langan tíma að átta sig á því hvað hún vildi. Hún lagði stund á píanónám, ball- ett, nútímadans og leiklist. Hún fór snemma að búa með fimmtugum ballett- dansara. Síðar var hún með söngva- smiðnum Steve Bray sem á heiðurinn af flestum vinsælustu lögum hennar. Með Steve söng hún í hljómsveitunum Emmy, The Millioners og Modern Dance. Þá hóf hún ástarsamband við Dan Gilroy og gekk í hljómsveit hans, The Breakfast Club. Því næst tók hún saman við diskó-fröm- uðinn Patrick Hernandez. Með honum fluttist hún til Frakklands. Þar lagði Patr- ick háa fjárhæð undir við að koma Ma- donnu á framfæri. En án árangurs. Næsta kærasta hennar, Jellybean, gekk heldur betur að aðstoða hana á framabrautinni. Hann var og er enda töluvert þekktari í poppinu en Patrick. Jellybean samdi fyrir Madonnu fyrsta „smell“ hennar, „Holi- day“, 1984. Það lag komst inn á „10 efstu“ (Top ten) margra vestrænna vinsældalista. í kjölfarið fylgdu lög eins og „Like A Virgin“, „Into The Groove“ o.fl. sem náðu efsta sætinu. 1985 giftist Madonna leikaranum snjalla og fræga, Sean Penn. Hjónaband þeirra hefur verið stormasamt því að Sean er frægur ofstopamaður. Hann hefur ósjaldan lent bak við lás og slá vegna áfloga. Þess vegna finnst sumum spaugilegt að Madonna cr opinber stuðn- ingsmaður Bandarísku friðarhreyfingar- innar sem berst fyrir afvopnun og gegn kjarnorkuvopnum. Madonna hefur leikið í nokkrum kvikmyndum, m.a. með Sean, og þegar þetta er skrifað er hún fastráðin sviðsleikari. Þar þykir henni takast vel upp I leikritinu „Speed The Plough" á Broadway. Póstáritun Madonnu er: Madonna Fan Club, - P.O. Box 1400, New York, NY 10028, U.S.A. AC/DC Kæra Popphólf! Mig langar til að leiðrétta og auka við upplýsingum um AC/DC: Önnur plata hljómsveitarinnar heiur T.N.T. en ekki I.N.I. 1983 kom út hljómplata sem heitir „Flick of the Switch“ og 1985 „Fly on the Wall“. Smári Jósepsson. Samantha Fox Hæ, hæ, Popphólf! Getið þið birt upplýsingar um Sam- önthu Fox og þó að ekki væri nema litla mynd af henni? Dögg. Svar: Það er gott hjá þér að fallbeygja nafn Samönthu. Allt of margir svíkjast um a* fallbeygja útlend nöfn. Samantha Fox vakti fyrst athygli sem ljósmyndafyrirsæta ómerkilegs bresks slúðurblaðs, „Sun“- Pa var hún aðeins 16 ára. Foreldrar hennar voru gagnrýndir af ýmsum fyrir að leym stelpunni að hálfstriplast á síðum „Sun ■ Samantha sjálf benti á að þetta væri ákjós- anleg leið fyrir enskar lágstéttarstelpur U að ná frægð og frama. Frægð sína notaði Samantha síðan til að ná plötusamning1 sem söngkona þótt hún hefði takmarkaða sönghæfileika. Upptökumenn hennar hala síðar upplýst að Samantha sé bæði laglaua og raddlítil, þeir hafi lagt mikla vinnu í a „teygja" rödd hennar og laga að laglín- unni. Sú vinna skilaði þeim árangri að lög ein og „Touch Me (I Want Your Bodv)^ og „Do Ya Do Ya (Wanna Please Me) fleyttu Samönthu upp (einkum disko-) vinsældalista fyrir tvítugsafmæli hennar. Hún er 21 árs núna og hefur efnast vel a því að sitja fyrir á ljósmyndum hjá vala- sömum bandarískum blöðum að undan- förnu. Póstáritun hennar er: Samantha Fox, - P.O. Box 159, Colchester, C02 5RD, England.

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.