Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1991, Page 14

Æskan - 01.01.1991, Page 14
Kanínur Kanínur eru Ijúf og falleg dýr. - Ljósm.: Heimir Óskarsson. - Eigandi: Kristin Gubmundsdóttir. Góóa Æska! Það væri gaman ef birt yrði veggmynd af kanínum eða lukkutröllum. Tóta Gaflaii. Æskan - Dýrin okkar! Éger 14 ára sveitastúlka og á heima í Eyjafirðinum, í einum af þrem hreppum sem búið er að sameina. Við systir mín og tveir frændur okkar eigum 12 kanínur. Það væri gaman ef þiö fjölluðuð um kanínur í þættin- um og birtuð veggmynd af einni. Sigga Hiefna. Kæra Æska! Við erum tvær stelpur í Sví- þjóó. Okkur langar til að segja frá kanínum því að vió eigum kanínu sem heitir Snoppi. Kanínur þurfa stórt búr. Þær verða að hafa matarskál og að- gang að vatni. Skálin má ekki vera mjög létt því að þá hvolfa kanínurnar henni oft. Það á að þrífa matarskálina daglega. Kanínur þurfa dall til að gera þarfir sínar í. Hann á alltaf að vera á sama stað. í hann á að láta kattasand. Kanínum, einkum ungum, 1 4 Æskan

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.