Æskan - 01.01.1991, Blaðsíða 40
málum!
Vinsælir
leikarar
Kæri Æskupóstur!
Hvaö heitir stelpan sem
leikur Láru, í þáttunum
um Láru og Lúis? Hvert er
heimilisfang hennar?
Hvaða mál talar hún? Hve
gömul er hún?
Þökk fyrir gott blað.
787.
Kæra Æska!
Mig langar til að biðja
um upplýsingar um Pat-
rich Bach sem leikur í
þáttunum um Láru og
Lúis. Hann hefur einnig
leikið í þáttunum um
Önnu.
Mix.
Svar:
Telpan sem leikur Láru (Laura
nefnist hún í þáttunum) heitir Coco
Winkelmann. í gögnum, sem Sjón-
varpið fékk með þáttunum, eru
engar persónulegar upplýsingar um
hana eða aðra leikendur. Ættar-
nafnið bendir til þýsks uppruna en
fornafnið virðist suðrænna! |an
Andres heitir sá sem leikur Lúis. -
Mér hefur ekki tekist að afla upp-
lýsinga um Patrek Bach. Veggynd
af honum fylgdi þýska tímaritinu
Bravo snemma á árinu 1990 og má
því vænta að hans sé getið í ein-
hverju tölublaði ritsins um það
leyti. Ef til vill getur einhver les-
enda Æskunnar aðstoóað okkur.
„Eftirlýstur"
Kæri Æskupóstur!
Mig langar til að lýsa
eftir dreng. Hann á heima
á Akureyri en nákvæmt
heimilisfang veit ég ekki.
Hann er 14 ára, 170-175
sm, dökkhærður með gler-
augu og afar sætur. Hann
heitir Óli. Hann var ekki
heima vikuna 20.-S5. nóv-
ember sl.
Ef einhver veit hverjum
ég er að lýsa langar mig til
að biðja þann að senda
Æskunni upplýsingar um
heimilisfang þessa Óla.
„Akureyri.“
í alvöru
Kæra Æska!
Mér finnst þú
„öfga“skemmtilegt blað. Ég
segi þetta ekki bara til að
smjaðra heldur í alvöru.
Mér þætti mjög, mjög vænt
um ef þið birtuð einhverja
fróðleiksmola um
Madonnu.
Æskon er besro blað,
besr of öllum blöðum.
Allir viljo leso þoð,
meiro segjo í böðum.
Fyrir uron búðirnar
bíður fólk í röðum.
Rósa.
Stærri Æsku
Kæri Æskupóstur!
Þannig er mál með vexti
að margir vilja hafa Æsk-
una stærri. Viljið þið
stækka hana?
Ekki kalla Mikael J.
Mikjál - og þannig.
Ég er sammála Ingu um
að gaman væri að sjá
myndir af söngvurum þeg-
ar þeir voru litlir.
Viljið þið birta eitthvað
með Bítlunum eða bara
John Lennon?
Ein í Söndrunum
Svar:
Ekki er langt síðan tölublöðum
var fjölgað úr níu í tíu. Fyrir einu
ári fjölguóum við blaðsíðum í
hverju tölublaði. Það verður að
duga að sinni.
Michael, sem þú nefnir Mikael,
munum við kalla Mikjál - þegar
nafn hans er endurtekið í texta.
(Við höfum ekki íslenskað nafn
hans eða annarra í dálkinum „Við
safnarar" ...) Nýlega var sagt í
fréttum frá fyrrum Rúmeníukon-
ungi sem heimsótti land sitt en var
jafnskjótt gerður afturreka. í því
dagblaði, sem ég las, var hann
nefndur Mikjáll „upp á íslensku".
Stefán Hilmarsson, vinsælasti ís-
lenski poppsöngvarinn samkvæmt
vinsældakönnun Æskunnar, birtist
„í ýmsum myndum" í þessu tölu-
blaði. Aðrir síðar.
Þess verður væntanlega ekki
langt að bíða að eitthvað birtist um
Bítlana í Poppþættinum. Lennon er
nefndur þar á nafn í þessu tölu-
blaði.
Ýmis mál
Ágæta Æska!
Ég sendi þér skrýtlu:
Einu sinni voru tveir lirlir srrók-
or að foro yfir göru. Þó sogði
annar þeirra:
Fassoðu fig fá fílnum!
Þá sagði hinn:
Sor særðirðu seff sál?
Karl Jóhann
Eflaust hafið þið getað
lesið úr þessum f- og s-
Um egg ...
Kæri Æskupóstur!
Ég sendi þér skrýtlu og
bið þig um leið að birta
þetta:
“Hlý kveðja til Sigurjóns,
Katrínar, Maríu, Sigrúnar
og Kollu. “
Maður nokkur fór úr í búð
og keypri egg. Þegar honn
kom heim og rók eggin úr
bokkonum fonnsr honum eirr
þeirro óhreinr og óvenjulegr
úrlirs. Þá sogði hann:
„Þú err Ijórr egg."
Eggið spældisr!
Slóra.
Skrifadu aftur
Kæra Æska!
Þegar ég var á Mæorka
kynntist ég stelpu sem
heitir Ragnheiður. Hún á
heima einhvers staðar í
Reykjavík. Eftir að hún
fluttist í annað húsnæði
hefur hún ekki sent mér
bréf. Ég bið hana að skrifa
mér aftur.
Sigríður Jóhannesdóttir,
Skútahrauni 11, 660 Reykja-
hlíð.
44 Æskan