Æskan - 01.01.1991, Blaðsíða 42
Vinsældaval
lesenda
Æskunnar
-og annað áramótauppgjör, innlent og erlent.
Niðurstöður í vinsældavali
lesenda Æskunnar hafa tæp-
ast verið jafnspennandi fyrr.
Músíksmekkur landsmanna
hefur breikkað svo mikið síð-
ustu eitt til tvö árin. Kannski
er ekki alveg nákvæm lýsing
á þróuninni að tala um breið-
ari músíksmekk. Kannski er
heppilegra að tala um að á-
hugi hlustenda dreifist á .
fleiri flytjendur en áður. Mús-
íkin, sem um ræðir, er frekar
einlit eftir sem áður. Helst
má merkja breidd í átt til
þungarokksins. En það er af
sem áður var þegar valið stóð
aðeins á milli Duran Duran
og Wham!, síóan á milli A-
Ha og Evrópu o.s.frv. Þá voru
Bubbi og Ragnhildur sjálf-
kjörin í efstu sætin af hér-
lendum skemmtikröftum.
Núna er enginn sjálfkjör-
inn í efstu sætin. í flestum
liðum dreifast atkvæði nokk-
uð jafnt á fjölda manns. Örfá
stig aðgreina efstu sætin.
Þessa þróun má rekja til
fjölgunar útvarpsstöðva.
Aóur hlustaði almenningur
aðeins á Rás 1 (ogá útvarp
bandaríska hersins á Miðnes-
heiði). Fyrir nokkrum árum
bættist Rás 2 við. Nokkru
síðar kom Bylgjan til sögunn-
ar. Nú geta íbúar Suðvestur-
lands valið um dagskrá heils
tugar útvarpsstöðva. Flestir
hlustendur hafa bundið sig
við dagskrá einnar útvarps-
stöðvar (eða tveggja-þriggja í
mesta lagi). Þá venst hlust-
andinn ákveðnum skemmti-
kröftum en heýrir sjaldan eöa
aldrei i sumum sem njóta
vinsælda á öðrum útvarps-
stöðvum.
Dæmi: Hljómsveitin
Metallica er spiluð í Útrás en
aldrei i Aðalstöðinni. Mötley
Criie er spiluð í Stjörnunni en
ekki á Rás 1. Lög með Ríó
tríói eru áberandi í dagskrá
Aðalstöðvarinnar en heyrast
varla spiluð í Effemm.
Skemmtikraftar á snærum
Skífunnar heyrast oftar í
Bylgjunni, Stjörnunni og Stöð
2 en öðrum ljósvakamiðlum.
Þannig mætti áfram telja.
Að venju verðlaunum við
fimm heppna þátttakendur í
vinsældavalinu.
Þessir fá sendan pakka frá
okkur:
Krisrján Ðenedikrsson 10 áro,
Glirbergi 9, Hafnarfirði, Jón
Korl Árnason 1ö áro, Laugar-
nesvegi 75, Reykjovík, Brynja
Dröfn 14 ára, Grundargarði
15, Húsavík, Berglind Leifsdórr-
ir 13 ára, Grænási 2A, Njarð-
vík, og Vilhjálmur Srefánsson
12 ára, Þórunnarsrræri 103,
Akureyri.
Vinsælasta
erlenda
hljómsveitin:
Vinsælasta
erlenda
söngkonan:
1. Madonna
2. Whitney Houston
3. Kylie Minogue
Vinsælasti
erlendi
söngvarinn
1. David Coverdole
1. Metollico (Whitesnoke)
2. New Kids On The Block 2. Michoel Jackson
3. A-ho 3. Morten Horket (A-ho)