Æskan - 01.03.1992, Side 21
til fimm ára eftir tilnefningu
Barnaverndarráðs. Oftast er það
fóik sem numið hefur uppeldis-
eða fjölmiðlafræði og unnið með
börnum og unglingum. Eftirlits-
menn eru allir jafnframt í öðrum
störfum. Tveir þeirra þurfa að
sjá hverja mynd. Þær myndir
sem sýndar eru í kvikmyndahús-
um eru skoðaðar í sölum þeirra
nokkru fyrir áætlaða frumsýn-
ingu, oftast án íslensks texta.
Myndbönd eru skoðuð að Síðu-
múla 33.
1991 var litið á 243 myndir í
kvikmyndahúsum og 539 mynd-
bönd - eða 782 myndir alls.
2. Nei - ekkert pottþétt ráð.
Talið er að fólk byrji oftast á
að naga neglur vegna taugaó-
styrks, kvíða eða af öðrum sál-
rænum orsökum. Það kann að
verða að vana og eftir það hefur
fólk ákveðna tilhneigingu til að
halda því áfram.
Stundum hefur verið gripið
til þess ráðs, einkum til að venja
börn af því að naga neglur, að
bera eitthvert bragðvont en
hættulaust efni á neglurnar en
ekki skal mælt með því hér.
Æskilegt er að reyna að komast
að því hvers vegna byrjað var
að naga neglur og reyna að
bæta úr vanda ef hann upp-
götvast. Verið getur að nægilegt
sé að ræða málið á heimilinu en
ef til vill þarf að ieita til sérfræð-
ings.
Máli getur skipt hvernig sam-
skiptin við þina nánustu eru.
Einnig hvort þú gerir miklar kröf-
ur um góða eða jafnvel full-
komna frammistöðu á flestum
sviðum, t.d. í skólanum, um út-
lit þitt eða í ýmsu sem þú tekur
þátt /'. Skoðaðu hug þinn hvað
þetta varðar. Þannig verður oft
að rekja sig áfram til að skilja
hlutina og geta tekið ákvörðun
um breytingar.
Vandinn kann að vera leyst-
ur en (ó)vaninn að sitja eftir. Þá
er ekki fráleitt að reyna að
mynda annan vana í staðinn, til
að mynda að eiga alltaf gulræt-
ur og grípa til þess að naga þær
3. Þeir kunna að verða tekn-
ir upp aftur.
4. Ný dönsk birtist á vegg-
mynd í 4. tbl. Æskunnar 1989 -
Sykurmolarnir í 5. tbl. 1988. Ef-
laust kemur röðin bráðlega að
þeim aftur... (Báðar hljómsveit-
irnar eru á límmiðum Æskunn-
ar 1992)
DÝRALÆKNIR
Hæ, Æska!
Ég þakka gott blað. Ég ætla að
bera fram spurningar:
í hvaða skóla þarf að fara til að
læra að verða dýralæknir? Hve
mörg ár þarf til að læra það?
Skrýtla:
Af hverju eru hafnfirskir hundar
með flatt trýni?
Af því að þeir elta alltaf kyrr-
stæða bíla...
Ragnhildur.
Svar: Dýralækningar þarf að
læra við erlenda háskóla að
loknu stúdentsprófi. Námið tek-
ur að líkindum fimm ár.
LANGBESTSVONA
Kæra Æska!
Mér finnst að krakkar ættu ekki
að vera að kvarta yfir þér. Þú ert
langbest svona. Sumir vilja þetta
og aðrir hitt og ekki er hægt að
hlaupa eftir öllu.
En ég sendi þér skrýtlu:
Ósannsögull strákur: Pabbi, á
ég að segja þér hvað ég gerði í
skólanum í dag?
Pabbi: Hvað?
Strákur: Ég setti sprengju und-
ir kennarastólinn!
Pabbi: Farðu tafarlaust upp í
skóla og fjarlægðu hana!
Strákur: Hvaða skóla?
Lilja
SPILASAFNARA
KLÚBBUR
Kæra Æska!
Ég þakka frábært blað!
Ég er með nokkrar sþurningar
og tillögur:
1. Mætti ekki birta nöfn þeirra
sem safna spilum - og hafa spila-
klúbb eins og frímerkjaklúbbinn?
2. Mætti ekki endurvekja þáttinn
Okkar á milli?
3. Væri ekki hægt að birta texta
vinsælla laga? Ég gæti sent ykk-
ur marga.
4. Hvað þarf til að fá vinnu hjá
ykkur-t.d. við að sjá um einhvern
þátt eða taka viðtöl?
NKOTB.
Svör: 1. Það kemur til greina
- ef ábyrgur umsjónarmaður
fæst.
2. Ef til vill gerum við það.
3. Við höfum talið rétt - af
ýmsum ástæðum - að láta það
vera.
4. Fáeinir sérfróðir umsjón-
armenn þátta rita í Æskuna.
Flest viðtöl taka fyrrum ritstjóri
Æskunnar, Eðvarð Ingólfsson
rithöfundur, og yngsti félagi
Blaðamannafélags Islands, El-
ísabet Elín. Ekki er á döfinni að
ráða aðra til þeirra starfa. En
skemmtileg, vel unnin viðtöl eða
fróðleikskorn af einhverju tagi,
sem lesendur senda, eiga greiða
leið í Æskuna.
HVENÆR
FÆDDIST HÚN?
Kæra Æska!
Ég er ein af aðdáendum
Madonnu. Ég veit allt um hana -
nema hvenær hún er fædd. Sum-
ir segja að það hafi verið 1956,
aðrir 1957, 1958, 1959 eða 1960.
Og sumir segja að hún sé fædd
16. ágúst en aðrir 17. ágúst.
Þýska blaðið Bravó segir 16.
ágúst 1958, 1959 eða 1960;
Popcorn segir 16. ágúst 1958 - og
Æskan segir 16. eða 17. ágúst
1956 eða 1958.
Ég verð að fá svar!
Hiidur.
Svar: Umsjónarmaður Fopp-
þáttarins leitaði í gögnum sín-
um og fann þettal:
Madonna er fædd 16. ágúst
1958 (The Penguin Encycio-
pedia of Popular Music (= fjöl-
fræðibók um dægurmúsík) - og
Smash Hits Sticker Collection)
- eða 1959 (tímaritið Record
Mirror - bókin Who’s Who in
Rock & Roll?)
- eða 1961 (bókin New lllu-
strated Rock Handbook)!
í bókinni, The Rock Yearbook
Vol. VI, segir: Madonna er fædd
16. ágúst 1958 (eða 1959 - eftir
þvíhvoru þú trúir...)
Betur getum við ekki!
FLEIRI DRENGI í PENNA-
VINADÁLK!
Hæ, hæ, kæra Æska!
Ég hvet alla stráka á aldrinum
13-14 ára til að senda bréf í penna-
vinadálkinn.
Viltu hafa veggmynd með Guns
N’ Floses bráðlega?
Ég er alveg rosalega ánægð
með útlit Æskunnar núna. Hún er
miklu litríkari og glæsilegri en áður.
ÁXÁXÁ
Svar: Slík veggmynd var í 1.
tbl. Æskunnar 1990. En GN’R
verða á límmiða á þessu ári.
Þökk fyrir umsögnina!
UM PABBA
Kæri Æskupóstur!
Ég var að lesa gamalt Æsku-
blað og þar voru lýsingar á mömm-
um og pöbbum sem lesendur
höfðu sent. Ég vildi gjarna að þátt-
urinn byrjaði aftur. Hér er lýsing á
pabba mínum:
Pabbi er ofsalega fyndinn og
skemmtilegur. En hann kann ekki
að elda. Þegar hann á að elda býr
hann til bollur úr öllu, meira að
segja einu sinni úr nautakjöti! Þeg-
ar hann kaupir í matinn kaupir
hann allt í litlum umbúðum. Hann
kaupir t.d. fjórar skólamjólkurfern-
ur þegar hann á að fá einn Iftra!
Pabba finnst skemmtilegast að
hlusta á sinfóníur og þungarokk og
stundum leikur hann það hvort
tveggja í einu. Þá ærist mamma!
Kevin Costner.
Þökk fyrir skemmtilega lýs-
ingu. Kannski vilja fleiri en þú
leggja orð í belg?
VÍSA
Æska mín!
Viltu birta vísu?
Æskan er frábært blað!
Allir vilja lesa það.
Þegar það kemur inn i hús
þá stelur því lítil mús!
Inga.
Við verðum líklega að senda
þér tvö eintök næst!
Þökk fyrir að skrifa
Æskunni!
Munið að rita fullt nafn
og heimiljsfang undir
bréfin. Önnur bréf
verða ekki birt.
ÆSKU
PÚSTUR
Æ S K A N 2 1