Æskan - 01.03.1992, Síða 27
en honum heföi dottið í hug.
„Hvernig finnst ykkur svo ís-
land?" spurði hann til að koma
samtalinu af stað.
„Það er gott land. Betra en heima.
En við söknum pabba."
Hann leit spyrjandi á soninn:
„Er hann ldtinn?"
„Nei, hann komst ekki með.
Hann þurfti að sjd um að rækta
landið."
„Höföuð þið það ekki gott, með
stóra jörð?"
„Nei. Við urðum að vinna allan
daginn og pabbi getur ekki séð um
það. En hann sagðist ekki heldur
geta flúið og gefist upp. Einnig var
hann eftir vegna afa og ömmu sem
voru hjá okkur og treystu sér ekki
með okkur út í óvissunna."
Örn haföi alltaf haft báða for-
eldra sína með sér og heföi hvorugs
getað verið án í ókunnu landi,
hvorki sjö ára né tvítugur.
Flóttamaðurinn hélt áfram.
„Uppskeran var oft ónýt og upp
á síðkastið höföum við ekkert að
borða. í flóttamannabúðunum, sem
við vorum í síðustu mánuðina, höfö-
um við þó eitthvað ofan í okkur, þó
að aðstaðan þar væri ekki góð."
Aftur reikaði hugur forsætisráð-
herra, Arnar Hilmarssonar, til
bernskunnar. Hann haföi aldrei
kynnst hungri. Jæja, en hann, þessi
harðsnúni stjórnmálamaður, mátti
ekki láta tilfinningarnar hafa áhrif
á sig.
„En nú eruö þið komin til íslands
þar sem þið eigið að geta búið við
öryggi," sagði hann.
Móðirin heyrði hann segja ísland
og hvíslaði með þreytulegt bros á
vörum aö syni sínum einhverju á
tungumáli sem hann skildi ekki.
Sonurinn tók aftur til máls:
„Mamma vildi bara segja að hún
væri mjög þakklát fyrir að þið tókuð
við okkur og að island væri dásam-
legt land."
Konan brosti aftur og horföi þakk-
lát á Örn. Það kom kökkur í háls-
inn á honum en hann leit undan.
„En," sagði hann, „mér sýnist þú
vera vel gefinn. Af hverju menntað-
ir þú þig ekki?"
„Foreldrar mínir höföu ekki efni
á að senda mig í skóla, hvorki að
borga skólagjöld né að missa mig
sem vinnumann af heimilinu. Þá
heföi öll uppskeran eyðilagst og ég
veit ekki hvernig við heföum þá lif-
að.“
Öm var farinn að sjá eftir því sem
hann sagði á fundinum. Þetta fólk
var svo að segja fætt án möguleika,
en hann sjálfur fæddist meb gull-
skeið í munninum. Hann vorkenndi
fólkinu mjög og ákvað ab reyna að
fá fjölskylduföðurinn og ömmuna
og afann til íslands. Hann stóð upp
og fylgdi fólkinu fram þar sem fjöl-
miðlafólk stóð og beindi myndavél-
um og hljóðnemum að honum.
Hann benti á soninn og sagði:
„Þau hafa frá mörgu að segja og
sonurinn getur túlkað fyrir móbur
sína og systur. En verið ekki of á-
geng, þau eru svo nýlega komin til
nýja landsins og geta líklega ekki
þolab freka fréttamenn lengi. Svo,
verið þið róleg."
Örn vék sér frá.
Einn fréttamaðurinn byrjaði að
spyrja og fljótlega voru allir farnir
að spyrja hver í kapp við annan.
„Þeim er ekki við bjargandi, þess-
um fréttamönnum," hugsaði Örn.
Eftir skamma stund sagði hann
fréttamönnunum að þeir yrðu að
fara og gekk með flóttamönnunum
aftur inn á skrifstofu sína. Hann
langaði að kynnast betur lífshátt-
um þeirra og hélt áfram spjalli sínu
við þá. Nú fór hann að sjá eftir því
að hafa tekiö öllu sem sjálfsögðu
þegar hann var yngri, mat, mennt-
un, húsi og fleiru. Hann sá líka eft-
ir viðhorfi sínu gagnvart þeim sem
fátækir voru þegar hann var yngri.
En það var of seint að breyta því
núna ...
Eða hvað? Örn vaknaði. Það var
enn nótt. Hann mundi sjaldan
drauma sína en þennan mundi
hann vel. Þab var ef til vill ekki of
seint að breyta til, kunna betur að
meta hlutina og þykjast ekki betri
en þeir fátæku. Hann var fæddur
með nóga peninga, í góbu landi, í
heilli fjölskyldu. Hann var heppinn
en það voru ekki allir. Hann ætlaði
að muna það alltaf.
(Höfundur hlaut aukaverölaun fyrir sög-
una í smásagnakeppni Æskunnar, Bamarit-
stjómar Ríkisútvarpsins og Flugleiða 1991)
PENNAVINIR
Enska - nema annars sé getiö. Rétt telst vera að rita
heiti lands é íslensku - enda ætlað íslenskum póst-
mönnum til lestrar.
Annika Andersson, Jágaregatan 142, 226-53 Lund,
Svíþjóð. 12 ára. Áhugamál: Dýr, músík, íþróttir.
Pernille Lundgren, Bronsáldersv. 15, 22254 Lund,
Svíþjóð. 12 ára. Vill skrifast á við stúlkur. Áhugamál:
Golf, dýr, málaralist.
Marcella Covrilová, Kociánka 2, Pavilong, Ústav PRO
TPM, Brno-královo Pole 61200, Tékkóslóvakíu. 16 ára.
Martina Ersepcová, Vetrná 1089, Ostrava N 70800,
Tékkóslóvakíu. 16 ára.
Nlna Klein, Kometenplatz 45,4100 Duisburg 18, Þýska-
landi. Er 15 ára. Áhugamál: Tónlist, tennis, lestur.
Katrein Webel, Fichtelbergstr. 30, Berlin 0-1140, Þýska-
landi. 14 ára. Áhugamál: Bréfaskriftir, sund, tónlist.
Sólvá Skála, Tórgarðsgota 9, FR-100, Tórshavn, Fær-
eyjum. 13 ára. Ahugamál: Fimleikar og pennavinir.
Danska.
Daisy Nielsen, Grasgota, FR-600 Saltangará, Fær-
eyjum. 13 ára. Áhugamál: Dans, dýr, kvikmyndir,
þungarokk.
Bente Instanes, 5628 Flerand, Noregi. Áhugamál:
Tónlist, gæludýr, frímerkjasöfnun o.fl.
Eglé Zykuté, Kurshiu 36-16, Kaunas, Litháen. 12 ára.
Áhugamál: Lestur og tónlist. (Sendi mynd af borginni
Kaunas)
Anna Graundal, N-8180 Rodoy, Noregi. 12 ára. Á-
hugamál: Dýr, að leika á píanó, tónlist, bréfaskriftir.
Oleg Nikolaev, Úmera, 25-8, Tallinn 200038, Eist-
landi. Átta ára drengur.
Vita Arlavicuté, Alsédzcy 7-27, 233035 Kaunas, Lit-
háen. 14 ára. Áhugamál: Iþróttir, kettir, hundar.
Stina Hökby, Sicklingsv. 6,122 46 Enskede, Sverige.
15 ára. Áhugamál: Tónlist, knattspyrna, siglingar.
Ekaterina/Nina Stefanovi, Boul. al. Stambdiski N. 47,
Sofia -1000 Búlgaríu. 7 og 10 ára systur. Móðir þeirra
er í búlgarska félaginu Vinir íslands. Áhugamál: Að
mála og safna póstkortum.
Ulla Pentoniemi, Hakaomaentie 10, 60510 Hyllykallio,
Finnlandi. 14 ára. Áhugamál: fþróttir, tónlist, bréfaskrift-
ir.
Esther Muhuro, P.O.Box 324, Uthiru, Kabete, Ken-
ía. 16 ára.
Julieta Stoianava, Zomica 6, P.O.Box 5, Burgas 8004,
Búlgaríu. 13 ára. Áhugamál: l'þróttir og bréfaskriftir.
Æ S K A N 2 7