Æskan - 01.03.1992, Page 28
FRIMERK
ÞÁTTURl
Umsjón: Sigurður H. Þorsteinsson
POPPHLJÓMSVEIT Á
FRIMERKJUM
Það mun hafa verið á degi frímerkisins
í Svíþjóð í fyrra að hljómsveitin Roxette var
sýnd á frímerkjablokk. Þetta var 5. októ-
ber. Um er að ræða þrjú frímerki í blokk og
kosta 2,50 sænskar krónur hvert. Á merk-
inu lengst til vinstri er Lena Philipsson - á
miðmerkinu Per Gessle og Marie Fredriks-
son (Roxette). Á merkinu lengst til hægri
er svo Jerry Williams.
Lena Philipsson er fyrst og fremst
söngvari popplaga fyrir ungt fólk og þekkt-
ust í heimalandi sínu. Aftur á móti er Rox-
ette þekkt um víða veröld og vinnur hvar
sem er. Tónlist þeirra spannar bæði popp,
rokk og ballöður.
Jerry Williams er rokkkóngur Svíþjóð-
ar. Er stundum sagt að honum hafi tekist að
gera Rock and Roll sænskt.
Það að Svíar skuli senda út blokk með
Rokki og poþþi (eins og útgáfan heitir) á
frímerkjum sýnir best hve mikils tónlist af þessi tagi er metin í sam-
félaginu. Dægurlagasöngur nútímans hefir víða haft slík áhrif að aldrei
áður hefir neitt líkt þessu gerst. Þetta á ekki aðeins við einstök þjóð-
félög heldur ef til vill vestræna menningu og menningarsamfélag í
heild.
Því var spáð að þessi frímerki seldust upp á skömmum tíma. Svo
fór. Ungt fólk var víst farið að spyrja um þau þegar í ársbyrjun í fyrra.
Rokk og poppútgáfan var seld í heftum sem í voru tvær frímerkja-
blokkir á 15.00 krónur. Það var Martin Mörck sem hannaði blokkina
með hliðsjón af Ijósmyndum Michaels Johansons og Anders Han-
sens.
Blokkirnar voru síðan prentaðar með blandaðri tækni, stálprentun
og offset. Zlatko Jakus gróf þann hluta sem er stálprentaður.
ÓPERUKONUNGUR
Það er hins vegar um margs konar tónlist að ræða í hinum vestræna
heimi. Ef frá er talin kirkjutónlist hafa ef til vill óperur og söngleikir
lengst af verið með því vinsælasta. Á þessu ári eru liðin 200 ár frá
fæðingu Rossinis en hann hét fullu nafni Gioachino Rossini.
íbúar smáríkisins San Marinós minnast þessa með tveim frímerkj-
um með mynd af honum og atriðum úr verkum hans. Annað frímerk-
ið, sem kostar 750 lírur, er með mynd af Rossini ungum og atriði frá
Rossini óperuhátíðinni sem haldin var 1989. Hitt merkið er með mynd
af Rossini öldnum og atriði úr óperunni Rakaranum frá Sevilla. Mörg
fleiri lönd Suður- Evrópu munu minnast þessa afmælis.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Laugarhóli, 510 Hólmavík.
2 8 Æ S K A N