Æskan

Volume

Æskan - 01.03.1992, Page 41

Æskan - 01.03.1992, Page 41
Frímerkjasöfnun er skemmtilegt áhugamál Frímerkjasöfnun er bæði skemmtilegt og fræðandi áhugamál. Hún er krefjandi, en ánægjan er fyrirhafnarinnar virði. Þjónusta við safnara Póstur og sími starfrækir söludeild fyrir safnara og hún heitir einfaldlega Frímerkjasalan. Söludeildin annast alla þjónustu við frímerkjasafnara. Hafðu samband við Frímerkjasöluna ef þú vilt gerast áskrifandi eða fræðast nánar um starfsemina. Frímerkjasalan hefursíma 636052, pósthólf 8445, 128 Reykjavík. Frímerkjasalan ertil húsa I Póstmiðstöðinni í Ármúla, en söludeild hennar er opin alla virka daga í pósthúsinu í Austurstræti 5 (R-1). Vertu áskrifandi! Ef þú vilt fá ný frímerki reglulega er best fyrir þig að vera áskrifandi að ákveðnum fjölda fyrstadagsbréfa og/eða frímerkja. Öll frímerki eru seld á nafnverði. Ef þú ert safnari geturðu fengið slíkar fastar pantanir afgreiddar gegn póstkröfu, þér að kostnaðarlausu. FRIMERKJASALAN Pósthólf 8445, 128 Reykjavík PÓSTUR OG SÍMI

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.