Æskan - 01.03.1992, Síða 53
og ýmissa hættulegra sjúkdóma og þekking á skaðsemi tóbaks hef-
ur stöðugt verið að aukast síðan. Nú er talið að milljónir manna deyi
árlega af völdum tóbaksneyslu og þetta mannfall fer vaxandi ár frá
ári.
Það er því von að margir, og ekki síst börnin, spyrji hvers vegna
ekki sé bannað að selja þessa hættulegu vöru. Við því er í raun og
veru ekkert nógu gott svar því að auðvitað ætti alls ekki að selja
hana. Ef tóbakið væri ný vara væri eflaust ekki leyft að flytja það
til landsins og selja hár - og sennilega væri það alls staðar bann-
að. Gallinn er sá að tóbaksneysla á sér langa sögu og var orðin gíf-
urlega almenn áður en menn gerðu sér grein fyrir hvað hún er hættu-
leg. Og síðast en ekki síst er tóbak ávanabindandi og flestir sem byrja
að neyta þess, í hvaða mynd sem er, eiga erfitt með að leggja það
á hilluna.
Tóbaksframleiðendur hafa líka barist eins og Ijón gegn hvers kon-
ar takmörkunum á tóbakssölu og tóbaksneyslu enda þeirra hagur að
sem flestir noti tóbak og það sem mest. Þeir hafa líka mikið vald í
skjóli auðæfa sinna og verja árlega hundruðum milljarða króna í
auglýsingar til að ná í nýja „áskrifendur" að vöru sinni.
Þó að leyft sé að selja tóbak er nú víða bannað að auglýsa það
og ýmsar skorður eru settar við sölu á því, t.d. bannað að selja það
börnum. Hér á landi eru í gildi sérstök lög um tóbaksvarnir sem
tóku gildi árið 1985. Þar er m.a. sagt að ekki megi seljatóbak þeim
sem eru yngri en 16 ára. Þessu ákvæði hefur ekki verið framfylgt
svo að viðunandi sé og þess vegna, meðal annars, hefur sú hug-
mynd að selja tóbak eingöngu í sérstökum verslunum, eins og gert
er með áfengið, notið æ meira fylgis þeirra sem vilja berjast gegn reyk-
ingum.
VILJUM EKKI LÁTA AÐRA
REYKJA OFAN I OKKUR
Alltaf eru að bætast við fleiri rannsóknir sem sýna fram á skað-
semi óbeinna reykinga. Til dæmis ertalið að maður, sem ekki reyk-
ir, en vinnur á vinnustað þar sem mikið er reykt, fái í sig reykefni
sem jafngilda því að hann reyki sjálfur á bilinu 1 -5 sígarettur á dag.
Nýjustu rannsóknir benda til þess að þeim sem eru langtímum sam-
an innan um fólk sem reykir sé hættara við að fá ýmsa reykinga-
sjúkdóma heldur en þeim sem að öllu jöfnu þurfa ekki að anda að sér
reykfrá öðrum.
Sem betur fer geta krakkar forðast sjálfir að vera mikið í tóbaks-
reyk. Ef þið eigið sérherbergi getið þið t.d. farið fram á að þar sé
ekki reykt, einnig að ekki sé reykt þar sem fjölskyldan er öll saman-
komin, t.d. við matarborðið, fyrir framan sjónvarpið, í bílnum o.s.frv.
Þetta er samkomulagsatriði og þarf ekki að beita frekju til að koma
þvítil leiðar.
Flestir foreldrar, sem reykja, gera sér grein fyrir skaðsemi reyk-
inga og þeim líður ekki vel að láta börn horfa á sig gera það sem
þeir vilja alls ekki að þau geri sjálf. Þess vegna eru margir foreldrar
dálítið leiðir þegar þeir eru minntir á þennan ósið af börnum sínum
og óánægjan virðist oft beinast gegn börnunum. Þótt foreldrarnir vilji
gjarnan hætta reykingum því að þeir vita hvað þær eru skaðlegar er
það stundum hægara sagt en gert. Erfitt getur verið að losa sig við
þennan ávana þegar einu sinni er búið að koma honum á. Við skul-
um láta það verða okkur víti til varnaðar og segja „Nei, takk!“ ef
tóbak er boðið.
(Greinin ersamin af starfsmönnum Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Fé-
lagið er eitt margra sem vinna með Æskunni að fræðslu- og getrauna-verk-
efninu, Heil á húfi. - Sjá bls. 13 í þessu tölublaði)
FÖSTUDAGUR HJÁ SMÁFUGLUNUM
Úr sýningu Álftamýrarskóla á leikritinu Föstudegi hjá smáfuglunum.
í 2. tbl. Æskunnar sögðum við frá samkeppni sem Áfengis-
varnaráð gengst fyrir milli grunnskóla landsins um sýningu leik-
ritsins Föstudagur hjá smáfuglunum eftir Iðunni Steinsdóttur.
Veglegum verðlaunum er heitið fyrir bestu sýninguna - en taka
á hana upp á myndband og senda Áfengisvarnaráði fyrir 31. des-
ember 1992.
Skólar eiga að tilkynna þátttöku í keppninni og rennur frest-
ur út 15. apríl nk.
Margir brugðu fljótt við og er Ijóst að þátttaka verður mikil.
Álftamýrarskóli í Reykjavík varð fyrsturtil að setja leikritið á svið.
Odd Stefán Ijósmyndari fór á vettvang og tók myndir af leikurum
og starfsfólki við sýninguna.
Aðalhlutverkin voru í höndum Geirs Freyssonar (Tommi),
Helga F. Sveinssonar (Jómbi) og Sólveigar Gísladóttur (Heiða
Dögg). Aðrir leikendur voru Davíð S. Þorvaldsson, íris Ellen-
berger, Tómas Ingason, Inga Jessen, Anna H. Baldursdóttir og
Elísabet Kristjánsdóttir.
Leikstjóri var Guðný Ragnarsdóttir. Reynir Jónasson annað-
ist undirleik. Hvíslari var Haraldur M. Guðnason, Sigurður K.
Hilmarsson sá um hljóðstillingu, Eiríkur Steinsson lýsingu.
Leikendur og starfsmenn ásamt Iðunni Steinsdóttur, höfundi verksins, og
fíeyni Jónassyni undirleikara. - Tónlist er eftirJóhann Mórávek.
Æ S K A N 5 7