Æskan - 01.03.1992, Page 54
STROKU
HUGLEIÐINGAR
Kæra Nanna Kol-
brún!
Ég er að verða 16
ára og er í vanda.
Þannig er að mig hef-
ur langað til að strjúka
að heiman síðan ég
var fjórtán ára en ég er
ekki farin enn.
Ég á heima úti á
landi og er því ekki ná-
lægt neinni stofnun
(eða hvað sem það
heitir) sem tekur á móti
krökkum sem eru að
strjúka.
Ástæðan fyrir því að
ég vil strjúka er sú að
mömmu og pabba er
ajveg sama um mig.
Ég er þriðja barnið
þeirra en þau ætluðu
aldrei að eiga nema tvö
börn svo að ég varð
slysabarn. Og núna
þola þau mig ekki.
En þau dekra svo við
eldri systkini mín þegar
þau koma í heimsókn
að það liggur við að
þau gangi fram af sér.
Mamma og pabbi eiga
þ/jú börn yngri en mig.
Ég má ekki koma við
þau - þá liggur við að
ég sé lamin. Hvað á ég
að gera ef ég fer að
heiman? Hvert á ég að
fara?
Gerðu það, svaraðu
mér!
Þorraþræll.
Svar:
Af bréfi þínu að dæma virð-
ist mér sem þú hafir verið leið
og döpur lengi. Það er eins og
þú hafir einangrast í fjölskyld-
unni og finnist að þú sért óvel-
komin og að engum þyki vænt
um þig. I huganum hefur þú búið
til lausn út úr þessum vanda en
hún er strok.
Hér getur verið margt á ferð-
inni sem vert er að gefa gaum
því að ekki er allt sem sýnist í
tilfinningamálum. Ég gæti trúað
að þú bærir mjög blendnar til-
finningar til foreldra þinna. Eitt af
því sem stundum er erfitt að
skilja, þegar maður er ungur, er
að það er hægt að finna til
margra tilfinninga á sama tíma
eða með stuttu millibili. Þetta
geta verið algjörlega andstæð-
ar tilfinningar, eins og t.d. ást
og hatur til sömu manneskjunn-
ar. Ég gæti trúað að eitthvað
slíkt væri á ferðinni hjá þér. Þú
ert reið við þau en í aðra röndina
langar þig til að vera litla stelp-
an sem þau hafa óskað sér og
þykir vænt um. Þetta er allt eðli-
legt.
Það getur verið að þú sjáir
eingöngu neikvæðu hliðarnar
sem snúa að þér. Athugaðu
hvað gerist ef þú sjálf reynir að
breyta samskiptum við foreldra
þína og systkini. Reyndu að vera
við þau eins og þig langar til að
þau séu við þig. Þú getur gert
þetta sem tilraun í eina viku. Oft
hafa stelpur á þínum aldri mikla
þörf fyrir að vera í góðu sam-
bandi við mæður sínar. Reyndu
að finna upp á einhverju sem þú
getur gert með mömmu þinni.
Kannski kemur það henni á ó-
vart og þá gerist oft eitthvað ó-
vænt.
Þú ert ekki ein um það að
vera barn sem er „slys“ ef það
er þá hægt að tala um slíkt í
þessu sambandi. Það eru mjög
mörg börn sem fæðast án þess
að foreldrarnir hafi ætiað sér
það. Börn, sem hafa orðið til
utan áætlunar, eru oft alveg jafn-
velkomin, þegar þau eru komin,
eins og óskabörnin. Reyndu að
gera það ekki að vandamáli. Þú
getur ekki breytt því og hvers
vegna að vera þá að eyða kröft-
unum í að reyna að breyta ein-
hverju sem er óbreytanlegt? Þá
er nú skynsamlegra að beina at-
hyglinni að þvísem hægt er að
hafa áhrif á. Þetta gildir um
flesta hluti í lífinu.
Allar stofnanir, sem aðstoða
börn og unglinga í erfiðleikum
hér í Reykjavík, reyna að gera
það í náinni samvinnu við fjöl-
skylduna. Það grundvallast á
þeirri staðreynd að öll erum við
fædd í einhvers konar fjölskyldu
hvort sem okkur líkar það eða
ekki. Rannsóknir sýna að flytji
börn í burtu frá fjölskyldunni þá
er eins og hún fylgi samt með í
huga þeirra og tilfinningum, sér-
staklega ef farið er í fússi og
reiði. Það eru margvíslegar til-
finningar sem tengjast foreldr-
um og heimili og eftir var að átta
sig á og vinna úr. Það getur
valdið sorg og erfiðleikum síðar
meir á ævinni. Þess vegna er
talið svo mikilvægt þegar ung-
lingar flytja að heiman að það
sé gert þannig að ekki sé lokað
á öll samskipti við heimilið.
Ég held að þú ættir að und-
irbúa þetta betur. Sá tími kem-
uraðþú verður tilbúin til að fara
að heiman. Það er ekki gott að
fara ef þú ert að flýja eitthvað
eða forðast að takast á við erfið-
ar tilfinningar. Hentugasti tím-
inn til þess að fara er þegar þú
hefur sett þér markmið til þess
að stefna að. Þá yfirgefurþú for-
eldrahús til þess að mæta lífinu
og vinna að því marki sem þú
hefur sett þér.
Þú ert einnig að ná þeim aldri
að þú þarft ekki að strjúka að
heiman. Þegar þú ert orðin 16
ára ræður þú dvalarstað þínum
sjálf. Þú geturþví farið að velta
því fyrir þér hvert hugur þinn
stefnir. Hvað langar þig til að
starfa? Hvað langar þig til að
læra? Hvaða möguleikar eru
skynsamleglr til þess að ná
þeim markmiðum? Þú þarft að
leita svara hjá sjálfri þér við
þessum spurningum. Einnig
væri gott fyrir þig að færa þetta
í tal vlð einhvern fullorðinn sem
þú treystir. Best væri efþú gæt-
ir talað við annað hvort mömmu
eða pabba. Þá getur oft verið
gott að nota tækifærið ef þú ert
S 8 Æ S K A N