Valsblaðið - 24.12.1966, Side 4

Valsblaðið - 24.12.1966, Side 4
2 VALUR - STARFIÐ ER MARGT - ÚR ÁRSSKÝRSLU AÐALSTJÓRNAR Stjóm félagsins á árinu 1966 var þannig skipuð: Páll Guðnason for- maður, kosinn af aðalfimdi. Hinir stjómarmeðlimir skiptu með sér verkum, þannig: Gunnar Vagnsson varaformaður, Einar Bjömsson rit- ari, Friðjón Friðjónsson bréfritari, Þórður Þorkelsson gjaldkeri. Á aðal- fundinum var sú breyting gerð á skipun stjómarinnar, að fjölgað var í henni um tvo, þannig að formenn deildanna, knattspymu- og hand- knattleiksdeildar, skyldu taka þar sæti. Komu því þeir Bjöm Carlsson og Þórarinn Eyþórsson í aðalstjóm- ina, sem formenn téðra deilda. Með þeirri skipan, sem upp var tekin fyrír nokkrimi árum, að skipa félaginu í deildir, með sérstökum stjómum og fjárhag, hefir megin forystustarfið á íþróttasviðinu færzt frá aðalstjórninni til deildanna og á hendur stjóma þeirra. Hins vegar hefir aðalstjómin alltaf verið til taks, til aðstoðar deildunum, hafi eftir þvi verið leitað og þá eins og möguleikar hafa verið fyrir hendi hverju sinni. Eins og áður getur hér að ofan, hafa þeir Bjöm Carlsson og Þórar- inn Eyþórsson veitt deildrmum for- ystu, á árínu og hefir svo verið und- anfarin ár, og rækt það forystuhlut- verk, hvor á sínu sviði, með miklum ágætum. Stendur félagið í heild í mikilli og varanlegri þakkarskuld við þessa félaga sina, svo sem við alla stjómarmeðlimi deildanna. Að öðm leyti vísast til skýrslna deild- anna. FRAMKVÆMDIR Áfram var haldið að vinna að framkvæmdum á landi Hlíðarenda, íþróttasvæðum og umhverfis bygg- ingamar, slétta og rækta, undir yfir- stjóm framkvæmda- og vallanefnd- ar, en formaður hennar er Úlfar Þórðarson. Hafizt var handa um undirbúning og byrjunarfram- kvæmdh’ á handboltavelli fyrir sunnan malarvöllinn. Er hugsað að sá völlur verði síðar malbikaður. Þá var malbikað svæðið fyrir framan íþróttahúsið, þó fyrst og fremst sem bílastæði, en hins vegar var svæðið nokkuð notað til hand- boltaæfinga á sumrinu, og gafst vel. Virðist ekkert vera því til fyrirstöðu að nota svæðið í æfingaskyni, þegar það hentar. Unnið hefir verið að þvi að gera lýsingu á malarvellinum, svo koma megi við útiæfingum að vetrinum, þegar fært er. Á sumrinu starfaði flokkur ung- linga frá Reykjavíkurborg að ýmiss- konar snyrtingu og lagfæringu á fé- lagssvæðinu, svo sem verið hefir áð- ur. Er stjómin þakklát borgaryfir- völdunum fyrir þetta. SKRIFSTOFAN Eins og áður hefir verið getið í skýrslum hefir verið talin mikil nauðsyn á skrifstofu — samastað — fyrir félagið, stjóm þess og deildar- stjómir. Vissulega hefir verið unnið að þessu máli undanfarin ár. En for- ystu um það hefir íþróttahússnefnd haft, skipuð þeim Sigurði Ólafssyni, sem er formaður, Andrési Berg- mann, Frímanni Helgasyni og Óla Ólasyni. Hafa nefndarmenn lagt mjög mikla vinnu í það að útbúa skrifstofuna og gera hana sem allra bezt úr garði, og er starfi þar að lútandi nær lokið, en smiði og gerð húsgagna og innréttingu langt kom- ið. Verður þama mjög skemmtilega og snyrtilega frá öllu gengið og að- staða öll hin prýðilegasta. f sambandi við viðhald á íþrótta- húsinu þurfti allmikil viðgerð að fara fram á gólfi hússins. En það framkvæmdu nefndarmenn sjálfir, eftir að smiður sem lofað hafði að taka það verk að sér, brást hvað eftir annað. Vom framkvæmdir af nefndarinnar hálfu, hér að lútandi, í engu lakari en að fagmenn hefðu um vélað. Auk þessa máluðu nefnd- armenn bæði klefa og ganga íþrótta- Framh. á bls. 44. Stjórn Vals á afmælisárinu. F. v.: Gunnar Vagnsson, Þórarinn Eyþórsson, form. handknattleiksdeildar, Bjöm Carlsson, form. knattspymudeildar, Einar Björnsson, Friðjón Friðjónsson, Þórður Þorkelsson og Páll Guðnason, formaður.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.