Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 46

Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 46
44 VALUR hraun, og fyrstu kvíslar Hverfis- fljóts. Þetta ferðalag var enginn leik- ur, en vélin varð að fara yfir. Með hverjum deginum sem leið varð útlitið lakara, og möguleikinn til þess að koma vélinni í loftið minni og minni. Eftir eins dægurs ægilegt strit og erfiði hafði tekizt að koma henni óskemmdri á áfangastað. Ýturnar tóku nú til við að laga til flugbrautina, sem var næstum 2 km löng, og flugmennirnir byrj- uðu að ræsa hreyfla. Vi«> komum á morguu. Þegar við í Reykjavík fréttum að ýtumennirnir væru farnir að lagfæra flugbraut á Fremri-eyrum fyrir vélina, og að flugmennirnir væru byrjaðir að reyna hreifla og tæki vélarinnar, jókst eftirvænt- ingin og spennan dag frá degi. Mundi það í raun og veru heppn- ast að fá flugvélina til að svífa á vængjum sínum til Reykjavíkur, eða mundi allt þetta erfiði og strit verða til einskis á síðustu stundu, og ef til vill enda með slysi. Allir höfðu það á tilfinningunni að hér var djarft teflt. Laugardaginn 5. maí flaug flug- vél frá Loftleiðum yfir þá leið- angursmenn og hafði samband við þá. Flugmenn leiðangursmanna sendu flugvélinni eftirfarandi skeyti: „Komum á morgun.“ Svart- sýnismennirnir hristu höfuðin og sögðu: Hroki, brjálæði. Sunnudaginn 6. maí kom bjart- ur og fagur, en vorið hafði verið seint á sér og ennþá lá snjórinn meðfram vegum til bæjarins. I dag voru nákvæmlega fjórar vikurfrá því að leiðangurinn lagði af stað í Vatnajökulsferð sína. Um morg- uninn skýrði flugfélagið frá því að jökulflugvélin ætlaði að gera tilraun til flugtaks kl. 11 þann dag og mundi vera í Reykjavík um 12 leytið. Síðar fréttist: Vind- urinn óhagstæður við Vatnajökul, blæs þvert á brautina. Maður spyr sjálfan sig: Hafa þeir ekki samt sem áður komið vél- inni á loft eða er ef til vill eitthvað verra á seiði? Enn kom frétt frá Loftleiðum: Flugvélin af jöklinum er á leiðinni, kemur eftir hálftíma. Flugvél hefur sig til flugs og fer yfir Reykjanes-fjallgarðinn á móti jökuls-flugvélinni. Þegarflug- vélarnar koma, svífa þær stóran hring yfir bæinn, og enn bíður spennandi augnablik, hvort vélinni takist lending með bæði skíði og hjól til landtöku, og sjá, það gekk prýðilega, eins og hún væri ný af nálinni. Klukkan 7 kom hin dökka flug- vél upp að húsum Loftleiða á flug- vellinum, þar sem lögreglumenn áttu fullt í fangi með að varna því að fólksfjöldinn færi ekki of langt inn á völlinn. Dyrnar á vélinni ljúkast upp og tveir sólbrenndir og skeggjaðir menn koma út, og er á móti þeim tekið með dynjandi húrrahrópi fólksins, það voru flugmennirnir — Starfið Framh. af bls. 2. hússins og dyttuðu að ýmsu, sem nauðsynlegt var að lagfæra í hús- inu, eins og gengur um byggingar, sem mjög mikið eru í notkun, meira og minna, allt árið. Sýndi nefndin mikJa fórnfýsi og dugnað í marg- þættum störfum og framkvæmdum fyrir félagið. Verður slíkur þegn- skapur og félagsþroski aldrei full- þakkaður. VALUR 55 ÁRA Á árinu varð Valur 55 ára. Á af- mælisdaginn, hinn 11. maí, var „op- ið hús“ að Hlíðarenda. Komu þar á þriðja hundrað gesta, þar á meðal menntamálaráðherra og borgarstjór- inn í Reykavík, forseti fSl og heið- ursforseti ásamt öðrum liðsoddum íþróttahreyfingarinnar. Formaður Páll Guðnason bauð gesti velkomna með stuttu ávarapi. Veitingar voru fram bomar af rausn og myndar- r.kap, undir forystu húsráðenda, lijónanna Ingvars Elíssonar og frú Guðlaugar konu hans. I byrjun apríl var efnt til árshátíðar af félagsins hálfu í Tjamarbúð, þar sem m. a. var minnzt afmælisins sem fram- undan væri. Ávarp flutti Einar Rjörnsson, en auk þess fóm fram ýmis skemmtiatriði. Aðsókn var mjög góð og tókst skemmtunin ágætlega. Alfreð Elíasson og Kristinn Ólsenr þreyttir af spennu og striti, en glaðir eins og smádrengir eftir drýgða dáð, yfir því að djörf hug- mynd varð að veruleika, en þar má þakka mannlegu áræði, góðum félagsskap, þar sem hver maður hafði gert skyldu sína, bæði þegar útlitið var bjart og eins þegar syrti í álinn. — Síðar um kvöldið kom flugvél frá Kirkjubæjarklaustri og hefur þá innanborðs stjórnanda leiðang- ursins Egil Kristbjörnsson, sem enn einu sinni hefur staðizt sína þolraun sem kjarnakarl. Aðrir fimm menn úr leiðangrinum voru þar einnig, — allir brúnir og bark- aðir, skeggjaðir og örþreyttir, en hvað gerir það til á degi sigursins. er margt FJÁRMÁLIN Eins og áður voru fjármálin eitt erfiðasta viðfangsefnið. Erfiðasti hjallinn í þvi efni er að finna ör- uggan tekjustofn. Nokkrar vonir í því sambandi eru bundnar við happdrætti ISl, sem undanfarin ár hefir efnt til landshappdrættis, þar sem aðildarfélögunum er gefinn kost- ur á að drýgja tekjur sinar, sem þó fer eftir dugnaði félaganna við að selja miðana. Vissulega á ISl ómæld- ar þakkir skyldar fyrir þetta fram- tak sitt. I ár virðist Val ætla að ganga vel með söluna og hljóta drjúgar tekjur í sinn hlut af happdrættinu. Allar líkur eru á því að Valsfélagar muni selja upp sinn skammt, sem eru um 1500 miðar. Framkvæmda- stjórn happdrættisins hjá Val, skip- uð þeim Þórði Þorkelssyni, Hólm- geiri Jónssyni og Karli Stefánssyni, hefir unnið hér ómetanlegt verk, við dreifingu miðanna og innheimtu, auk þess sem nefndarmenn hafa allir selt mikið af miðum sjálfir. VAI.SBLAÐIÐ Eins og undanfarin er kom Vals- blaðið út um jólin undir stjórn nefndar þeirrar, sem um það hefir séð um árabil, en það eru: Frímann Helgason, Einar Björnsson, Gunnar Vagnsson og Friðjón Guðbjörnsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.