Valsblaðið - 24.12.1966, Page 64

Valsblaðið - 24.12.1966, Page 64
62 VALUR Hið umdeildn mark aS veröa söguleg stað- reynd, Ingvar hefur sparkað og knöttur- inn á leið í mark. hlutur í báðum þessum úrslita- leikjum var stórkostlegur. Við- brögð hans framúrskarandi og varnarleikni með fádæmum oft á tíðum. Vissulega átti Sigurður Dagsson sína miklu hlutdeild í sigrinum, sem einn hlekkur liðs- ins. Verkefni hans var að standa vörð um markið og það gerði hann eftirminnilega. Þáttur þeirra, sem mörkin skoruðu, var ekki síður mikilsverður. Viðbrögð Reynis Jónssonar tryggðu jafntefli og úr- slitamark Ingvars sigur að lokum. En þetta er ekki sigur eins einstaks liðsmanns, heldur sigur heildarinn- ar, og um hann fer eftir samstöð- unni, samvinnunni og baráttu- þrekinu. Vissulega var hart barizt á leik- vellinum, en ekki síður á ritvellin- um þegar að því kom. Eftir fyrri aukaleikinn voru íþróttablaða- mennirnir yfirleitt sammála um, að Keflavík hefði átt að sigra. Því var haldið fram að leikurinn hefði ekki virzt geta endað öðruvísi en með sigri ÍBK, annað hefði verið ósanngjarnt. Jöfnunarmark Reyn- is hefði komið þegar enginn hefði átt von á því. Helzt mátti skilja sum blöðin svo að heppnin hefði elt Val á röndum, en óheppnin ÍBK. Enn var sagt: Svo sannarlega áttu Suðurnesjamenn skilið að sigra í þessum leik, enda voru yfirburðir þeirra ekki á einu sviði heldur öll- um. Þá fékk Valsvörnin sinn skammt: „Vörnin skipuð þung- lamalegum leikmönnum, sem ekki höfðu við hinum snöggu og lipru framherjum IBK, einnig var áber- andi hve miklum bolabrögðum vörn Vals beitti mótherja sína.“ Það verður að segjast að leitt var fyrir IBK-Iiðana að yfirburðir þeirra, ekki á einu sviði, heldur öllum, skyldi ekki nýtast þeim bet- ur en raun varð á, að viðbættum hinum snöggu og lipru framherj- Þó margt væri spaklega um fyrri leikinn sagt í blöðunum, voru það smámunir einir samanborið við umsagnir og skrif almennt um síð- ari leikinn. Þá fóru íþróttablaða- mennirnir á kostum um síður sín- ar í stórbrotnum lýsingum og skörpum athugunum á gangi leiks- ins og frammistöðu einstakra leik- manna. Meirihluti þeirra var á því að ÍBK hefði ekki átt eins góðan leik og í hinni fyrri aukakeppni. Meginuppistaðan í greinum og skrifum um leikinn bæði leikra og

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.