Valsblaðið - 24.12.1966, Qupperneq 17

Valsblaðið - 24.12.1966, Qupperneq 17
VALUR 15 Reykiaf/íkurmeistarar 1966 í handknatfleik II. fl. karla Fremri röð. Gunnar Ólafsson, Kristján Karlsson, Magnús Baldursson, Jakob Gunnarsson, Magnús Á. Magnússon, Þórarinn Eyþórsson, þjálfari. Aftari röð. Hilmar Ragnarsson, Jón Karlsson, Ólafur Jónsson, Hjálmar Sigurðsson, Kristinn Jóhannsson, Þórður Sigurðsson, Sverrir Guðjónsson. Framhald af bls 13. Hlutu 0 stig, aðeins tvö lið tóku þátt í keppninni. 1 íslandsmótinu urðu þær einn- ig nr. 2, skoruðu 26 mörk gegn 10, hlutu 6 sitg. II. flolckur kvenna A. 1 Reykjavíkurmótinu urðu þær nr. 1, hlutu 7 stig, skoruðu 21 mark gegn 10. 1 Islandsmótinu innanhúss léku þær í B-riðli og urðu þar nr. 1, skoruðu 40 mörk gegn 14 og hlutu 8 stig. Léku síðan til úrslita við Fram, sem vann hinn riðilinn, en töpuðu leiknum með 6 mörkum gegn 9. 1 íslandsmótinu utanhúss léku þær í B-riðli og urðu þar nr. 1, skoruðu 12 mörk gegn 3, hlutu 6 stig. Léku síðan úrslitaleik við Ár- mann, sem vann hinn riðilinn, og unnu Valsstúlkurnar með 6 mörk- um gegn 2. Meistarar á árinu urðu eftirtaldir floklcar: Reykjavíkurmeistarar 1965. Meistaraflokkur kvenna. II. flokkur kvenna A. íslandsmeistarar innanhúss 1966. Meistaraflokkur kvenna. íslandsmeistarar utanhúss 1966. Meistaraflokkur kvenna. II. flokkur kvenna A. Þess skal getið hér að meistara- flokkur kvenna hefur á þessu leik- ári fært félaginu tvo bikara til eignar, og eru það bikarar þeir er keppt var um í íslandsmótinu inn- anhúss og utanhúss. Og er þeim hér með þakkaður góður og fræki- legur árangur. I úrvalsliðinu léku eftirtaldir félagar: I úrvali H.K.R.R. gegn Karvina léku þeir Stefán Sandholt og Her- mann Gunnarsson. I íslenzka landliðinu, sem lék alls ellefu landsleiki á árinu, þar af sjö hérlendis og fjóra erlendis, léku þeir: Stefán Sandholt 9 leiki, Hermann Gunnarsson 7, Ágúst ögmundsson 5 leiki og Jón B. Ól- afsson 1 leik. I úrvali H.S.I. gegn liði blaða- manna léku þeir Stefán Sandholt og Hermann Gunnarsson og Ágúst ögmundsson, í liði blaðamanna léku þeir Jón B. Ólafsson og Berg- ur Guðnason. I unglingalandsliðum karla og kvenna, sem þátt tóku í norður- landamótum unglinga, léku: I karlaliði þeir Gunnsteinn Skúla- son, Bjarni Jónsson og Stefán Bergsson. í kvennaliðinu þær Sig- rún Guðmundsdóttir, Sigrún Ing- ólfsdóttir, Ragnheiður Lárusdótt- ir og Björg Guðmundsdóttir. Þátttaka meistaraflokkskvenna Vals í Evrópubikarkeppni meistaraliða. Svo sem getið var um í síðustu ársskýrslu, var ákveðið að taka þátt í Evrópukeppni meistaraliða kvenna, og urðu Valsstúlkurnar þar með fyrstar íslenzkra kvenna- liða til að taka þátt í slíkri keppni þar sem aðeins koma fram beztu lið Evrópulandanna. Þetta þótti sumum nokkuð vafa- söm ákvörðun, en okkur í stjórn deildarinnar þótti sjálfsagt að leyfa stúlkunum að reyna sig í slíkri keppni, sérstaklega með hlið- sjón af þeirra frábæra árangri á undanförnum árum bæði hérlendis sem og einnig erlendis. I fyrstu umferð mætti Valur norsku meisturunum Skogn frá Þrándheimi, og átti fyrri leikur- inn að fara fram hér, en síðari leikurinn í Þrándheimi. Sökum mikils ferðakostnaðar þótti okkur rétt að bjóða Skogn að leika báða leikina hérlendis, gegn þátttöku okkar í ferðakostnaði þeirra. Um það samdist og léku þær því báða leikina í íþróttahöllinni í Laugar- dal. Fyrri leikurinn fór fram 19. desember og lauk honum með sigri Valsstúlknanna 11:9, daginn eftir fór síðari leikurinn fram og lauk honum einnig með sigri Vals 12: 11, og þár með voru Valsstúlkurn- ar komnar í aðra umferð keppn- innar eða réttara sagt í átta liða úrslit. Nokkuð sem aðeins þeir bjartsýnustu gátu trúað. Norsku stúlkurnar fóru í kynn-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.