Valsblaðið - 24.12.1966, Page 18

Valsblaðið - 24.12.1966, Page 18
16 VALUR isferð um Reykjavík, voru boðnar í kaffi til norsku sendiherrahjón- anna og einnig' var þeim boðið til hádegisverðar af íþróttaráði Reykjavíkurborgar. Þær gistu á Hótel Sögu. Allar létu þær í ljós ánægju sína yfir komunni hing- að og voru ákaflega ánægðar með móttökurnar. Mikill spenningur var í Vals- stúlkunum eftir þessa góðu sigra, og biðu þær með mikilli óþreyju eftir að dregið yrði í aðra umferð. Loks kom tilkynningin, að Valur ætti að leika við Austur-þýzku meistarana Sportclub Leipzig og átti fyrri leikurinn að fara fram í Reykjavík. Það var ekki laust við að vonbrigða gætti meðal stúlknanna, því allar vonuðu þær, að það yrði lið frá Norðurlöndun- um og þá sérstaklega frá Dan- mörku. En við þessu var ekkert að að gera, og samið var um leikdag í Reykjavík 9. febrúar. Leikur þessi fór fram í íþróttahöllinni í Laugardal og lauk með yfirburða- sigri Leipzig 19:7. Valsstúlkurnar fóru síðan til Leipzig og léku síðari leikinn þar 20. febrúar. Leikið var í íþrótta- sal háskóla og var gólfið þar afar hált og háði það Valsstúlkunum meir en hinum. Leiknum lauk eins og búist hafði verið við með sigri Sportclub Leipzig, en tölurnar urðu hærri eða 26:9. Austur-þýzku stúlkurnar voru alveg í sérklassa og var ekki laust við að þær minntu á vel þjálfaða karlmenn, bæði í vexti og getu. Móttökur þeirra voru mjög góðar og langtum betri en okkur hafði órað fyrir, og minnti þetta okkur á hinar stór- kostlegu móttökur frænda okkar í Noregi eða Færeyjum. Þrátt fyrir allt er ekki hægt að segja annað en að þátttaka okkar hafi heppnazt sæmilega, þrátt fyr- ir tvö stór töp, en þar vegur upp á móti tveir góðir sigrar og mjög skemmtileg og lærdómsrík þátt- taka. Tap varð á þátttöku þessari pen- ingalega og það meira en reiknað var með, en eins og áður er sagt þá áttu dömurnar þetta vel skilið, og eru reynslunni og ánægjunni ríkari. Fararstjóri í ferðinni var gamall félagi í Val, Barði Árna- son, bankafulltrúi. Reyndist hann fullkomlega starfinu vaxinn og er ekki of mikið sagt, að hann hafi verið sá sem kallast getur hinn fullkomni fararstjóri, án hans, að öllum öðrum óreyndum og ólöstuð- um, hefði ferð okkar ekki heppn- azt svo vel. Viljum við hér með þakka honum sérstaklega skemmti- legt og fórnfúst starf í sambandi við komu og mótttökur hinna þýzku gesta og að lokum þökkum við honum einnig fyrir hönd þátt- takenda skemmtilega kynningu og stórkostlega fararstj órn. Aðrir þátttakendur í ferð þess- ari voru: Formaður deildarinnar og þjálf- ari m.fl. kv. Þórarinn Eyþórs- son og keppendur: Guðbjörg Árnadóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Sigrún Ingólfsdóttir, Björg Guðmundsdóttir, Ragnheiður Lárusdóttir, Hrafnhildur Ingólfsdóttir, Erla Magnúsdóttir, Ása Kristjánsdóttir, Kristín Jónsdóttir. Þá þökkum við öllum þeim sem studdu okkur bæði við auglýsinga- söfnun í leikskrár og á annan hátt, okkur til ómetanlegrar hjálpar. Að lokum má geta þess að Aust- ur-þýzku meistararnir „Sportclub Leipzig" unnu heimsmeistara- keppnina með miklum yfirburð- um, og er rétt að skoða frammi- stöðu okkar kvenna í því ljósi. Skemmti- og fræSslufundir. Ekki var nú mikið líf í skemmt- unum á s.l. vetri og kann að vera að þar hafi mest um ráðið, hve mikið er um keppnir og starf deild- arstjórnarinnar er það erilsamt, að skemmtifundir urðu heldur út- undan. Á þessu er ekki breytinga að vænta fyrr en að flokkarnir taka þetta meira upp á sína arma eða jafnvel komandi stjórn skipi sérstaka skemmtinefnd handknatt- leiksdeildar. Um fræðslufundina er það að segja, að þeir voru með meira móti og voru þeir algjörlega á herðum þjálfaranna. Ferðalög og heimsóknir. Um ferðalög Valsmanna og kvenna var nú heldur lítið, farið var þó með hóp af telpum upp í Valsskála í sumar og mun láta nærri að um 40 telpur hafi tekið þátt í ferðinni. Dvalið var í skálan- um yfir eina helgi og farið þar í handknattleik og ýmsa aðra leiki. Telpurnar höfðu mikla ánægju af þessari fyrstu dvöl sinni í Sleggju- beinsdal. Aðrir flokkar Vals héldu kyrru fyrir hér í höfuðstaðnum á tíma- bilinu. Aftur var meira um heimsóknir til okkar, bæði á s.l. vetri svo og í sumar. Dvöldu hér flokkar kvenna nokkrum sinnum frá Akureyri, þá kom einnig m.fl. kvenna frá Nes- kaupstað og dvaldi hér. Fjáraflanir. Það má ef til vill segja að fjár- hagur deildarinnar sé sæmilegur, en ekki er það nú ef öll sú sjálf- boðavinna sem gefin er væri borg- uð, þá hefði orðið mikið rekstrar- tap á deildinni. Deildin hafði svo sem undan- farin ár sölutjald 17. júní niður í miðbæ og varð hagnaður heldur minni en í fyrra. Þá réðist stjórn deildarinnar í að standa á bak við komu hljóm- sveitar frá Englandi hingað til lands. I fyrstu var fyrirhugað að þar yrðu á ferðinni The Kinks og áttu þeir að halda hér hljómleika í september, en þeir forfölluðust á síðustu stundu. Tókst þá að fá aðra enska hljómsveit, þ. e. a. s. Hermans Hermits og héldu þeir hljómleika hér 7. og 8. október og tókust þeir ágætlega. Ekki hefur þetta verið gert upp enn og mun það fylgja ársskýrslu næsta tímabils, þar sem þessi skýrsla nær aðeins til 30. septem- ber. Um aðrar fjáraflanir var ekki að ræða á tímabilinu. Lokaorð. Okkur er það ljóst í fráfarandi stjórn, að starfið í handknattleiks- deildinni er orðið það viðamikið og margþætt, að nokkrir menn anna þessu ekki lengur í sínum

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.