Valsblaðið - 24.12.1966, Page 21
VALUR
19
Óli B. Jónsson 8 sinnutn með
ísiandsbikarinn
Þrír af brautryðjendunum. — stofnendunurn — á 55 ára fagnaðinum, f. v.: Fil-
ippus Guðmundsson, Guðbjörn Guðmundsson og Hallur Þorleifsson.
Þess ber liðin tíð í sögu félagsins
fagurlegan vott og sannar svo
ekki verður um villzt að hug-
myndaríkir dugnaðarmenn hafa
haldið um stjórnvölinn og stýrt
dáðríku liði í sólarátt. Þar um
vitna miklar og margslungnar
framkvæmdir, bæði í íþróttastarfi
og verklegu tilliti, hús og víðir
vellir.
Stofndegi Vals hinn 11. maí
1911 er svo lýst: Heiðskír himinn
hvelfdist blár og fagur yfir sól-
merlað láð og lög, yndislegur dag-
ur með vor og gróanda í lofti.
Stofndaginn bar uppá Uppstign-
ingardag, og 50 árum síðar, en
hvorki fyrr né síðar, á þessum
hálfrar aldar ferli, undirstrikaði
tilviljunin stofndaginn og minnti
á hann, m. a. með því að láta aft-
ur bera uppá Uppstigningardag.
Vissulega er þetta táknrænt, ekki
síður en svo margt annað sem við
ber í sögu þjóða, félaga og ein-
staklinga.
Ljúkum svo þessum fáu orðum
með því að bera fram þá ósk, að
um alla framtíð megi heiðríkja
stofndagsins lykja um allt starf og
stefnu Vals jafnt í íþróttalegu sem
félagslegu tilliti og mótast af hinni
sönnu upphafningu til síaukinna
dáða.
— á 20 ára starfsferli sem þjálfari — og
þrisvar að auki sem leikmaður með KR.
Mynd sú sem hér birtist ásamt meðfylgjandi
grein, kom á íþróttasíðu dagblaðsins Vísi, hinn 4.
okt. s.I. og er þaðan fengin, með góðfúslegu leyfi
ritstjóra íþróttasíðunnar, Jóns Birgis Péturssonar,
hins þjóðkunna íþróttablaðamanns, en hann skrif-
aði greinina.
*
★ Islandsbikarinn lenti í höndum Valsmanna í ár.
Og hér er Árni Njálsson, fyrirliði Vals, með hinn
fagra grip, en þetta er í annað sinn á löngum knatt-
spyrnuferli, sem Árni hreppir íslandsbikarinn, —
fyrst var það fyrir 10 árum og svo nú. Hvort Árni
vinnur bikarinn með liði sínu 1967 skal með öllu
ósagt, en benda má á að beztu varnarmenn Vals
hafa ekki hætt knattspyrnu fyrr en í fulla hnefana
og má þar benda á Sigurð Ólafsson og Frímann
Helgason, en báðir hættu knattspyrnuiðkun sinni og
þátttöku í meistaraflokksleikjum eftir áratuga starf.
★ Óli B. Jónsson þekkir „bikarinn" öllu betur.
Sjálfur vann hann bikarinn með KR-liðinu þrisvar
sinnum, þegar hann var leikmaður, og eftir að hann
varð þjálfari hefur það verið segin saga að hans
lið hafa verið sigursæl. Nú er tuttugasta starfsári
Óla sem þjálfara að ljúka og í 8 skipti hafa lið hans
orðið íslandsmeistarar. Geri aðrir betur. Sennilega
mun Óli verða þjálfari Vals næsta tímabil, en að
því loknu kveðst Óli hafa í hyggju að draga sig í hlé
frá erilsömu og bindandi aukastarfi, sem þjálfunin
er og hefur verið hjá honum.
Gripur í öruggum höndurn!