Valsblaðið - 24.12.1966, Side 23

Valsblaðið - 24.12.1966, Side 23
VALUR 21 Mér þótti alltaf gaman að pall- inum þar, sem við skólakrakkarnir hentum húfunum okkar á, þegar við fórum upp stigann. Laugaveg- inn þekktum við vel, því við áttum eftir að búa á tveimur stöðum öðr- um þar áður en við fluttum sunnar í bæinn, á SpítalastígogBergstaða- stræti. Um áhugamál mín í æsku er ekki mikið að segja. Við, ég tala oft um ,,við,“ og á ég þá við okkur bræðurna, því við vorum mikið samrýndir, vorum í Sunnudaga- skóla KFUM, og í tóbaksbindindis- félagi fimleikakennara okkar, Steindórs Björnssonar frá Gröf. Einnig var ég í öðru bindindisfé- lagi, Æskunni, og þar komst ég talsvert hátt, varð kapellán, lék þar m.a. í leikriti, sem ég hefði sennilega ekki átt að gera. Ég man það að ég var einn af aðalleikend- um, átti að vera dálítið fyndinn og m.a. mismæla mig á Apóteki og apaketti! Annars var áhuginn allt- af mestur fyrir knattleikjum, handbolta og fótbolta. Það var oft erfiðleikum bundið að eignast bolta, því efnin voru lítil, en það var þó alltaf einn ör- uggur tekj uöflunardagur árlegaog var það Bolludagurinn. Hann var skipulagður til tekjuöflunar, og það var nákvæmlega reiknað út, að fenginni reynslu, hver það væri, sem borgaði mest fyrir flenging- una, það var allt frá 25 aurum upp í eina krónu. Ég man eftir því, að Árni heitinn Gunnlaugsson, járn- smiður á Laugavegi 71, var einna örlátastur, hann gaf alltaf krónu. Við reyndum að forðast þá, sem gáfu bollur, því það var lítils virði á móti peningunum, og dýrmætur var tíminn, því ekki var um nema svo sem klukkutíma að ræða, sem við gátum gengið í hverfið. Fyrir þessa peninga voru svo keyptir handboltar í sterkum litum. Fyrsti fótboltinn okkar sem skotið var saman í, mun hafa kostað 7 krón- ur. Allt spark var alveg skipu- lagslaust hjá okkur þangað til að Sigurbergur Elísson, síðar verk- stjóri, safnaði okkur nokkrum sér yngri strákum saman, og stofnaði „Fótboltafélagið Gretti,“ sterkt skyldi það vera! Við spörkuðum fyrst á lóð á suðvesturhorni Lauga- Jón Sigurðsson. Heiðursfélaginn, áhlaupamaðurinn, skipuleggjandinn á liinum erfiðu tímum. vegs og Barónstígs.Hinsvegarfóru aðalæfingarnar og keppnir fram á Skelltúninu, sem var austan og sunnan við Barónshúsið svokallaða, sem þá stóð eitt sér á svæðinu milli Barónsstígs og Rauðarárstígs. — Svona spark var á þeim tíma al- gjör nýlunda fyrir drengi á þess- um aldrei. Islenzk knattspyrna var að verða til. Stórveldin KR og Fram voru nýbyrjuð að keppa í fyrsta aldursflokki, og Valur var að fæðast og Víkingur mun hafa orðið til um svipað leyti og Fram. Við vorum mikið þarna á túnun- um, og stálumst vitanlega til þess og vorum fljótir að hlaupa þegar við sáum eigandann koma. Aldrei voru mörkin önnur en steinar eða húfur, eða eitthvað lauslegt, og var auðvelt að hlaupa frá því. Þetta var nú fyrsta eða fyrra fótbolta- félagið, sem við vorum í, og keppt- um þá ýmist við Njálsgötuna, Grettisgötuna eða þá Hverfisgöt- una, en það var sjaldan rnikið ris yfir þeirri keppni. Á þeim tíma sem við vorum í Gretti, bárum við út Vísi að sumar- lagi, Ámundi og ég, og ákefðin var nú einn dag svo mikil í keppninni, að við hirtum ekki um að koma tímanlega í Vísisútburð- inn. Þá tók mamma okkur niður í þvottahús og flengdi okkur á gaml- an máta, rassskelti okkur dyggi- lega, hún hefur sennilega gert það oftar, en ekki man ég þó eftir því, en þessi flenging var ábyggilega sú síðasta. Við komum ekki of seint í Vísisútburð eftir það. Mamma reyndi að kenna okkur skyldu- rækni í hvívetna, og við höfðum gott af þessari flengingu. Ég man eftir annarri refsingu, sem vel mætti segja frá, af því að hún hef- ur aldrei liðið mér úr minni. Það var í barnaskóla, þegar ég var í skriftartíma hjá fröken Arason. Hún talaði við mig, þar sem ég sat við skriftir og spurði mig einhvers, en ég svaraði og hafði fingurinn fyrir munninum. Þá gaf hún mér þennan rokna löðrung og sagði: „Maður talar ekki með fingur fyr- ir munni,“ það hef ég ekki gert síðan. Eg held því að réttar refs- ingar á réttum tíma eigi rétt á sér í vissum tilvikum. Knattspyrna okkar varð nokkuð betri þegar við fluttum neðar á Laugaveginn og tókum í notkun annað svæði, sem var barnaleik- völlur, þá alveg nýr, við Grettis- götu. Við Laugavegs-búar klifruð- uðum yfir vegginn að neðanverðu og höfðum þarna skemmtilegustu knattspyrnu, sem ég man eftir frá þessum árum, og mikið skemmti- legri en sú knattspyrna, sem var betur skipulögð síðar meir. Þarna var völlurinn heldur blautur, og vorum við ósjaldan með svarta samvizku, þegar við komum heim. Til þess að lagfæra hana svo- lítið, skutum við félagarnir sam- an í skóbursta og skósvertu, og geymdum þetta undir þakskeggi á litlum skúr, sem stóð við leikvöll- inn. Við höfðum líka nál og enda, því það gat komið gat á sokk, og alltaf bezt að geta komið heim sem fínn maður, og enn vorum við ekki vaxnir upp úr stuttbuxunum. Annars tók móðir okkar óhöppum af þessu tagi alltaf furðu vel, þrátt fyrir hið mikla annríki sem hún hafði. Þú gerðist ungur Væringi, var það ekki? Um þessar mundir gerðist ég Væringi ellefu til tólf ára gamall, og það var innan KFUM. Þar var

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.