Valsblaðið - 24.12.1966, Side 26

Valsblaðið - 24.12.1966, Side 26
24 VALUR eða á hlaupaæfingu annarsstaðar á sunnudögum allan veturinn, nærri sama hvernig viðraði, og þær æfingar og loks þjálfleikfimin undir stjórn ágætra leikfimis- kennara, gaf nauðsynlegt þol. Það er erfitt að lýsa því, hvemig mér var innanbrjósts meðan leikur KR og Vals stóð yfir þetta júní- kvöld 1930. Eins get ég ekki lýst gleði minni þegar þeim leik lauk með sigri Vals 2:1. Þar hafði draumur okkar ræzt, langþráður draumur, að koma Val í fremstu röð. Og minnisstætt verður mér sigurmarkið, sem Jóhannes Berg- steinsson skoraði, ekki aðeins fyrir það að það gerði út um leikinn, heldur af því hve snilldarlega það var gert. Hann fékk langa send- ingu frá hægra kanti fram og inn undir vítateiginn. Jóhannes sér hvar knötturinn muni koma niður, hleypur þangað í áttina að marki KR og áður en knötturinn snertir völlinn, fleytir Jóhannes honum viðstöðulaust með fastri spyrnu inn í netið. Minnisstæð ferðalög á vegum íþrótta? Ég minnist ferðar, sem ég fór með togara til Skotlands í desem- ber 1928. Kom fyrst til Aberdeen og fór þaðan í heimsókn til eins af mínum beztu vinum, sem var þá búsettur, og er enn nálægt Glas- gow, en honum kynntist ég, þegar Glasgow University Football Club kom hingað það ár og keppti hér. 1 þessari ferð var mér boðið til mikillar veizlu hjá Glasgow Uni- versity F.C. og var þar heiðurs- gestur. Ég fékk þar afhentan bik- ar sem gjöf til íslenzkra knatt- spyrnumanna, síðar kallaður „Skota-bikarinn," og var lengi keppt um hann hér. Minnisstæð verður mér för Vals til Danmerkur 1931, en í þeirri ferð var keppt í Færeyjum og svo víða í Danmörku. Saga hennar hef- ur áður verið skráð, en ferðin var Val til sóma og öllum þátttakend- um til óblandinnar ánægju. Undir- búningur að þessari för var ákaf- lega skemmtilegur, þar sem við héldum sérstaklega vel hópinn, skiptumst t.d. á um að efna til kaffi- og kökufunda hjá þeim, sem höfðu aðstöðu til þess, og ræddum ákaft þessa fyrstu ferð íslenzkra knattspyrnumanna til meginlands Evrópu. — Hrólfur Benediktsson prentaði fyrir okkur lítið söngva- hefti, sem við höfðum með í ferð- ina og við æfðum einnig fjöruga söngva áður en farið var. Það fór líka svo, að við vöktum athygli fyr- ir glaðværð þegar við ferðuðumst með járnbrautarlestum, því það er óvanalegt að heyra farþegana syngja fullum hálsi í slíkum farar- tækj um. í sambandi við ferð þessa er vert að minnast á knattspyrnu- skáldsöguna „Keppinauta," sem sr. Friðrik hafði samið og heimilaði okkur að gefa út, til þess að afla fjár til fararinnar. Bók þessa vor- um við búnir að selja áður en hún kom út! Þar var Halldór heitinn Árnason duglegastur eins og svo oft áður í svipuðum málum fyrir Val. Hverjir eru þér minnisstæðastir samherjar í Val? Ég átti því láni að fagna, að eiga marga góða samherja og eru margir mjög minnisstæðir. Af þeim sem látnir eru koma fyrst í hugann Axel Gunnarsson, sem ég hef áður minnzt á. Guðmundur H. Pétursson, þjálfari okkar, Halldór Árnason, Dolli, eins og við kölluð- uðum hann, sem alltaf var tilbúinn að vinna fyrir Val, og gerði það af stakri einlægni og ósérplægni. Pétur Kristinsson, góður sam- starfsmaður og traustur á leikvelli, Björn Sigurðsson, læknir, prúður og ágætur félagi, Jón Kristbjörns- son, sem dó af meiðslum er hann hlaut í leik, og svo auðvitað Ólafur bróðir minn. Ótal fleiri nöfn vildi ég nefna, sem komið hafa við sögu Vals fyrr og síðar, en þori ekki að byrja á að telja þau upp. StarfaSir þú í stjórn annarra íþróttaaSila en Vals? Ég var um 7 ára skeið í Knatt- spyrnuráði Reykjavíkur, þar urðu ósjaldan nokkur átök á fundum, aðallega um það hvort ætti aðtúlka lögin og reglurnar alltaf á sama hátt eða ekki, hverjir sem í hlut áttu. Þetta kom einnig fram í stjórn ISÍ, en þar var ég í tvö ár. Af samstarfsmönnum mínum í KRR og ÍSl minnist ég helzt Ben. G. Waage, Erlendar 0. Pétursson- ar og Kjartans Þorvarðssonar, sem var fulltrúi Fram í KRR. Þegar ég svo kom heim eftir langa fjarveru, voru menn svo elskulegir að kjósa mig í stjórn Knattspyrnusambands Islands, en þá fann ég að ég hafði misst hlekk úr, sem ekki varð fund- inn aftur, í sambandi við knatt- spyrnuna hér. Ég þekkti ekkert þessa menn, sem nú voru, nema formanninn, Agnar Kl. Jónsson, sem var gamall vinur minn. Ég gat ekki fundið aftur þann áhuga fyrir knattspyrnunni, sem ég hafði áður, af því líka að það voru mörg önnur verkefni, sem bundu mig strax, þegar ég kom heim. Sápari — sendill — bar kol — muldi grjót o.fl. — Námsþrá og störf í æsku. Eins og áður er sagt frá varð móðir mín snemma ekkja. Hún lagði nótt við nýtan dag að gera okkur bræður sem bezt úr garði, og eins og oft vill verða, því mið- ur, skildi ég of seint hve mikið hún lagði á sig til þess. Hún lét okkur ganga í áðurnefndan forskóla hjá Samúel skrautritara, hún lét okk- ur á barnaskólaaldri ganga á dans- skóla og hún lét okkur Ámunda læra á orgel og síðar á píanó. Hún ákvað að Ámundi færi á verzlunar- skóla, og við Ólafur í Menntaskól- ann, alveg eins og okkur langaði til. Var það satt að segja mikil bjartsýni, þar sem mamma stóð ein með okkur þrjá drengina. Að sjálfsögðu mundum við hjálpa til við öflun tekna, og snemma vorum við farnir að vinna. Ég var t.d. 9 ára þegar ég fyrst fór að vinna fyrir kaupi, og gerðist sápari hjá Gísla Sigurðssyni rakara, sem nú er á Selfossi. Sápaði ég allan dag- inn þá menn, sem átti að raka. Var vinnutíminn langur, t.d. til kl. 22 á laugardögum. Þetta fannst mér leiðinlegt verk. Launin voru 1 króna á dag og þótti ekkert lítið ég held ég fari rétt með það. Gísli var skemmtilegur og var mér afar góður. Tók mig t.d. með sér í vikufrí austur í ölves. Við fórum í póstvagni, með blæjum yf- ir og á hliðum. Ég horfði alltaf

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.