Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 30

Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 30
28 VALUR flugvélin elt þá með skothríð. Þeg- ar við komum á staðinn, greip mig fyrst örvilnun að sjá þarna dauða og særða menn liggjandi dreift um svæðið. Þarna reyndust vera 24 dánir og 78 særðir, sem lágu í blóði sínu. Ægileg hugsun leitaði á mig. Hvar á ég að byrja, að hverjum á ég fyrst að snúa mér? Þá sé ég að þar er Hartvig Han- sen, starfandi læknir í bænum, hann hafði komið fyrstur á stað- inn og var byrjaður að gefa hin- um særðu sprautur til að lina þján- ingar þeirra. Þá varð mér að orði: Guði sé lof, Hansen hefur ekki gleymt morfíninu, eins og við hin höfðum gert. Við skiptum svo með okkur verkum þannig, að hann sá um sprauturnar, en við frá hæl- inu sáum um undirbindingar, og upp frá því unnum við markvisst. Erfitt var þó við svona aðstæður að gera sér ljóst hvar þörfin væri mest. Brátt fóru sjúkrabílar að koma og flytja hina særðu á sjúkrahús, og á hælinu, sem ég vann, fylltum við alla ganga, og reyndum að koma öllu sem bezt fyrir. Þarna var að verki ensk flugvél, sem hafði af misgáningi ráðist á venjulega farþegalest. Á enga af þessum atburðum var minnst einu orði í blöðunum. „Sigrar lítilsvirrti ef iélagsandinn er rlcki góSnr." Telur þú íþróttir og félagsstörf æskilega tómstundaiöju? Ég tel íþróttir mjög æskilega tómstundaiðju fólks á öllum aldri, og ekki sízt á æskuárum. Skyn- samleg íþróttaiðkun er hverjum manni heilsubót, hún eykur vellíð- an og styrkir eins og kunnugt er hjarta, lungu og vöðva, og eykur þannig hreysti og þol manna, mýkt í hreyfingum og snarræði. fþrótta- iðkunum fylgir oft einnig áhugi fyrir útivist, og hollu lofti, og heilbrigðu iíferni. Þessar íþrótta- iðkanir eru þeim mun mikilvægari fyrir þjóðina, sem að fleiri vinna starf, sem ekki er líkamlegt erfiði, hafa innisetur, og hreyfa sig lítið. Ennfremur því meir sem verður af óhollu skemmtanalífi, sælgætis- áti, vindlingareykingum og á- fengisnotkun. Ég vil einnig benda á að félags- starfið í íþróttafélögunum þroskar einstaklingana, þ.e.a.s. ef sam- vinna, samheldni og félagsandi er góður. Þeir eru án efa margir, sem minnast með þakklæti verðmæta, sem þeir hafa öðlazt við störf í íþróttafélögum, þroska sem þeir hefðu ef til vill ella ekki fengið á annan hátt. Samskipti manna í íþróttalífinu innan eigin félags og við menn úr öðrum félögum, eru með sérstökum hætti. Margir á mínum aldri munu kannast við, að þeir hafi í æsku eignazt vini, sem ekki gleymast og sem heldur ekki má gleyma. Auk þess verður eftir sjór af minningum og sem betur fer lifa þær skemmtilegu lengur en hinar. Hinsvegar vildi ég segja, að ef ekki er góð samvinna og vinsam- legur andi, á félagslífið ekki rétt á sér. Rígur, ósætti, bolabrögð og afbrýðisemi eyðileggja ekki aðeins sjálft félagslífið, heldur spillir það einnig einstaklingnum. Sama er að segja um óreglu og óhollt félags- líf. Sigrar eru lítilsvirði ef félags- andinn er ekki góður eða ef dreng- lyndi er ekki ríkjandi og karl- mennska til að taka sigrum og ó- sigrum, svo sem vera ber. Já, jafn- vel óréttlæti, eins og alltaf getur hent á leikvelli. Vinna þarf að samheldni, nánum kunningsskap, og helzt vináttu með þeim félags- mönnum, sem saman þurfa að vinna, finna málefni eða takmark, sem þeir fá áhuga fyrir og vilja gefa eitthvað af sjálfum sér til að ná, þ.e.a.s. að leggja sameiginlega fram vinnu í því skyni, og vænta ekki, að aðrir rétti það upp í hend- urnar. Þetta er sennilega öllum ljóst og eins að það er auðveldara sagt en gert. En ef ég skil hlutina rétt, þá þarf að efla aga og reglu- semi innan íþróttahreyfingarinn- ar. Ert þú ánægður með þá stefnu, sem félagsmál Vals tóku, er þú lézt af störfum fyrir félagið? Ég fór beint frá störfum í Val og fluttist til Danmerkur og frétti þangað um stórsigraVals, ogfregn- ir af því, hvað Valurbaraf íknatt- spyrnu var stolt mitt í Danmörku. Síðan hefur margt gerzt, hvert stórvirkið af öðru verið unnið. Fé- lagsstarf stóraukið, margir sigrar unnir, íþróttasvæði keypt, byggðir þar malar og grasvellir, glæsilegt íþróttahús byggt, og ólíkt þeim skúr með köldum steypiböðum, sem við í bjartsýni okkar fyrir 30- 40 árum sáum í hyllingum. Sann- arlega hafa draumar okkar rætzt eins og í æfintýri. Ég hefi undr- azt og dáðst að þeirri elju og fórn- fýsi, sem viss hópur starfandi Valsmanna hefur sýnt. Styrkur Vals nú er fyrst og fremst þessum hópi að þakka. Heiðrið þessa menn eins og þið hafið heiðrað mig. Ég er af hjarta þakklátur fyrir þann sóma, sem Valur hefur ætíð sýnt mér og þó þakka ég mest trygga vináttu gömlu félaganna. F. H. 8Jr dagbók á skemRTBti- ferðaskipinu „Baltika“ Á Miðjarðarhafi 2. okt. kl. 9 að morgni: Sigur Knattspyrnufélagsins Val- ur í íslandsmótinu, daginn áður, þaut eins og eldur í sinu um allt skipið, vann Keflavík 2:1. Fjölmargir Valsmenn og Vals- unnendur fögnuðu sigrinum. Hermann Hermannsson, gamal- kunnur snillingur í marki Vals, fékk loftskeytamann skipsins til að fregna um úrslit í mótinu. Baltika, 2. okt. kl. 21. Valsmenn safnast saman í há- tíðasal skipsins, og er skálað fyrir sigri Vals. Var þar margt manna samankomið, og skemmtu menn sér hið bezta. Sungnir voru Vals- söngvar, og Hermann Hermanns- son sagði gamansögur, og var gerður góður rómur að. Stóð sam- kvæmið langt fram á kvöld. Baltika, 2. okt. kl. 23. Hermann Hermannsson gengur meðal gesta og býður í nefið, aldrei þessu vant.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.