Valsblaðið - 24.12.1966, Side 34

Valsblaðið - 24.12.1966, Side 34
32 VALUR sínu góðlátlega brosi. Eftir stund- arþögn heldur hann þó áfram og segir: Mér hefur verið sagt, að ég sé fæddur í Vesturbænum og að ég hafi farið þaðan hálfs árs gam- all, vafalaust af því að mér hef- ur leiðzt þar! Ég man sem betur fer ekki eftir þessu og tel mig hreinræktaðan Austurbæing og hef ekki viljað halda því mikið á loft, hvar ég kom í heiminn. Af hverju varst þú um langt skeið kallaður Siggi Guðrúnar? Ég veit ekki, hvort ég á að fara að rifja það upp hér, það hefur enginn gaman af því, það er líka allt of löng saga, en ef þú endilega vilt, þá get ég sagt hana í fáum orðum. Veturinn 1918 geysaði hér mannskæð farsótt sem nefnd var „Spánska veikin“. Móðir mín tók sótt þessa og dó úr henni, og mun ég þá hafa verið um það bil eins og hálfs árs. Þetta voru erfiðir tímar, eins og margar frásagnir greina og stóð nú faðir okkar einn uppi með okkur þrjú systkin, og því miklir erfiðleikar um allt heim- ilishald, þar sem ung börn voru. Á þessum erfiðu tímum, þar sem veikin lagði f jölskyldurnar í rúm- ið, var mikillar hjúkrunar þörf og aðstoðar við veika og svo börn, sem voru föður- eða móðurlaus, og þar sem bæði faðir og móðir voru dáin, var starfandi sérstök hjúkrunarnefnd, sem hafði Mið- bæjarbarnaskólann til umráða fyrir veikt fólk. Nefnd þessi tók einnig að sér að greiða götu barna, sem koma þurfti í fóstur eða uppeldi, þar sem foreldrar, annað eða bæði, voru fallin frá, og var þessum börnum safnað saman í Miðbæjarbarna- skólanum, þar sem þau fengu að- hlynningu og þar sem þau voru til sýnis fyrir þá, sem vildu taka þau og annast. 1 frásögn frá þess- um tímum er þess getið, að fólk hafi sýnt mikla hjálpsemi og að börnin hafi alltaf „gengið út“ ef svo mætti orða það. Þannig mun það hafa verið með föður minn, að miklir erfiðleikar steðjuðu að honum eins og svo mörgum öðrum, að rétt þótti að reyna að koma mér í uppeldi, og þá var farið með mig í skólann eins og önnur börn. „Fjarkinrí' — vörnin alræmda í Liði Vals fyrr á árum, og hér er Sigurður Ólafs- son með höfuð og herðar yfir hina. Þá er það, að Guðrún Sigurðar- dóttir og maður hennar koma í skólann með það í huga að taka barn í uppeldi. Hún hafði áður átt son, en hann drukknaði, nokkuð mörgum árum áður, og var hún barnlaus. Þegar Guðrún kom í skól- ann að þessu sinni átti hún ekki mikilla kosta völ, því ég var þá einn eftir þeirra barna, sem í fóst- ur áttu að fara, að því er mér hef- ur verið sagt. Þannig vildi það til að ég ólst upp hjá Guðrúnu. Hún missti svo mann sinn 1921 og hélt ég áfram að vera hjá henni. Þar sem Guðrún var nú ein með heim- ilið munu leikfélagarnir á götunni hafa tengt nafn mitt við Guðrúnu, og var því lengi kallaður Siggi Guðrúnar! Fórst þú ekki í strákafélag? Jú, á Hverfisgötunni innan- verðri var öflugt strákafélag sem kallað var Þrándur og var æft alla daga ýmist á Vitatorgi eða á tún- um, sem voru þar sem P. Stefáns- son & Co er nú, eða fyrir ofan Hörpu. Keppt var við Fálkann á Grett- isgötunni, Leiknir á Bergþórugöt- unni, og svo var farið árlega upp í Mosfellssveit og leikið við stráka þar, en fyrir því munu þeir Grím- ar Jónsson og Karl bróðir hans hafa helzt staðið. Þetta voru stórkostlegar keppnisferðir, og skemmtilegar. Hvenær gekkst þú svo í Val og fórst að æfa fyrir alvöru? Það leið nú langur tími þangað til að ég gat farið að æfa af alvöru og kom það til af því að ég var í sveit í mörg sumur og vann að heyvinnu. Guðrún fósturmóðir mín vann fyrir sér og sínum með búrekstri og hafði bæði kýr og hesta. Tók hún 2—3 kaupamenn og álíka margar kaupakonur til heyvinnunnar, sem var um margra ára skeið, og fékk hún engi til slægna uppi í Kjós. Heyið var svo lengi framan af flutt á bátum hingað til bæjarins, en síðar komu svo bílar til heyflutninganna. Það var því helzt á vorin og haustin sem maður gat stundað knattspyrn- una að nokkru ráði. 1 Val mun ég hafa gengið 1927, er ég kom úr sveitinni eða hey- skapnum, þá 10 ára gamall. Þá var það, að Magnús Bergsteinsson kemur til mín og segir við mig: Nú förum við til hans Sæma í Libba (Liverpool verzl.) og þú lætur skrifa þig inn í Val, en Sæ- mundur var þátttakandi og starf- andi í félaginu. Og þar með hafði ég stigið þetta örlagaríka skref. Hvenær byrjar þú svo að keppa fyrir Val? Það var ekki fyrr en 1929 að mig minnir, því alltaf togaðist á um mig áhuginn og viljinn að æfa og leika mér í knattspyrnu og hins vegar skyldan við heyskapinn og hina dugmiklu og góðu fósturmóð- ur mína. Við þetta bættist svo, að á vorin var ég oft í vegavinnu með hesta Guðrúnar, var þá „kúskur“ eins og þeir voru kallaðir, sem teymdu hesta, sem beitt var fyrir malarvagna í vegavinnunni, og var þá oftast uppi í Kjós, með þeim Kjósarmönnum. Um helgar hjól- aði ég svo í bæinn og fermingar- árið man ég, að þá var ég á splunku-nýju hjóli og ekki ama- legt að „rúlla“ þetta á milli. Fleira kom til, sem gerði mér erfitt um æfingar og að stunda knattspyrn- una eins og hugurinn girntist. Þar sem svona mikill búpeningur var á fóðrum stóran hluta ársins

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.