Valsblaðið - 24.12.1966, Qupperneq 44

Valsblaðið - 24.12.1966, Qupperneq 44
42 VALUR björgunin vel. Þann 25. sept. var gerður út leiðangur til að bjarga munum o.fl. úr vélinni og ætluðu Varnarliðsmenn að senda sérstaka björgunarflugvél, sem þeir og gerðu, en hún festist þar, og snjó- aði í kaf og var þar með af öllum talin töpuð. Því miður er ekki rúm fyrir alla frásögnina, sem þó er æfintýri lík- ust, og eins og fyrr segir aðeins tekinn kaflinn um björgun björg- unarflugvélarinnar eins og Árni G. Eylands skýrir frá, og Egill segir að ekki hafi birtzt í ísl. blöðum. Ujörf áœtlau. Bandaríkjamennirnir drógu strik yfir hinn misheppnaða hjálpar- leiðangur og álitu björgunarvélina glataða. Flugfélagið Loftleiðir voru á annarri skoðun og ungir, dugmiklir menn veltu fyrir sér möguleikanum að bjarga hinni verðmætu flugvél. Þeir vildu fara aftur, og reyna aftur, þrátt fyrir það að mannsorkan hefði í fyrstu lotu orðið að beygja sig fyrir hinu kalda faðmlagi jökulsins. — Geys- is-flakið snjóaði í kaf og sömu ör- lög fékk hin bandaríska björgun- arvél. 1 lok marz var aðeins lítil þúst á jöklinum, sem benti á hvar flugvélin lá. Um það leiti hafði Loftleiðir á- ætlanir sínar tilbúnar. Félagið hafði tryggt sér eignarréttinn á vélinni og unnið áætlunina í ein- stökum atriðum. Það átti að koma ýtum upp á jökulinn. Þær áttu að grafa vélina upp, þær áttu að draga vélina á stað, þar sem hægt væri að gera bráðabirgða flugvöll. Þar átti að setja hana í gang og laga svo til að hægt væri að fljúga henni til Reykjavíkur. Þetta var allt einfalt á pappírnum. — Þá var ákveðið að leggja af stað í leið- angurinn frá Kirkjubæjarklaustri, þar var lítill flugvöllur um 300 km. frá Reykjavík. Sunnudaginn 8. apríl 1951 lagði 11 manna hópur af stað frá Rvík með flugvél til Kirkjubæjarklaust- urs. Á Klaustri stóðu tvær jarð- ýtur tilbúnar til notkunar, jarð- ræktarfélag sveitarinnar átti aðra, en hina áttu bændurnir á bænum. Næsta dag vor settir saman 4 sleðar, hvor ýta átti að draga tvo sleða. Á tveimur sleðanna var kom- ið fyrir léttum húsum með svefn- rými fyrir 6—7 menn í hvoru. Á hinum sleðanum var komið fyrir 10 tunnum af hráolíu fyrir ýturn- ar, matvælum fyrir 3—4 vikur, skíðum, fatnaði o.s.frv. Miðviku- daginn 11. apríl var hægt að leggja af stað frá Klaustrinu, en þar hafði tólfti maðurinn bætzt í hóp- inn. Stjórnandi leiðangursins var Egill Kristbjörnsson, ungur mað- úr þekktur sem úthaldsgóður og duglegur skíða- og fjallamaður. Fyrsta hindrunin kom í fjalls- hlíðinni fyrir ofan bæinn, hún var nokkur hundruð metra löng og brött, og meðan verið var að koma flutningnum þar upp, kom fyrsti bylurinn. Fyrsta daginn miðaði lít- ið áfram, ýmislegt kom fram, sem ekki stóðst áætlun. Þetta lagaðist þó fljótlega og eftir hádegi föstu- daginn 13. apríl var leiðangurinn kominn inn að jökulröndinni. Á þessum þremur dögum höfðu leið- angursmenn farið um 60 km. í breytilegu fjallalandi, og voru komnir upp í SOOmhæð.Kunnugur maður úr sveitinni hafði leiðbeint þeim upp, en snéri þá heimleiðis aftur. Nú liöfðu leiðangursmenn reynt tæki sín og ýtur, en ennþá var leiðangurinn áláglendi. Framundan lá hinn mikli jökull, með sína erf- iðu uppgöngu, og 65—70 km ferð inn á jökulflæmið og næstum upp á Bárðarbungu, sem teygir skalla sinn næstum í 2000 metra hæð yfir sjó. Og Vatnajökli virtist sem það væri tímabært að sýna að hér væri hvorki mýri né mórindar, þar sem not væri fyrir jarðvinnslutæki frá láglendinu. Það skall á blindbylur, sem hamaðist þarna í þrjú dægur með 12—13 vindstigum og 10 stiga frosti. Leiðangurinn varð að sjálfsögðu að halda kyrru fyrir, og ýtustjór- arnir fengu þó nóg að gera að gæta ýtanna, sem til öryggis urðu alltaf að vera í gangi. Þriðjudaginn 17. apríl hafði slot- að, og var þegar haldið áfram. Fyrsti áfanginn upp jökulinn gekk seint en öruggt. Veður var stillt en frostþoka, sem lokaði útsýni. Eftir 25 klukkustunda, nærri ó- slitna ferð eftir kompás, áleit leið- angursstjórinn að nú væru þeir ná- lægt brakinu úr Geysi og björg- unarflugvélinni. Að finna flugvél- arnar í þokunni, var að sjálfsögðu ekki um að ræða. Þeir urðu að bíða eftir björtu veðri, og fyrir ýtu- stjórana var hvíld kærkomin. Þeg- ar loks upp stytti hinn 20. apríl, að hægt var að skoða umhverfið, sýndi það sig að þeir voru aðeins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.