Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Blaðsíða 47
ALMANAK
47
fjallaði um virðulegt boð Alþingis Islands til ríkisstjórans
í Norður-Dakota þess efnis, að ríkið ætti fulltrúa á Al-
þingishátíðinni 1930. Tillagan um það, að boðið yrði
þegið, er samþykkt var af þinginu, og greinargerð hennar,
bera þess vott, að þar hefir kunnugur maður sögu Islands
átt hlut að máli, enda var Jón stuðningsmaður hennar,
og hefir vafalaust átt sinn þátt í að semja hvorttveggja.
Með afskiptum sínum af nefndum málum gafst honum
tækifæri til að sýna í verki hinn ríka ræktarhug, sem hann
ber í brjósti til ættlands síns, þó að hann hafi það aldrei
augum litið.
Það var þá eigi heldur að ástæðulausu, að Shafer rík-
isstjóri útnefndi Jón ríkisþingmann til þess að vera full-
trúi Norður,Dakota á Alþingishátíðinni, en þó honum
hefði verið sú för hin hugþekkasta, leyfðu ástæður honum
eigi að taka útnefningunni. Var Guðmundur Grímson
dómari þá tilnefndur í hans stað og mætti á Alþingishá-
tíðinni af hálfu Norður-Dakota eins og kunnugt er.
(Sambr. formála G. F. Shafer ríkisstjóra að hinni prent-
uðu, opinberu skvrslu Guðnmndar dómara um ferðina
og þátttöku hans í hátíðahöldunum).
Á seinni árum, eftir að landsstjóm Bandaríkjanna hóf
hina víðtæku starfsemi sína til viðreisnar atvinnumálum
þjóðarinnar, hefir Jón átt mikinn hlut í því starfi í ýms-
um nefndum í Pembina-héraði. Á stríðsárunum síðari
hefir hann einnig haft með höndum ýms störf í þágu
stríðssóknar Bandaríkjanna, meðal annars átt sæti í fram-
kvæmdanefndinni, sem annast hefir sölu stríðsverðbréfa
i Pembina-héraði.
Jón hefir jafnan látið sér umhugað um skóla og skóla-
mál almennt. Þegar menntamál ríkisins, eigi síst að því
er snerti æðri menntastofnanir þess, vom komin í hið
mesta öngþveiti árið 1933, vegna ónógra opinberra fjár-
framlaga, var hann einn af þeim, sem valinn var í sjálf-
boðanefnd 63 manna og kvenna víðsvegar úr ríkinu, til