Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Blaðsíða 33
ALMANAK
33
ann. Eitt af störfum hans var að búa studentahóp undir
þátttöku í kappræðum milli háskólanna. Eftir tólf ár í
starfi þessu tók Haldor þungan sjúkdóm og gekk undir
uppskurð í Rochester; átti hann í þeim veikindum meiri
hluta árs og var nokkuð lengi að ná sér aftur. Fengu há-
skólavöldin honum annað starf sem léttara var talið.
Mentastarfsemin er margþætt og umfangsmikil á há-
skólum þessa lands, stærri skólunum ekki sízt, en Minne-
sota háskólinn er einn af þeim allra stærstu. Það er ekki
unnið allt í kenslustofum. Þessar miklu stofnanir veita
mentunar-straumum út á meðal almennings og aðstoða
smærri skóla með ýmsu móti.
I þessu víðvarpi lærdóms og menningar var Haldor
fengið verk. Hann annaðist fyrstu árin útvegun á hæfum
ræðumönnum í fyrirlestraferðir út um byggðir og bæi.
Átti það að vera léttara starf en kenslan; en Haldor var
lítt vanur að hlífa sér. Hann stundaði sitt verk vel, hér
eins og áður, enda fór svo árið 1926, að hann var settur
yfir þessa deild í starfinu. Hún var kölluð Department of
Community Service. Því embætti hélt Haldor í 18 ár,
unz hann lét af störfum árið 1944.
Starfsemi þeirrar deildar var aðallega í tveim þáttum
þegar hann tók við—útvegun fyrirlesara og aðstoð í leik-
listar—viðleitni skólanna víðsvegar um ríkið. Haldor tók
þar við þriðja þættinum; það var að safna fræðandi kvik-
myndum og lána ræmurnar (films) öðrum smærri skólum.
Deildin öll stækkaði unnvörpum í umsjónartíð Haldors.
Ræmusafnið (Film Library) er nú talið eitt af þeim allra
bestu í háskólum þessa lands. Hátt á sjötta hundrað skól-
ar og mentafélög fá þaðan myndir að láni árlega.
Auk þessa var Haldor einn of umsjónarmönnum há-
skólaútvarpsins í tólf ár, og árum saman í ritstjóm háskóla
blaðsins. Hann lagði mikla stund á bókmentir og ræðu-
list alla æfi; var og upphafs-meðlimur (Charter Member)
í tveim félögum ræðumanna, og lagði hönd á margskon-
ar störf önnur.