Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Blaðsíða 89
ALMANAK
89
Hallson, N. Dakota. Fæddur 11. júní 1876 að Austurdal í
Seyðisfirði. Fluttist til Vesturheims 10 ára að aldri og hafði
síðan verið búsettur í íslenzku byggðunum að Svold og Hall-
son.
3. Kristjana Eyjólfsson, ekkja Þorsteins Eyjólfsson, að heimili
dóttur sinnar í Prince Rupert, B.C., 75 ára að aldri. Þau hjón
bjuggu fyrst í nágrenni Hensel, N. Dakota, og síðan árum
saman eftir aldamótin í grennd við Lundar, Man.
4. Prófessor Thomas Thorleifsson, að heimili sínu í Grand Forks,
N. Dakota. Fæddur að Garðar, N. Dak., 6. sept. 1905, sonur
Gamalíels Thorleifsson og Katrínar Tómasdóttur. Hafði verið
kennari í verzlunarfræði við ríkisháskólann í Norður-Dakota
(University of North Dakota) síðan 1937, en það ár útskrif-
aðist hann þaðan og lauk jrar meistaraprófi 1940.
6. Einar Jóhannesson smiður, að heimili systur sinnar í Selkirk,
Man. Fæddur 4. nóv. 1865 að Sultum í Kelduhverfi í Norður-
Þingeyjarsýslu. Foreldrar: Jóhannes Einarsson og Þóra Einars-
dóttir. Fluttist vestur um haf með foreldrum sinum 1905 og
settist þá þegar að í Selkirk.
11. Landnámskonan Guðrún Gíslason, að heimili sona sinna í
Los Angeles, Calif. Fædd 1871 í Húnavatnssýslu, kom vestur
um haf með foreldrum sínum fimm ára gömul; hafði verið
búsett í jrrjátíu ár í íslenzku byggðinni í grennd við Mountain,
N. Dakota.
13. Marinó Kristinn Emilson, úr Haylands-byggðinni í Manitoba,
af slysförum á þeim slóðum. Fæddur í grennd við Akureyri
4. febr. 1925. Foreldrar: Gísli og Sigríður Emilson. Fluttist
tveggja ára gamall með þeim til Canada.
14. María Einarsson, ekkja Sigurðar Einarsson, á heimili dóttur
sinnar að Gimli, Man. Fædd þar 18. jan. 1880. Foreldrar:
Jóhann V. Jónsson frá Torfufelli í Eyjafjarðarsýslu og Sigríður
Ólafsdóttir frá Gilsá i Eyjafirði, er voru í landnemahópnum,
sem til Gimli kom haustið 1875.
18. Guðrún Grey, kona Harvey L. Grey, að heimili sínu í Cal-
gary, Alberta., dóttir Alberts C. Johnson, fyrrum ræðismanns,
og Elizabetar Johnson í Winnipeg. Meðal systkina hennar er
dr. A. V. Johnson tannlæknir þar í borg.
22. Helga Jóhannesson, að Lundar, Man. Hafði um mörg ár verið
búsett í Piney, Man.
Júlí 1947
1- Jóhanna Þorbjörg Elíasdóttir, á heimili dóttur sinnar að Gimli,
Man. Fædd 3. sept. 1850 á Efstasamtúni í Glæsibæjarðarsýslu.
Foreldrar: Elías Halfdánarson úr Húnavatnsýslu og Karin
Hansdóttir Buck. Kom til Canada um aldamótin og átti lengst
af heima í Winnipeg.
5- Þórarinn Albert Einarsson, á heimili sínu að Lundar, Man.,