Afturelding - 01.08.1979, Qupperneq 12

Afturelding - 01.08.1979, Qupperneq 12
Ágrip af sögu Hvítasunnumanna á íslandi 2. grein eftir Einar J. Gíslason Þegar samnefndri grein lauk í síðasta tölubl. Aftureldingar, var þess getið að stiklað hefði verið á stóru og mörgu sleppt. Til sannrar og fyllri myndar skal eftirfarandi bætt við: Liðstyrkur trúboða í hvítasunnustarfinu kom nær eingöngu erlendis frá, árin eftir 1934—1940 og svo við styrjaldarlok 1946—1950. Sæmundur Sigfússon úr Skagafirði, var drjúgur og mjög virkur trúboði allt frá því að hann gekk í raðir Hvítasunnumanna og þar til yfir lauk æfi hans. Hann var í Danmörku, Hólasveinn, til að nema frekar búvísindi. Hann sat í kirkju á Hvítasunnudag 1906. Þar féll Heilagur Andi yfir Sæmund og varð líf hans gjörbreytt upp frá því. Sæmundur heitinn var skírður í Betel í Eyj- um 30. maí 1926, eða á fyrsta ári safnaðarins. Hann var fæddur 27/6 1879 og dó 15. júlí 1960. 1934 kom Milda Spánberg frá Noregi og lagði sig fram í starfi Drottins hér um mörg ár, brennandi og lifandi í Andanum. Starfaði hún mest á Akureyri, Vestmannaeyjum, Norðfirði og víðar. Þegar þetta er ritað lifir Milda ennþá í Noregi og eitt barna hennar, Ester, er búsett á Akureyri. Nokkru eftir að Milda kom til landsins, bættist Sigmund Jacobsson við starfsliðið. Sigmund var mjög virkur og lagði sig alls staðar vel fram. Hann nam íslenska tungu mjög vel og talaði hana rétt og skírt. Hann handlék gít- arinn sinn mjög vel og söng fallega og af list. Þau urðu örlög hans hérlendis að giftast Mildu og stóðu þau saman í starfinu hér, á miklum erfiðleikatím- um. Það var þegar Hitler náði tökum á Noregi og þrúgaði Norðmenn og kvaldi. Sigmund og Milda misstu allt samband við heimaland sitt og fólk. Jafnhliða trúboðsstörfum, þá unnu þau með hönd- um sínum fyrir daglegu brauði. Sigmund starfaði lengi á Akureyri, forstöðumaður var hann í Betel, Vestmannaeyjum árin 1940—42, að Ásmundur Eiríksson leysti þau hjón af hólmi. í stríðslok fóru þau hjón heim og andaðist Sigmund í Noregi á besta aldri og starfsorku. Barbro Jutterström kom frá Svíþjóð árið 1938 og var hér innilokuð allt stríðið. Starfsvið hennar var einkum norðanlands. Barbro átti ljúfan vitnisburð um frelsara sinn Jesúm Krist. Eftir að hún fór heim í stríðslok þá hefur hún haldið lifandi sambandi við vini sína og trúarsystkini á Fróni. Eins og áður er getið þá kom Erik Martinsson til landsins 1946 og notuðust hæfileikar hans á hljóm- listarsviði einkar vel. Hann raddsetti lög og bjargaði 12

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.