Afturelding - 01.08.1979, Page 13

Afturelding - 01.08.1979, Page 13
lögum frá gleymsku, sem áður voru sungin af nunni fram. Samhliða honum kom Rune Ásblom, Sem helgaði sig blaða og bóksölu, duglegur maður °g kröftugur. Það urðu hlutskipti beggja þessara Svía að fara héðan og til Grænlands og byrja þar Hvítasunnustarf. Eftir stríðslok kom Ellen Edlund frá Svíþjóð. Ellen var prédikari af Guðs náð. Starfsakur hennar var vítt um landið, í Stykkishólmi °g víðar. Þegar þetta er ritað liggur Ellen helsjúk á sjúkrahúsi í Svíþjóð og sendir kveðjur þaðan til vina sinna og trúarsystkina á íslandi. Þegar Ericson byggði Fíladelfíu-húsið í Keflavík, þá lögðust honum til margir góðir liðsmenn. Á engan er hallað þó sérlega sé getið Garðars Ragn- arssonar, núverandi forstöðumanns Hvítasunnu- safnaðarins í Óðinsvéum á Fjóni í Danmörku. Garðar frelsaðist árið 1951 og af listrænum smekk °g elsku til Guðs orðs, lagði hann sig fram í starfi Drottins. Garðar giftist vel, Önnu Guðjónsdóttur frá Skaftafelli í Eyjum, þáverandi yfirhjúkrunarkonu. öarðar ferðaðist mikið um landið og fékk góða úheyrn. Þau settust síðar að í Stykkishólmi og sýna skýrslur blómlegt starf þar og naumast í annan tíma ^etra, heldur en hjá þeim hjónum. Snögglega léttir Garðar heimdraganum og tekur v>ð forstöðu Hvítasunnusafnaðar í Þórshöfn, Fær- eyjum. Var nú siglt öllu órifuðu og komu margir IT>eð í söfnuðinn þar fyrstu árin. Síðar var svo fært um set í Danaveldi og farið til Fjóns eins og áður getur. Garðar hefir ferðast um Norðurlöndin og t>oðað fagnaðarerindið og jafnframt aukið hróður Frá vinstrí: Daníel Glad, Þorsteinn Einarsson, Sigurmundur Einarsson, Dagbjartur Guðjónsson. lands síns. Þegar Garðar hefir heimsótt heimaland sitt, þá er honum fagnað sem bróður og íslendingi. Engum hreim af erlendum málum blandar hann við móðurmál sitt. Það er mál, sem enginn skilur, nema sá er vill vera í vilja Guðs, hvernig góðir starfskraftar frá íslandi gefast út og eru ytra. Nægir þar að benda á fyrr- greind hjón og svo Ólaf Jóhannsson, sem staðið hefir fyrir bókabúð Elímsafnaðarins í Kaup- mannahöfn. Ólafur er sérstæður maður, listrænan í blóð borin. Sigríður móðir hans er systir Sigurjóns myndhöggvara og listamanns. Ólafur hefir lagt starfi okkar heima lið, vegna aðstöðu sinnar í borg- inni við sundið. Á hann skýran vitnisburð um Jesúm Krist og Heilagan Anda. Vitnisburði Ólafs er vel tekið hér heima, hvar og hvenær sem hann kemur. Árið 1961 hóf störf hérlendis Glenn B. Hunt, kom hann frá Bandaríkjunum. Starfaði hann í Keflavík og á Vellinum, síðar í Reykjavík, Stykkishólmi og Vestmannaeyjum. Um tíma var hann í Knarrarnesi og lagði þar vísi að starfi meðal drykkjumanna. Hann fór heim til U.S.A. 1967. Eftir að Sæmundur heitinn Sigfússon hafði markað sporin og heimsótt allar sýslur landsins, með kristilegt ritmál, þá tóku upp þráðinn Þor- steinn heitinn Einarsson, sem um árabil, helgaði sig blaða- og bókadreifingu og samkomuhöldum um byggðir landsins. Var Þorsteinn duglegur og starf hans árangursríkt. Með honum voru oft á tíðum Dagbjartur Guðjónsson, Páll Axelsson og svo síðar gekk inn í þetta starf Hallgrímur Guðmannsson 13

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.