Afturelding - 01.08.1979, Side 21

Afturelding - 01.08.1979, Side 21
1000 sálir! Ef allir eru trúir í starfinu og vinna jafn ötullega þá fjölgar ævintýralega hratt í hópnum. Árið 1989 verða þannig 2048 og 1990 eru komnir 4096. Hvort sem þú trúir því eða ekki þá telur hóp- urinn yfir eina milljón eftir tuttugu ára starf, það er tæplega raunhæft að tala um þann fjölda á Islandi strax! En nú fara tölurnar að stækka svo um munar og eftir 32 ára starf, eða árið 2010, höfum við meira en 4000 milljónir manna og það er nánast fjöldi jarðarbúa í dag. Ef við lítum okkur nær og athugum hvað gerist ef 50 — fimmtíu — lesendur þessarar greinar taka þá ákvörðun hver um sig að leiða eina sál til Krists árelga og kenna henni að bera ávöxt. Eftir 1 ár telur hópurinn 100 manns, eftir 5 ár telur hópurinn 1600 manns, eftir 10 ár telur hópurinn 51 200 manns og eftir 12 ár telur hópurinn 204 800 manns. Hvernig gerist þetta? Með því að allir trúaðir verði sér meðvitaðir um ábyrgð sína og þeir öðlist trú á að þeir eigi fagnaðarerindið. Við verðum að eiga þannig trúarlíf að það laði aðra að frelsaran- um, en fæli ekki frá honum. Sumir eru kallaðir til kristniboðs í Indlandi eða á Grænlandi, en allir kristnir eru kallaðir til að vera ljós og salt. Trúboðsakur þinn er á vinnustað, í skóla, heima hjá þér, í garðinum, bílnum þínum, í strætisvagninum, já hvar sem þú hittir fólk. Ræðustóllinn getur verið eldhúsborðið, hefil- bekkurinn, garðhliðið og söfnuðurinn er fólkið sem þú umgengst. Sá sem er án Krists er án vonar. Minnstu þess þegar þú biður fyrir kristniboðinu í öðrum löndum, að sumir nágranna þinna eru jafn Kristsvana og bver annar heiðingi. Þegar Jesús læknaði óða manninn í Gerasena (Markús 5), og maðurinn óskaði eftir að mega fylgja •lesú eftir, þá sagði Jesús: „Far þú heim til þín og þinna og seg þeim, hve uhkla hluti Guð hefir gjört fyrir þig og hversu hann hefir miskunnað þér.“ Og Jesús segir við þig: >,Farðu út um allan heiminn og predikaðu gleði- boðskapinn.“ Heimurinn byrjar við dyraþröskuldinn heima hjá Þér. Hlutverk þitt er að segja frá því hversu mikið ■lesús hefur gjört fyrir þig. Þú átt að leiða þurfandi ntenn og konur til Frelsarans, sem bæði vill og getur bjálpað. Flame-gé. 1. Taktu þér tíma daglega. Segðu ekki neitt. Hugsaðu bara um Guð. Þetta hjálpar þér síðar í bæninni. 2. Biddu svo með einföldum orðum. Segðu Guði frá öllu sem í huga þínum býr. Þú þarft ekki að nota ákveðið „bænamál“. Talaðu við Guð frá hjarta þínu. Hann skilur íslensku! 3. Biddu þegar þú byrjar að vinna á morgnana, á leiðinni í vinnu eða skóla. í bílnum eða við borðið þitt. Biddu stuttar bænir þegar þú lokar augunum smá stund, til að útiloka umhverfið, sem getur haft truflandi áhrif. Því oftar sem þú getur gert þetta, því betur færð þú að reyna nærveru Guðs. 4. Þegar þú biður, þá skalt þú ekki fyrst og fremst biðja um að fá eitthvað. Þakkaðu Guði fyrir þær blessanir, sem hann hefur þegar gefið þér og þú skalt gefa þér mikinn tíma til að þakka. 5. Biddu í þeirri trú að hreinskilnar bænir þínar geta umvafið þína nánustu með vernd og kær- leika Guðs. 6. Láttu ekki neikvæðar hugsanir komast að þeg- ar þú biður. Aðeins jákvæð hugsun skilar ár- angri. 7. Tjáðu ætíð vilja þinn til að samþykkja vilja Guðs. Biddu um það, sem þig langar að fá, en verið reiðubúin að'taka við því sem Guð gefur. Það gæti orðið betra en það sem þú biður um. 8. Leggðu allt í hendur Guðs. Biddu um getu til að gera þitt bezta og treystu svo Guði fyrir árangrinum. 9. Biddu fyrir fólki sem þér líkar ekki og þeim sem hafa komið illa fram við þig. Ósætti er fyrsta hindrunin fyrir andlegum krafti. 10. Gerðu lista yfir þá, sem þú biður fyrir. Því meira sem þú biður fyrir öðrum, sérstaklega þeim sem þú umgengst, og fyrir þeim sem þér þykir ekki vænt um því meiri árangur bera bænir þínar. 21

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.