Afturelding - 01.08.1979, Side 28
AFTURELDING
66 bandarískir þingmenn hafa undirritað áskorun til ráðamanna
Sovétríkjanna, um að hvítasunnumennirnir sem leituðu hælis í
bandaríska sendiráðinu í Moskvu, fái að fara frjálsir ferða sinna.
Fjölskyldurnar tvær hafa búið í kjallara sendiráðsins frá því í
júní 1978, að þær leituðu þar hælis vegna trúarofsókna.
— SR 3379
Nýjustu niðurstöður rannsókna okkar sýna fráfall frá kristinni
trú á Vesturlöndum, sérstaklega í Evrópu, segir Dr. David Barret,
en hann er leiðtogi rannsóknastofnunar um evangeliska trú.
Stofnunin er staðsett i Nairobi. Meðan 1.8 milljónir Evrópubúa
sneru baki við kristinni trú sl. ár, gerðust 5.8 milljónir Afríkubúa
kristnir, eða 16000 á dag að meðallali. 34. milljónir manna í
Suðaustur-Asíu heyrðu fagnaðarerindið í fyrsta skipti. í Suður—
Ameríku eru miklir uppskerutímar. Þessar niðurstöður sýna
Ijóslega að Vesturlönd þurfa á kristniboði að halda, segir Dr.
Barret. Þessi rannsókn náði til 223 landa, 6000 þjóðarbrota og
meira en 9000 mismunandi kristinna hópa.
— KS 7579
Árið 1977 voru 1667 sænskir kristniboðar að starfi utan heima-
lands síns, þar af voru 1096 konur og 571 karl. Kristniboðarnir
störfuðu í 64 löndum. Flestir kristniboðanna voru hvítasunnu-
menn 838, næstir voru Örebro-trúboðið með 165, sænska
kristniboðssambandið með 116 og kristniboð sænsku kirkjunnar
með 116.
— KS 7579
Alheimsráð kirknanna hefur ákveðið að halda ráðstefnu um
þýðingu náðargjafavakningarinnar fyrir kirkjurnar. Ráðstefnan
fer fram i Trinidad 5.-10. mars næsta ár. Tilgangurinn er að
kynnast náðargjafavakningunni og skoða viðbrögð við henni.
— KS 7679
Biblíur hafa selst vel í Póllandi eftir að páfi heimsótti landið í vor.
20.000 eintök af sérstakri vasaútgáfu Biblíunnar seldust upp,
16.000 eintök af Nýja testamentinu seldust einnig upp og fyrir
liggja pantanir á 25.000 Biblium til viðbótar.
— CAW 1079
Hin marxíska stjóm Mosambique í Austur-Afríku, hefur nú
hafið nýjar aðgerðir gegn kirkjunni þar í landi. Trúboðsskólum
og sjúkrahúsum var lokað eftir að ríkisstjórn Samora Machels
kom til valda 1975. Nú er fólki yngra en 18 ára meinað að taka
þátt í kirkjulegu starfi og hömlur eru á kirkjubyggingum.
— CA W 979
Babýlon, höfuðborg þjóðarinnar sem eyddi Jerúsalem og Guð
bölvaði að hún yrði aldrei endurreist (Jeremia 50-51), er nú að
líta dagsins ljós á ný. Reyndar eru það aðeins rústir Babýlonar,
sem fornleifafræðingar eru nú að grafa upp. 650 starfsmenn
vinna við uppgröft rústanna 90 km fyrir sunnan Bagdad í trak.
Nú er verið að grafa upp 2500 ára gamla konungshöll Nebúka-
dnesars.
— CA W1079
Eftir 30 ára stjórn kommúnista í Austur-Þýskalandi eru 10 mill-
jónir manna skirðar barnaskirn og skráðar í kirkjubækur, en
íbúafjöldi landsins er um 16,7 milljónir. 8 milljónir tilheyra
lúthersku kirkjunni, 1.2 milljónir eru kaþólskir og afgangurinn
tilheyrir ýmsum smærri hópum.
— CAW1079
1 höfuðborg Filippseyja, Manilla, er kristinn söfnuður sem telur
400 meðlimi. Þessi söfnuður stendur að baki 42 kristniboðum!
Það er safnaðarregla að safnaðarmeðlimir gefa ávallt tvöfalt
meira til kristniboðs en til safnaðarstarfsins. Því er kristniboðs-
sjóður þeirra hlutfallslega mjög sterkur.
— SR 3679
Fréttir berast nú af vaxandi ofsóknum gegn kristnum í Eþíópíu.
60 voru líflátnir nýlega, því þeir vildu ekki afneita trú sinni. í maí
sl. lét héraðsstjórinn i Gamu Gofa héraði fangelsa 1000 kristna
menn úr ýmsurit söfnuðum. Aðalritari Mekane Yesus kirkjunn-
ar, Gudina Tumsa, var fangelsaður öðru sinni 1. júní. Þegar 18
ára dóttir hans kom til að færa honum mat í fangelsið var hún
einnig hneppt í varðhald.
— SR 3679
28