Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Qupperneq 60
54
út í íslenzkri þýðingu í tímaritinu »Jörð« undir
nafninu — Kristur á vegum Indlands. — Síð-
an hafa komið út: »The Christ of Evry Road«,
»Christ of the Round Table« þar sem hann
segir frá samtalsfundunum með hinum mennt-
uðu Indverjum og »The Christ of the Mount«,
frábærlega góð bók um fjallræðuna. Fleiri bæk-
ur voru áður komnar út.
Verður ekki nógsamlega með bókum hans
mælt. Þær eru fullar af sláandi líkingum og
lærdómsríkum dæmum úr lífsreynzlu hans.
Munu fáir höfundar hafa dýpri skilning á sam-
tíðinni og köllun kristinna manna nútímans.
Með brennandi eldmóði talar hann um kristni-
boðið og telur það ágætast allra hreyfinga. Með
kristniboði á hann ekki aðeins við kristið trú-
boð meðal heiðingja, heldur boðun Krists hvar
sem er. I einni af bókum sínum minnist hann
á, að ókristnir fræðimenn haldi því fram, að
kristniboðsskipunin í Matth. 28, 19.—20., sé
síðari tíma viðbót. En þó svo reyndist, sanni
það ekkert gegn kristniboðinu, því að Fagnað-
arerindið beri í sér nauðsyn stöðugrar út-
breiðslu. Hann famir fram margar ástæður fyr-
ir kristniboðinu og skulu hér nokkrar taldar:
1. Það lifir og starfar i þeirri sannfæringu,
að sérhver maður sé í sjálfu sér óumræðilega
dýrmætur, hvað sem líður þjóðerni, ætterni,
hörundslit, efnahag eða mannfélagsstöðu.. Þaó
heldur því fram, að í hverju mannslífi felist
vísir til eilífs þroska. Að lítt þroskaðar þjóðir
séu að vísu til, en engax þær, sem eftir hlut-
arins eðli og um aldur og æfi »hljóti að teljast
lægri þjóðir«.
2. Kristniboðið er eina hreyfingin, sem hef-
j