Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Qupperneq 72
66
Daufdumbraskólinn er í Reykjavik síðan 1907. For-
stöðukona: Margrét Rasmus.
Hvað barnaskólana snertir, er samkvæmt lögum 1907
(endurskoðuð 1926) almenn skólaskylda fyrir börn á I
aldrinum 10—14 ára og enda hægt að fá hana aukna
þannig, að hún verði einnig frá 7—10 ára, og hafa
ýms héruð notað sér þetta. — Fræðsluhéruðin eru
um 200 að tölu (198) fyrir utan kaupstaðina. Farskólar
eru 142 og 64 fastaskólar.
Fræðslnmálastjórar: Barnafræðsla: Helgi Ellasson,
æðri skólar: Freysteinn Gunnarsson.
Umsjónarmenn barnaskóla: Steingrímur Arason (í
Reykjavík) og Helgi Hjörvar (I kaupstöðum utan Rv.).
Mcnnta- og menningarstofnanlr.
Mcnntamálaráó Islands er skipað 5 mönnuin, sem
eru kosnir 4. hvert ár af Sameinuðu Alþingi, og eru
þessir nú I þvl: Barði Guðmundsson (form.), Stefán
Jóh. Stefánsson (ritari), Árni Pálsson, prófessor, Sig.
Nordal, prófessor, og Ingibjörg H. Bjarnason. Hlut-
verk þess er: 1) að úthluta fé því, sem Alþingi veit-
ir til skálda og listamanna, 2) að kaupa fyrir landið lista-
verk, sem fé er veitt til, 3) að hafa yfirumsjón með Mál-
verkasafni ríkisins, 4) að samþykkja teikningar af
kirkjum þjóðkirkjusafnaðanna og eins hvar kirkjur eigi
að standa og kaupa altaristöflur I kirkjur þjóðkirkjunn-
ar, eftir því sem fé er veitt til, frá hlutaðeigendum,
5) að úthluta námsstyrk til stúdenta og annara náms-
manna erlendis, 6) að úthluta ókeypis fari til útlanda
með skipum Eimskipafélags fslands, 7) að hafa yfir-
umsjón með ýmsum sjóðum, til eflingar listum og
vísindum, sem stofnaðir kynnu að verða.
Menningarsjðður er undir umsjón Menntamálaráðs
og skal honum varið til: 1) að gefa út góðar, alþýðleg-
ar fræðibækur og úrvals skáldrit, frumsamin eða þýdd,
Á