Heimilisvinurinn - 01.03.1905, Side 8

Heimilisvinurinn - 01.03.1905, Side 8
8 me5 lögum, — eins og hluttekningar- og aðstoðar- leysið hjá söfnuðum þeirra. En þá má spyrja: í hverju er þá þessi sam- vinna sjerstaklega fólgin, eða að hverju á hún að snúa sjer? Og má þá svara: Samvinnan á sjer- staklega að koma fram í því, að hvorirtveggju hlynni að: 1. Guðsþjónustu safnaðartns. 2. Ungmennum lians. 3. Sainfjelags kristindómf. 4. Kristilcgu líknarstarfl. Að því er guðsþjónustuna snertir, má fyrst minnast á kirkjurœknina. Eins og kunnugt er, er henni mjög ábótavant víðast hvar hjer á landi, og margur prestur andvarpar opt yfir þeirri hugs- un á laugardögunum: Skyldu nú áheyrendurnir verða fleiri en stólarnir á morgun, eða skyldi yfir höfuð verða messufært? Það er bersýnilegt, að slík- ar hugsanir verða ekki prestinum til hjálpar, ekki sízt, ef hann brestur áhuga og kjark til að flytja Guðs orð endrarnær en við „embættisverk." Það er og sterk freisting, að undirbúa sig ekki jafn vel, þegar prjedikarinn býzt við 10 tilheyrendum, eins og þegar hann býzt við 100, og þá getur farið svo áður en hann varir, að þeir hafi nokkuð til síns máls, sem kveða upp úr með aðalástœðuna til allr- ar kirkjuvanrækslunnar hjer á landi og segja: „Vjer förum ekki, af því að oss finnst, að vjer höf- um ekkert að sækja til kirkjunnar/

x

Heimilisvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.