Muninn - 01.05.1991, Blaðsíða 20
Körfuknattleiksmót
Miðvikudaginn 24.04.1991 fór fram
bekkjarmót karla í körfuknattleik og
heppnaðist það í alla staði mjög vel.
4.bekkur dróst gegn l.bekk og
3.bekkur gegn 2.bekk. 4.bekkur sigr-
aði l.bekk með nokkrum yfirburð-
um. (Þó svo að munurinn í lokin hafi
ekki verið meiri en 2 stig þá ber að
geta þess að 4.bekkingar ákváðu að
hvíla sinn besta mann stóran hluta síð-
ari hálfleiks til að vera betur búnir
undir átökin í úrslitaleiknum og spil-
uðu þá 4 á meðan!) í hinum undanúr-
slitaleiknum sigruðu 3. bekkingar
mjög létt en þeir nýttu sér ekki nógu
vel þennan mun til að hvíla sína
bestu menn eins og 4. bekkingar
gerðu.
Það voru því fjórðu og þriðju bekk-
ingar sem léku til úrslita. (Þess ber að
geta að flestir leikmanna beggja liða
höfðu áður leikið til úrslita þegar 4. TX
sigraði 3. U í bekksagnamóti því
sem fram fór fyrr í vetur og ætluðu
3. bekkingar sér ekki að láta 4. bekk-
inga endurtaka þann leik, því eins
og margir vita þá eru 4 skólaliðs-
menn í liði 3. bekkinga.) En það
voru baráttuglaðir 4. bekkingar sem
höfðu undirtökin allan leikinn. Þar
kom glögglega í ljós hversu vel her-
bragð 4. bekkinga hafði heppnast þar
sem þeirra besti maður kom sterkur
inn á meðan að 3. bekkingar virtust
hálfþreyttir og leiddu 4. bekkingar
14-10 í hálfleik. í síðari hálfleik lifn-
aði heldur yfir 3. bekkingum en
þeir náðu þó aldrei að jafna leikinn
og það voru því 4. bekkingar sem
fóru að lokum með sigur af hólmi
28-26 eftir æsispennandi lokamínút-
ur.
Hér með fylgir svo listi yfir þá
leikmenn sem léku fyrir hönd 4.
bekkinga í þetta sinn ásamt lista yfir
kvikmyndatökumenn þeirra.
Þjálfari: Arnaldur Skúli Baldursson.
Leikmenn:
Bakverðir:
Héðinn ,,Magic“ Sigurðsson 4.T
Ómar ,,Pain Ttain'‘ Árnason 4.X
Miðherji:
Jón ,,High Ibwer“ Jónasson 4.T
Framherjar:
Erlendur ,,Barkley“ Þorsteinsson4.X
Þórir ,,Bird“ Áskelsson 4.F
Kvikmyndatökumenn:
Sigurður Stefán Haraldson 4.U
Sigurður Jónsson 4.U
Þórarinn Fr. Malmquist 4.U
H/Körfuknattleiksráð Í.M.A.
MyndLir írá bekkj amótinu
20 ■ MUNINN