Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1945, Qupperneq 10

Heimilisblaðið - 01.07.1945, Qupperneq 10
130 heimilisblaðið handa mér. En þá flykktist allt heimafólk staðarins að dyrunum og tók sér þar 6töðu, sjálfsagt í þeim lofsverða tilgangi að auka mannþekkingu sína með því að gaumgæfa hætti mína og athafnir. En ég var ekki sein á mér að loka, og síðan gerði ég mér nota- legan svefnstað á ullarbing, sem ég hafði strax tekið eftir, er.ég kom fyrst inn í kirkj- una. Það var fullt af ull bekkja á milli, og þarna hreiðraði ég um mig á sængurfötum mínum. Þessi hvíla var eins mjúk og hlý og bezt varð á kosið. Um morguninn lag- færði ég ullina, svo að ógerlegt var að sjá, livar ég liefði látið fyrir berast um nóttina. Það skemmtilegasta víð þetta ævintýr var þó forvitni heimamanna, sem að vanda rudd- ust inn strax og ég losaði um hurðina morg- uninn eftir. Fyrsta spurningin, sem þeir spurðu hver annan, var: „Kar lievur liún sovið?“ Og ég lield, að þeir hafi hálfvegis ímyndað sér, að ég væri huldukona eða andi, fyrst ég hafðist við alein í kirkjunni nætur- langt, mitt í ríki hinna dauðu. Þá hefur langað til að vita, hvernig slík vera legðist til svefns. Ég varð að snúa mér undan til þess að dylja liláturinn, þegar ég sá, hve vandræðalegir þeir urðu á svipinn. VIÐ MESSUGERÐ A STÓRUVÖLLUM. Morguninn eftir lagði ég snemma af stað. Þegar við liöfðum alllangt farið frá Skál- holti, komum við að Þjórsá, alldjúpu og mjög stratimhörðu vatnsfalli, sem við fór- um yfir á ferju, en sundlögðum hestana í. Það getur oft verið liarla erfitt að koma liestunum út í svona vatnsföll. Þeir vita undir eins að þeir eiga að synda yfir, og fylgdarmaðurinn og ferjukarlinn geta ekki lagt frá landi fyrr en þeir eru búnir að reka þá út í, og verður þá enn að elta þá með svipuhöggum eða steinkasti og liræða þá með ópum og hrópum, því að annars gætu þeir allt eins vel snúið við. Vegurinn fór stórum versnandi. Svartir sandar þöktu landið og milli þeirra voru brattar hæðir. Loks komurn við að Stóru- völlurn, þar sem við ætluðum að eiga við- dvöl og lofa vesalings hestunum að hvíla sig fáeinar klukkustundir. Hér var mikill samsöfnuður manna og hesta. Þetta var á sunnudegi, og þar seiö veður hafði verið bjart og gott um morg- unimi, liafði messan í fallegri kirkjunni ver- ið fjölsótt. Að messunni lokinni sá ég eft- irminnilega sjón. Fólkið streymdi út úr kirkj' unni (ég taldi 96, sem er óvenjulegt f jölmenö1 á Islandi) og dreifðist í smáhópa, þar se® það stóð hlæjandi og skrafandi. Og ekk1 gleymdist mönnum heldur að væta á ser kverkarnar með sopa af brennivíni, sem þeir höfðu vitaskuld á reiðum höndum. Síðaö voru hestarnir sóttir og kveðjurnar hófust’ Kossum rigndi niður í öllum áttiim, eins og ræflarnir byggjust ekki við að sjást frantar- Um alll ísland er það almennur siður að heilsast og kveðjast með rembingskossi "" siður, sem útlendingi geðjast ekki mejra eU svo að, láti hann eftir sér að horfa á óhreiu og viðbjóðsleg andlitin, tóbaksnefin á gamU fólkinu og vanhirðuna á krökkunum. En um allt þetta kærir Islendingurinn sig kollóttaU- I þetta skipti kyssti hvert einasta sóknar- barn prestinn,* og hann faðmaði þau að ser í staðinn. Þá kysstu þau liann í annað sinU> án tillits til kynferðis eða þjóðfélagsstöðu- Og ég varð meira en lítið undrandi, er eS sá til dæmis fylgdarmann minn, sem aðem9 var óbreyttur almúgamaður, heilsa sex sýslU' mannsdætrum og konum og börnum pres1' anna eða sjálfum sýslumanninum og fleir' um og fleirum á þennan hált og komst að ram1 um, að kveðjum hans var tekið. Sinn er sið' ur í landi hverju. Guðsþjónusturnar byrja venjulega um ha- degið og standa yfir í tvær eða þrjár klukkU' stundir. En burtu flýtir fólk sér vegna þesS’ að hvorki er neitt veitingahúsið né hesthus* ið til þess að geyma hestana í, svo að þel01 verður ævinlega að sleppa á haga. Aleiðis til heklu. Þegar messunni var lokið, fór ég að hRta prestinn, 6éra Jón Torfason, sem var s'e ástúðlegur að bjóða mér samfylgd sína 3 Selsundi í von um, að þar gæti liann útveg að mér fylgdarmann á Heklu. Ég var ser' staklega fegin að njóta samfylgdar lians, þ'1 að yfir hættulegar og straumharðar ár vat * Séra Jón Torfaeon. Hann varð ári síðar pre8llir að Felli í Mýrdal, — Þýð.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.