Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1945, Qupperneq 38

Heimilisblaðið - 01.07.1945, Qupperneq 38
Nýjar bækur, ódýrar Síðustu dagana hafa eftirtaldar bækur komið í bókaverzlanir: 1. ÍSLLAND í MYNDIJM, endurprentun síðustu útgáfu. Það er öllum kunnugt, og ekki sízt íslenzkuin kaúpsýslumönnum, að þessi bók hefur á undanförnum árum verið bezti landkynnirinn, sem ísland hefur haft á að skipa, og liefur gert Islendingum ómetan- legt gagn. Upplag bókarinnar er, vegna pappírseklu, mjög lílið að þessu sinni. 2. LÍFSGLEÐI NJÓTTU. Eftir Sigrid Boo. Bækur Sigríðar Boo (svo sem „Við, sem vinn- um eldhússtörfin“, „Allir liugsa um sig“ o. fl.), eru orðnar svo kunnar hér á landi, að ekki þarf að mæla sérstaklega með þessum höfundi. En hitt er flestra dómur, að bókin „Lífsgleði njóttu“ sé ein af beztu bókum liennar, og þýðing Axels Guðmundssonar er afburða góð. 3. KÍMNISÖGUR. Þorlákur Einarsson frá Borg á Mýrum safnaði og tók saman. Þorlákur og faðir lians, séra Einar á Borg, voru áður þjóðkunnir fyrir skemmtilega frásögn og ótæmandi birgðir skemmtilegra sagna. Hér kemur i dagsljósið fyrsta hefti Kímnisagna, sem mun verða lesið með óblandinni ánægju um land allt. 4. KENNSLUBÓK í SÆNSKU, önnur útgáfa kennslubókar þeirra Péturs G. Guðmunds- Bonar og Gunnars Leijström. En þessa útgáfu bjó Jón Magnússon fil. cand. undir prentun. 5. HJARTARFÓTUR. Indíánasaga eftir Edward S. Ellis, en hann og Cooper eru taldir slyngustu höfundar Indíánasagna nú á tímum. 6. MEÐAL INDÍÁNA. Spennandi saga eflir Falk Ytter. Sá, sem byrjar að lesa þessar bækur, leggur þær ógjarna frá sér, fyrr en hann hefur lokið bókinni. 7. DRAGONWYCK, eftir Anya Scton. Þessi saga og 8. í LEIT AÐ LÍFSIIAMINGJU, eftir W. Sommerseth Haugham, birtust neðanmáls í Morg- unblaðinu, en mikill fjöldi kaupenda blaðsins óskaði þess, að þær væru sérprentaðar, enda hvorttveggja ágætar bækur. 9. GRÆNMETI OG BER, fjótða útgáfa, eftir Ilelgu Sigurðardóttur, forstöðukonu Htis- inæðrakennaraskóla íslands, er nú komin í bókaverzlanir. Bókin hefur verið uppseld um tíma, en liana þarf hver húsmóðir að eiga. 10. LÍSA 1 UNDRALANDI. Eftir Lcwis Carrol. Prentuð með stóru og fallegu letri og prýdd fjölda mynda. Bókin er prentuð 1937, en dálítið af upplaginu var geymt óbund- ið, og því er bókin nú svo ódýr, að þótt hún sé 200 blaðsíður, prentuð ó fallegan pappír og í laglegu bandi, kostar hún aðeins 10 krónur. Lísa í undralandi er barnabók, sem prentuð hefur verið oftar og ef til vill fleiri eintök en af nokkurri annari barnabók í enskumælandi löndum. Fást hjá bóksölum um allt latid. Bókaverzlun Isafoldarpentsmiðju.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.