Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 4
hafið undir eftirlit mannsins á allt annan hátt en nú og gera það að hluta af „lífssviði“ okkar. Hingað til höfum við notfært okkur úthöfin eins og hirðinginn notar steppuna eða hinn frumstæði veiðimaður notar heið- arnar. I framtíðinni eigum við að rækta haf- ið eins og bóndinn ræktar jörð sína og skóg- ræktarmaðurinn hirðir um skóginn sinn. Við eigum ekki aðeins að uppskera sjálfsprottna ávexti hafsins, heldur vinna að hafrækt, „akvakultur" (vatnsrækt), eins og það er kallað, og skerast í leikinn eftir megni til þess að stjórna í eigin augnamiði þeim þró- unarferli, sem skapar bjargarlindirnar. Sérfræðingar vatnsræktarinnar vinna að áætlunum um að hafa fiskitorfur í liafinu, eins og kvikfjárhjarðir eru hafðar á landi, með aðferðum til þess að fjölga þeim og örva matvælaframleiðslu liafsins. Möguleik- arnir á hafrækt eru mestir í flóum, fjörðum og við óshólma, þar sem auðveldur aðgangur er frá landi. Ein af mikilfenglegustu áætl- unum, sem þegar er orðin að veruleika, er kræklingsræktin í Tarantoflóanum, þar sem Italir fá að meðaltali 12,3 smálestir af kræklingsfiski á ári af hverjum hektara. Einnig er unnt að nota grunnsævið, hin tiltölulega grunnu svæði meðfram ströndum meginlandsins. Það þekur til samans flöt á stærð við Asíu. En áður en það getur orðið, verða haffræðingarnir að þekkja þetta líf- fræðilega umhverfi jafnvel og heimsskauts- Eskimóarnir þekkja þann heim íss og snævar, sem þeir búa í. Einn landnemi hefur þegar hafizt handa: Franski haffræðingurinn Jae- ques-Yves Cousteau er farinn að nema land á hafsbotninum. Árið 1963 bjuggu sjö sam- verlcamanna hans í pípulöguðum stálhvsum, sem var sökkt á botn Rauða liafsins. Fimm þeirra bjuggu einn mánuð á 15 metra dýpi, og tveir dvöldust í meira en viku á 24 metra dýpi. Þeir fengu andrúmsloft eftir slöngum frá yfirborðinu, og þeim tókst að vinna sex stundir á dag, og var þar einnig innifalin erfiðisvinna. Cousteau telur að unnt sé að lifa og starfa á þennan hátt alveg út að mörk- um grunnsævisins á allt að 180 metra dýpi. Við amerísku læknisfræðilegu tilraunastofu flotans eru nokkrir læknar að vinna að til- raun, þar sem hópur sjálfboðaliða á að haf- ' ast við á hafsbotni á 60 metra dýpi fyrir utan Bermuda. Pýramidi lífsins. Ilafið rúmar í nægta- horni sínu nær því öll þau hráefni, sem nú- tíma iðnvæðingarþjóðfélag hefur þörf fyrir. Ogrynnis magn allra náttúrlegra frumefna eru til uppleyst eða fljótandi í vatninu eða liggja á hafsbotni. Plöntur hafsins framleiða jafnmikið efni og allar plöntur skógarins, hagans og engisins til samans, og dýraríki hafsins vegur mörgum sinnum upp á móti dýrum þurrlendisins. Undirstaða lífsins í úthöfunum er hin þunna súpa af svifi, hinum örsmáu dýrum og plöntum, sem berast áfram í hinu efra og sólbjarta sviði liafsins. Þau eru grund- völlur lifandi pýramída, því að þau ganga inn í hringrás sem fæða handa smáfiskum, sem síðan eru étnir af stærri fiskum. Það ætti að vera unnt að örva vöxt svifs- ins á nokkrum hafsvæðum — að bera á það, ef svo má segja — með því að „hræra í“ út- hafinu, svo að hið næringarríka botsnvatn komi upp á yfirborðið. Til dæmis hlýtur að vera unnt að notfæra sér smámismun á hita- stigi og saltmengun vatnslaganna til þess að koma af stað hringrás með lóðréttum pípum. Ilugmyndin að þessari áætlun er komin frá hinni miklu haflíffræðistöð í Woods Hole í Massaehusetts, en nefnd, sem ameríska nátt- úruvísindafélagið hefur skipað, hefur stungið upp á, að komið sé fvrir sterkum hitagjafa — til dæmis kjarnaklúf — á hafsbotninum, svo að botnsvatnið hitni og stígi upp. Fvrst um sinn getur tæplega borgað sig að hrinda joessum hugmyndum í framkvæmd, en tími þeirra getur komið. StemefnafjársjóíHr hafsins. Gnægð stein- efna í vatni hafsins hefur blásið mönnum í brjóst meira eða minna draumórakenndum tillögum um efnafræðilegan námurekstur í hafinu. Saltvinnsla með uppgufun hefur ver- ið þekkt og notuð áraþúsundum saman, og • nú er einnig unnt að vinna pottösku úr sjó. Ameríska fyrirtækið Ethvl Corporation hef- ur unnið bróm úr liafinu síðan 1924, og árið 1941 tók Dow Chemical Company að fram- leiða magnesíummálm úr þessari sömu ótæm- andi uppsprettu. Ef til vill mun einhvern tíma borga sig að nýta rúbidíum, cæsium, bór, strontium og fhior hafsins. Brátt eru hundrað ár síðan haffræðingarn- ir uppgötvuðu, að málmjarðlög eru á hafs- botni, sem jafnast á við þau, sem eru á þurru HEIMILISBLAÐTP 92

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.