Heimilisblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 38
Kalli og Palli eru í gönguferð með nýju, fallegu
hattana sína. Hitinn yfirbugar þá svo þeir leggjast
niður og lirjóta brátt svo að jörðin skelfur. TJppi í
trénu sitja tveir páfagaukar masandi. Þeir reiðast
þessum óttalega hávaða og fljúga á brott móðgaðir.
En á fluginu missa þeir sitt hvort eggið ofan í nýju
fínu hattana. Nú vakna Kalli og Palli og grípa ttf
liattanna og lyfta þeim upp á höfuð sér, en fá 1>U'
páfagaukseggin beint í andlitið, þar sem þau kless-
ast framan i þessum óheppnu skógargestum.
Kalli og Palli eru glorliungraðir og kaupa kökur
og nýtt brauð fyrir alla vasapeningana sína og halda
síðan lieim með góðgætið. En þeir þreytast á að
halda á því, svo þeir taka sér livíld. „Hvernig væri
að bragða á því?“ segir Kalli, og áður en þeir vita
af eru þeir búnir með allt góðgætið, með aðst°
skjaldbökunnar og svangrar andarinnar. Nú þurft11
þeir elcki að bera neitt heim og með magafylli
og tóma vasana héldu þeir áfram lieimleiðis — og i,U
mundi verða gott að fá sér blund.