Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 32

Heimilisblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 32
kærum okkur ekkert um að láta taka myndir af okkur með athugasemdum um klæknað oltkar í öllum dagblöðunum, eins og við hefð- um verið í samkvæmi. Svo segir hr. Chester- ton að þetta taki ekki nema örfáar mínútur. Það er eins og fara til tannlæknis og láta kippa úr sér tönn.“ Fran gretti sig og hló þvinguðum hlátri. Susan lét gott heita. Hún vissi, að Fran vildi fara ein. Fran ók til réttarins í stórum híl Susan, og hr. Chesterton tók á móti henni og fylgdi henni inn í salinn þar sem hún átti að bíða þar til mál hennar yrði tekið fyrir. A meðan þau biðu notaði hann tækifærið til að segja við hana hughreystandi og upp- örvandi orð. „Nú skuluð þér hara slaka á spennunni. Allt fer eins og það á að fara. Það er ástæðu- laust að vera kvíðin. Gætið þess bara að svara stutt og greinilega. Það hefur góð áhrif á dómarann ...“ Æ, bara að hann vildi hætta að þylja yfir henni slíkt og þvílíkt, hugsaði Fran og tók nú fyrst að verða óstyrk. Loksins kom að því, að Kelway-málið væri tekið fyrir. Þegar það væri afstaðið mundi Fran óljóst eftir því sem gerzt hafði. — Dómarinn með ströngum embættismannssvip, lögfræðingarn- ir með öll skjölin fyrir framan sig, blaða- mennirnir, sem skrifuðu hjá sér hitt og þetta í ákefð, vitnin, sem sátu í röð meðfram veggn- um, og svo andlit áhorfendanna uppi á svöl- unum — þetta mundi hún. Þegar Fran var kölluð fram, settist hún í vitnasætið og svaraði spurningum hr. Long- fields lágt en greinilega. Bréf Peters var lagt fram ásamt hótelreilmingi, einnig gesta- bók hótelsins ... Það fór um Fran. Henni fannst þetta allt saman viðurstyggilegt. Hvað átti allt þetta sjónarspil að þýða? Hvers vegna var ekki hægt að skilja, án þess að lítið væri gert úr öðrum aðilanum ? Ekki óskaði hún þess að eyðileggja nafn og æru Peters. Síðan var hótelstúlka frá hóteli í Bourne- mouth kölluð í vitnastúkuna, og hr. Long- field spurði hana um leið og hann henti á Fran: „Var það þessi kona, sem hr. Kelway kom með og kynnti í gestabókinni á hótelinu seni eiginkonu sína?“ Stúlkan leit á Fran. „Nei,“ svaraði hún. Allt í einu hafði Fran það á tilfinningunni, að meðal áheyrenda væri einhver sem starði á hana. Hún stóðst eklti freistinguna að líta við til þess að sjá hver það væri. Hvers vegna ætti hún að láta það eftir viðkomanda að láta hann sjá, að hún fann fyrir glápi hans? En að lokum lét hún eftir lönguninni. Hún leit snögglega upp. Og henni brá svo, að hún hrökk við. Hún stirðnaði í sætinu og fann að hún náfölnaði. Peter ...! Það var ekki um að villast — þetta var hann! Hann sat þarna á aftasta bekk, laut áfram og starði á hana. Sólar- geisli féll inn um gluggann og á ljóst hár hans. Brot úr andartaki mættust augu þeirra þvert yfir raðir áheyrendanna. Hún fann fyrir áköfum hjartslætti, en síðan neyddi hún sig til að líta undan, og þá var hún orðin eldrauð í framan og miður sín. Iívers vegna hafði liann komð ? Til þess að sjá hana koma fram í vitnastúkunni eins og nokkurs konar leikkonu, sem liann langaði til að sjá í nýju hlutverki? Nei, hún hafði á tilfinningunni, að erindi hans stafaði af allt öðru en forvitninni einni saman. Henni fannst nánast sem augnatillit hans hefði flutt sér vissan boðskap. En hvers konar boðskap- Það vissi hún ekki. Hún þorði alls ekki að hugsa þá liugsun til enda. Rósemi liennar var nú horfin veg allrar veraldar. Hún var svo miður sín, að hiin heyrði alls ekki, þeg- ar hr. Longfield fór fram á að skilnaðarkröf- unni væri framfylgt. Hún heyrði ekki, þegar dómarinn kvað upp skilnaðarúrskurðinn' Hún fann ekki fyrir öðru í réttarsalnum en bláum augum Peters, sem störðu á hana. Skömmu síðar kom hr. Cesterton til hennar og snerti við handlegg hennar: „Þá er þessU lokið, frú Kelway. Þetta gekk fljótt og vel fyrir sig.“ Fran varð að taka á því sem hún átti, til ]>ess að geta staðið á fætur. Þegar hún gekk út úr salnum ásamt hr. Chesterton stóðst hún þá freistingu að líta í átt til Peters. Að hvaða gagni kæmi það? Þau bönd sem áður höfðu hnýtt þau, voru nú slitin fyrir fullt og allt. Það var ekki þess vert að ýfa sárið og horfa á hann aftur, til þess eins og kvelja sig með þeirri tilhugsun, að hann hefði vilj' 120 HEIMILISBLAÐlí’

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.