Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 13

Heimilisblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 13
Sem hæst heyrði ég stigið þungum skrefum, °g áður en ég gæti gripið til púðurkvasans uö gert mig fallega í framan, ruddist hávax- mn rumur fram úr trjáþyknninu og óð að mér. Ég leit á hann og sagði: „Gott lcvöld — það er bara ég!“ „Hver var að skjóta?11 spurði hann án Þess að brosa eða biðjast afsökunar á því að koma þannig að óvörum. „Það var hávaxinn maður með ör yfir öðru auganu,“ flýtti ég mér að svara. „Hann fór þessa leið.“ Ég benti upp yfir dalbrúnina, en um leið sá hann byssuna í hendi mér, og þá var grínið búið. „Ofétið yðar!“ Hann greip um báðar axlir nnnar og hristi mig svo duglega að tennurn- ar í mér glömruðu. „Ótugtar njósnarinn!“ Hann var síður en svo skemmtilegur, þessi náungi. „Afsakið,“ sagði ég þegar ég loksins mátti ^n^la. „Ég man ekki eftir því, að við höfum kynnt okkur ...“ Én hann virtist ekki hafa áhyggjur af því. „Hvers vegna heldurðu, að þessi bíll standi hér?“ spurði hann. „Hvernig ætti ég að vita það?“ spurði ég ug virti bílinn fyrir mér. „Yarla er það vegna bess að hann liggi á eggjum.“ Og allan tímann liugsaði ég sem svo: Þetta gengur ekki. Og þetta getur ekki verið raun- Veruleiki, mig hlýtur að dreyma. Þetta er lómynd, sem ég hef séð endur fyrir löngu °g er tekið að dreyma ... „Haltu þér saman!“ sagði hann og svo sPurði hann: „Hvers vegna skauztu hjólbarð- aila sundur ?‘ ‘ „Eg veit það ekki,“ gegndi ég, „mér datt Pað bara svona í hug.“ Éölleitur og magur náungi kom nú á vett- ^ang 0g ag baki hans annar, liarla dauflegur a ai'' sjá. Allir þrír mændu á mig steinrunn- u,m augnm. Ég tók allt í einu eftir því, að Sa grannvaxni var með engin augnhár, og Sa heimskvdegi var með fæðingarhlett á gagn- ailganu. Ég sá líka, að hann var með belti ? Ér um sig, og viðbjóðsleg byssa hékk í belt- lllu- Sá þeirra sem fyrstur hafði komið á vett- ''ang, greip nú um handlegginn á mér og Slleri upp á, þannig að skammbyssan féll úr SVeip minni. „Hvað eigum við að gera við hana?“ spurði sá grannvaxni. „Bigum við að láta hana fá eina í hausinn og lofa henni að liggja? Við verðum að sjá um, að hún kjafti ekki frá.“ Ég beið dómsins með öndina í hálsinum. Nú væri þó mál til komið, að hetjan í kvik- myndinni birtist, hugsaði ég með mér. Hann ætti að koma þeysandi í rykskýi, svo að allir strákar á fyrsta bekk klöppuðu og píptu í fingur sér. I sömu andrá heyrði ég kalda og rólega rödd. Lewis var kominn. Hann sat á hest- baki skammt frá okkur, harður en rólegur á svip, en fölur sem nár. Svart skammbyssu- hlaupið benti þangað sem við stóðum. Hann hafði orðið órólegur af því að bíða mín svona lengi við vaðið og þess í stað riðið til móts ATið mig. „Nú gefur á að líta!“ sagði hann og var skemmt. „Upp með hendurnar, herrar mínir! Anna, viltu safna skotvopnunum þeirra í hattinn þinn. Ég þarf varla að minna ykkur á það, að sá fyrsti ykkar sem hreyfir sig fær kúlu í hausinn!“ Mig langaði mest til að láta líða yfir mig. Mér fannst svo freistandi að fá sefasýkis- kast, að ég gat varla staðizt það. En ég hlýddi eins og til var ætlazt og afvopnaði mennina, en Lewis sat kyrr á hestbaki eins og ógnandi varðhundur. „Agætt, Anna,“ sagði hann svo. „Taktu reipið hérna undan hnakktöskunni minni og bintu þá, hendurnar fyrir aftan bak. Hér er hnífur til að kubba reipið með. — Herr- ar mínir, svo er að sjá sem bílinn atama sé ekki í ökufæru ástandi sem stendur. Ég er hræddur um, að þið neyðist til að fá ykk- ur gönguferð. En það eru ekki nema sex litlir kílómetrar til Bar Four. Þar getum við svo beðið eftir sýslumanninum. Anna, viltu taka við bvssunni ?“ Hefur nokkur ykkar reynt að komast á hestbak með fjórar hlaðnar skammbyssur í höndunum? Það þarf sérstaka hæfileika til þess. Það tók langan tíma að komast til Bar Four. Hestarnir voru óþölinmóðir þar sem þeir röltu á eftir þremenningunum á undan okkur. Aðeins einu sinni var þögnin rofin. Það var þegar hestarnir komu svo nálægt hvor öðrum, að Lewis gat lagt handlegginn AEIMILISBLAÐIÐ 101

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.