Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1969, Side 21

Heimilisblaðið - 01.05.1969, Side 21
„En þú átt þó ekki við, að Nin viti og vilji þetta?“ „Ef ekki, þá er hann allavega góður leik- ari,“ svaraði Andrew þurrlega. „Þú verð- ur sjálf að viðurkenna það.“ Þegar hún svaraði ekki, hélt hann áfram þýðnm rómi: „Jill, þegar ég kom áðan og kyssti þig og ]m hélzt það væri Nin, þá sagðirðu: Ó, Nin, — og þú varst undrandi og glöð; óumræði- lega glöð. Ég er viss um, að það er langt um liðið síðan hann hefur kysst þig þannig. Samt sem áður elskarðu hann.“ Jill var of sárhrygg til að geta borið á móti þessu. Hún kinkaði aðeins kolli. „Sú var tíð- in, að ég hélt í raun og veru að Nin kærði sig um mig,“ svaraði hún lágt. „Ég var víst mikill kjáni. En ég hef alltaf haldið, að ef við giftumst, þá myndi honum koma til með að þvkja vænt um mig. Ég veit, að hann. þráði það, og ég vonaði, að þannig myndi fara. Ég greip tækifærið, því ég hélt það væri þess virði.“ „Það er það líka,“ svaraði Andrew sann- fffirandi, „ef þú getur komið því svo í kring, aS allt það sem Cathrine hefur á móti þér, reynist á röngu bvggt. En Jill, þetta verð- rirðu að gera áður en þið Nin giftizt, annars er áhættan of mikil. Þá ertu bundin, og þá Verðurðu óhamingjusöm, ef hlutirnir þróast ekki á þann veg sem þú óskar þér. Og allra ohamingjusamastur verður þó Nin, því að hann verður allan tímann skiptur í tvennt tilfinningalega — milli þín og Cathrine — °g hún mun sjá svo um, að hann haldi áfram að vera það. Þú skalt ekki gera of lítið úr kenni. Ef hún getur ekki fengið hann sjálf, n hún sjá svo um, að pú fáir hann ekki keldur; mundu það.“ „Andrew.“ Hún leit einbeitt í augu hon- 11rn- „Heldurðu, að það sé nokkur von fyrir mig f < „Já, það held ég reyndar.“ Iíann sleppti kendi hennar og stóð á fætur. „Það hefur komizt upp í vana hjá Nin að hugsa um Oathie, en ég held að hann hafi í raun og Veru aldrei elskað hana ...“ Orðalag Joee- tVu, hugsaði Jill vongóð. „Þú veizt, að Nin er ekki eins og flestir aðrir; hann hefur næst- Ulu óeðlilega mikið vald yfir sjálfum sér, eins °S ég hef áður sagt, og má ekki vamm sitt vjfa. Hann lieldur sig hafa verið hrifinn af ^athie síðan við vorum börn, og liann hefur ^EIHILISBLAÐIÐ aldrei litið á annan kvenmann, það bezt ég veit. IJann hefur sett Cathie á stall og til- beðið hana úr fjarska. Hann sér ekkert at- hugavert við það, og að vissu leyti er það heldur ekki. Cathie geðjast vel að því valdi, sem hún hefur yfir honum. En í heiðarleika sagt, Jill, þá þarfnast Nin einhvers áfalls liggur mér við að segja, sem gæti vakið hann af dvalanum — hrifið hann úr þessu óminni, ef svo má að orði komast. Dáleiðslunni varð- andi Cathie! Reyndu að vekja hann af þess- um dvala, og þá getum við kannski öll búið hamingjusöm saman.“ „Já, en ég veit bara ekki ...“ Jill hrukkaði brýnnar. „Ekki það?“ Hann stundi við. „Nin hef- ur átt óvenjulega ævi. Hann og Cathrine trú- lofuðust meðan hún var enn í skóla og hann var að ljúka við Dartmuoth-vistina. Eftir það var hann í þjónustu á Norður-íshafinu. Hann hefur aldrei verið mikið hér heima, en hann hefur alltaf átt sér eina kvenhugsjón: Cathie, sem hann yildi að biði sín. Sálfræð- ingur gæti grundvallað sitthvað á öðru eins og þessu, þótt ég geti það ekki. En ...“ Hann brosti við henni, og það vottaði fyrir fyrri glettni í brosi hans: „Það er dansleik- ur í kvöld, eins og þú veizt — það ætti að gefa þér tækifærið. Fallegur kjóll, Jill í fínasta skrúði, dálítið rómantísk stemning, jafnvel sést til tungls — ef ekki fer aftur að rigna. Og ég skal sjá um, að Cathie kom- ist. ekki um of í spilið. Iívað segirðu við því ?“ „Hvað get ég sagt ...“ Hún reyndi að brosa. „Iívað get ég sagt annað en að ég skal revna.“ „Skynsöm stúlka!“ sagði Andrew. „Þetta grunaði mig líka alltaf.“ „En heyrðu, Andrew. Sem jafnan fyrr gerði hann hana undrandi. „Hvað býst ]>ú við að græða á þessu? Ég á við ...“ „Ég veit hvað þú ert að fara, Jill.“ Hann lagði handlegginn yfir um hana og beindi förinni í átt til dyranna. „Ég verð að brýna sverðið. En ég hef góðan tilgang, jafnvel þótt þú trúir því ekki. Ég er að revna að vinna eiginkonu mína á mitt band aftur. Þú mátt hlæja að því eins og þú vilt, en ég er líka yfir mig hrifinn af Cathie, og ég hef orðið fyrir miklu meiri og sífelldari freistingum gagnvart henni en Nin hefur verið um 109

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.