Iðunn - 01.01.1885, Qupperneq 22
16
Grllll.
alt saman, gull ok silfr ok mold« .. »Síðan ganga
þeir á hanginn, ok tóku fje sem mest máttu þeir,
ok báru í klæði sín; fylgdi þar mold mikil, sem
ván var«. — þórir gat komið við brögðum að hafa
sig undau manngjöldum fyrir Karla og öðrum útlát-
um fyrir misverknað sinn, stökk síðan iir landi og á
fund Knúts konungs á Englandi. »Kom þá þat upp
at þórir hafði þar of lausafjár, hafði þar þat fé alt, er
þeir höfðu tekit á Bjarmalandi hvárirtveggju ok Karli«.
Menn þykjast og vita, að gullnám hafi verið stundað
í Rússlandi frá því það byggðist; en ekki vita menn
til að kveðið hafi að því til mikilla muna fyrri en á öld-
inni sem leið. þá fannst.árið 1743,allmikið gull nálægt
Jekatherinenburg, og 1821 fannst gullnáman við
Beresow. I upphafi þessarar aldar nam það hjer
um bil l^- milj. króna virði, sem fjekkst af gulli á
Rússlandi alls á ári. Arið 1814 fannst gullkennd
æð í Uralfjöllum, er náði um 17 breiddarstig, og á
tímabilinu frá 1814 til 1830 fengust þar 295,000 pd. af
skíru gulli. Síðan fannst árið 1830 gullsáld f jörðu
í Síberíu lijer og hvar á viðlíka stóru svæði og Erakk-
land er allt. þar fjekkst á einu ári, 1843, sem
svaraði 45 milj. kr. í skíru gulli. Eám árum síðar
fannst gullsandur í jörðu í fjöllunum Altái [Gull-
fjöllum] f Síberíu ; þar fengust 9,000 pd. af skfru
gulli á ári. — þetta allt var undanfari meiri tíðinda
skömmu síðar.
Meðan þetta gerðist á Rússlandi, höfðu Banda-
menn f Norður-Ameríku tekið sjor fyrir hendur að
gera sjer leit eptir gulli í jörðu hingað og þangað
um sína miklu landareign. það lánaðist áður langt
um leið, þótt litlu næmi framan af. Fannst þar