Iðunn - 01.01.1885, Síða 25
Ghill.
19
aianna, er ferðast skyldi vestur og rannsaka, livað
hæft væri í þessum ósköpum. þegar nefndin hafði
lokið erindi sínu, ljet stjórnin birta skýrslu hennar,
og fannst þá flestum mikið um, þeim er áður höfðu
lítiltrúaðir verið.
|>ar báru það greindir og gætnir kaupsýslumenn og
í fullri alvöru, að næsta ár mundi mega fá í Kalí-
forníu með hægu móti 220milj. kr. virði í gulli. Fram-
burð slíkra manna tjáði ekki að rengja, og áttu þó
margir bágt með að trúa því, að hjer væri ekki eitt-
hvað orðum aukið, þar til er sjón varð sögu ríkari
áður langt um liði. Slik ógrynni auðæfa höfðu aldrei
fyr verið fram leidd úr skauti jarðarinnar á jafn-
skömmum tíma. Hin mestu gulllönd í heimi, er
verið höfðu áður, Rússland og Suður-Ameríka, kom-
ust ekki bæði saman í hálfkvisti við þennan jötun.
En óðara en almenningur var búinn að átta sig
til fulls á þessum ósköpum, bárust þau tíðindi af
öðru horni veraldar, frá Astralíu, að þar væri fund-
in önnur gulluppspretta, viðlíka stórkostleg og þó
öllu meiri. Hafði þar fundint árið 1851 sunnan og
austan áNýja-Hollandi, í Nýja-Suðurwales, gullland,
viðlíka stórt og það í Kalíforníu, og innan skamms
fannst enn fremur gull í jörðu á ýmsum stöðum í
annari nýlendu þar á sama meginlandi, Yiktoríu.
í>ar með varð þetta afskekkta eyland, er hinn monnt-
aði heimur hafði litið smáum augum til þess tíma, allt
í einu orðið annað hið fyrirhoitna land nítjándu aldar.
I'ar hafði um langan tíma verið byggð útlagra stór-
'jrotamanna hjeðan úr álfu, nokkurs lconar Ódáða-
1*