Iðunn - 01.01.1885, Qupperneq 26
20
Gull.
hraun, er ýmislegt afhrak veraldar safnaðist f, það
er landhreinsun þótti að annarstaðar.
þó er þess að geta, að ekki var það öllum fullkomin
nýlunda, að gullið fannst þar í Ástralíu. Svo er sagt,
að rúmum tuttugu árum áður, eða 1830, hafi saka-
maður einn, er þar var, komið einhverju sinni með gull-
snúð allmikinn, er hann ljezthafa fundið einhverstað-
ar fjarri mannabyggð, og sýndi umsjónarmanni þeim,
er yfir hann var skipaður. Var lítill trúnaður
lagður á sögu þessa í fyrstu; en er hann ól jafnan
á því máli og stóð fastara á því en fótunum, að hann
hefði satt að mæla, var farið og rannsakað þar sem
maðurinn vísaði til, að hann hefði fundið gullið.
Bn þar fannst þá enginn hlutur, og lauk svo, að
maðurinn var liýddur fyrir þjófnað, með því að nú
þótti enginn efi geta á því leikið, að gullsnúðurinn
væri bræddur úr stolnum gullpeningum. Maður
þessi var hengdur síðar meir, fyrir stórvægilegt ó-
hlýðnisbrot, og þar með var sá leyndardómur aptur
fólginn. 1 annan stað kom einhverju sinni upp sá
kvittur, að einhverjir menn, er enginn vissi deili á,
kæmi við og til bæjar í Sidney, höfuðborgarinnar í
Nýja-Suðurwales, og seldu þar Gyðingi einum gull
við gjafverði; en Gyðingurinn gerðist stórauðugur.
jþað bar og til einhverju sinni, að ölvaðir verkamenn
einhverjir þar í borginni gerðu skraf um nýjar gull-
námur einhverstaðar eigi all-langt þaðan ; en er þeir
voru spurðir um það algáðir, vörðust þeir allra tíð-
inda og ljetu sem hjal sitt mundi hafa verið höfuð-
órar oinir. Árið 1840 hafði Strelitzsky greifi með
sjer hingað í álfu gullsand frá Astralíu; hafði farið
þess á leit við nýlendustjórnina þar syðra, að húo