Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1916, Page 43
IÐUNN]
339
Saga talsímans.
hljóðöldum, þeim sem myndast í loftinu fyrir framan
plötuna, þegar talað er. Áhöldin eru tengd saman
með málmþræði, frá vírvindunni í öðru álialdinu
yfir í vírvinduna í hinu, sem er nákvæmlega eins
b 1, og liér verða rafmagnssveiílurnar fyrir gagnstæð-
um breytingum og verða svo aftur að hljóðöldum
fyrir framan járnplötuna c 1. Hinir breytilegu
straumar í þræðinum gera það að verkum, að segul-
magn segulstálsins ýmist vex eða minkar og eftir þvi
dregst járnplatan nær eða fjær, og við það sveiílast
hún fram eða aftur og myndast þá í loftinu fyrir
framan hana hljóðöldur, sem eru alveg eins og þær,
sem mynduðust við áhald talandans, þegar hann
lalaði. J merkir jarðleiðsluna; þá var ekki notuð
nema einföld leiðsla og jörðin svo notuð sem endur-
leiðsla. Talsíminn var ekki margbrotnari en þetta,
og er því engin furða, þó mönnum yrði létt fyrir að
húa til eftirlikingar, þegar menn höfðu einu sinni
séð hann. Öll uppfundning Bell’s var í rauninni
ekki innifalin í öðru en þeim parti talsímans, sem
vér nú hlustum með — heyrnartólinu, og notum vér
það óbreytt enn þann dag í dag; annað liggur ekki
eflir Bell á þessu sviði. Betta var þá, og er enn, það
viðkvæmasta áhald, sem notað er til almenningsnota
í nokkru landi. Svo viðkvæmt er það, að fótatak
llugu getur heyrst í lieyrnartólinu.
Mikið og vandasamt verk átlu þeir menn fyrir
höndum, sem tóku við af Bell til að endurbæta tal-
simann. Með þessari talsímaaðferð Bell’s varð liljóðið
Mjög veikt, þegar um miklar fjarlægðir var að ræða,
eins og von var, þegar mál mannsins varð sjálft að
veita alt aflið til að framleiða rafmagnsstraumana.
J'hi 1877 hugkvæmdist ungum Þjóðverja í Ameriku,
i'unile Berliner, ráð til að hæta úr þessu með því að
nota straumvaka (elemenl) til að framleiða slerkari
i'afmagnsstrauma, og fann hann upp inn svokallaða