Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1916, Qupperneq 60
356
Jón Ólafsson:
[ IÐUNN
dóminum og gáfu Ijósar skj'rslur; enn fremur kom
þaö merkilega atriði fram, að Dr. Minor liafði, áður
en þetta kom fyrir, snúið sér til lögreglustjórnar-
innar og skýrl lienni frá högum sínum. Bæði þetta
og svo það, að Dr. Minor og kyndarinn voru báðir
ókunnugir hvor öðrum, benti all greinilega í sömu
áttina. Niðurstaðan varð þá líka sú, að Dr. Minor
var talinn geðveikur og kviðdómurinn gaf úrskurð-
inn: Ekki sekur. Dómarinn dæmdi hann því næst
til ævilangs varðhalds í geðveikraliæli.
Síðan var hann sendur til geðveikrahælisins Broad-
rnoor til ævilangrar gæzlu.
Sir James Murray lilýddi á söguna með meslu
athygli og komst mjög við og bað því næst um að
fylgja sér sem fyrst til síns lærða vinar, fangans.
Málfræðingarnir báðir, sem svo lengi höfðu skrifast
á, hittust nú að lokum á þessum einkennilega og
óvanalega fundarstað og var það inn lijartanlegasli
fagnafundur. Það væri víst örðugl að segja, hvor
þessara tveggja manna hefir haft meiri árangur af
satnfundinum. Hitt er víst, að þeir skildu beztu vinir
og hétu því að styðja hvor annan.
Sir James Murray átti ekki því láni að fagna að
lifa það, að sjá siðustu örk hinnar frægu orðabókar
sinnar fullprentaða; hann dó í fyrra, en síðasta hefti
orðabókarinnar kom út um síðustu áramót.
Ef lesendur orðabókarinnar vilja fletta upp í for-
málanum fyrir henni, þá sjá þeir, að Dr. Minor heíir
sent fullsaminn texta að milli 5000 og 8000 orða.
Heimili Dr. Minor’s er þar að eins nefnt Crowthorne
í Berkshire. Af síðari ævi hans er það að segja, að
liann var í hælinu 25 ár og var liann þá lluttur á
annað geðveikrahæli og fékk flutt með sér bókasafn
sitt. Öllum, scm kyntust honum, var kært til hans
og báru mestu virðingu fyrir honum, eigi að eins