Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1931, Blaðsíða 64
258
Gef oss Barrabas lausan.
ÍÐUNNI
Og svo einn dag, þegar Kuusari, samkvæmt vitna-
framburöi, er tiltölulega allsgáður — og í Finnlandi,
þar sem eru bannlög, fer eins og gefur að skilja
ofurvel á þvi, að æðstu embættismenn landsins séu
öðru hvoru tiltölulega allsgáðir — einn slíkan dag gefa
þeir Walienius og Kuusari skipun um að nema skuli
Stáhlberg á brott. „Skipunin var gefin í igamni," segir
herforinginn. Hann veit ekkert urn þetta, fyr en hann
fréttir, að henni hafi verið hlýtt — í alvöru. Man
ekki neitt.
Svo þetta var þá að eins spaug. Nú heyrist, að
Wallenius hafi verið dæmdur í þriggja .ára fangelsi,
og það er spauglaust, ef satt er. En ætli það sé of djarft
að voma — að það sé líka spaug.*)
III.
það er ekki öllum gefið að sleppa eins vel eins og
Stáhlberg. Liebknecht, sem á stríðsárunum var foringi
þýzku kommúnistanna, var skotinn í flutningum frá
einu fangelsi til annars. Lögregluforingjarnir, sem áttu
að gæta hans, kuðluðu honum út úr vagninum og
skutu hann „á flótta-tilraun“. Og Rósa Luxemburg,
sem var draghölt og gat varla skriðið, var einnig
skotin við sama tækifæri „á flótta-tilraun“!
Morðingjarnir voru settir í gæzluvarðhald. En einn
góðan veðurdag, þegar fangavörðurinn skyldi svipast
eftir því, hvort þeir væru þar, — þá voru þeir þar
ekki. Peir höfðu labbað út.
Þegar Mathias Erzberger, sem á sínum tíma var
foringi katólska miðflokksins, hafði undirritað vopna-
hlés-samninginn, var hann skotinn til bana af tveim
*) Þcssi von hcfir ræzt furöu vel. Wallcnius hefir vcriö sýknaður, eft>r
aö möli hans hafði veriö skotiö til æöri dómstóls. t>,i/ð.