Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1931, Blaðsíða 85
IÐUNN
Þórisdalur.
279
síöan tók enn við jökull, sem hallar fram að bláu vatni
í botni dalsins. Á 2. mynd sést austur eftir dalnum,
og vatnið í miðju, og fljóta jiar jakar, sem brotnað
hafa úr jöklinum.
Eftir að vér höfðum hvílt oss um stund, lögÖum vér
af stað og fórum ofan brattar skriður nið-ur á jökulinn,
og síðan fram á undirlendi nokkurt sunnan miegin
vatnsins, og tjölduðum vér jiar og dvöldum lengi dags.
Vildum vér nú kynnast öllu sem bezt og gengum upp
á fell eitt sunnan m.egin vatnsins og sáum þá, að dal-
urinn beygist, nálægt miðju, til suðurs inn í jökulinn,
og falla jrar skriðjöklar víða að frami í vötn, hvít að
lit, sem hylja næstum allan dalbotninn. Að sunnanverðu
er dalurinn luktur, en j)ó má sjá í gegn'um gil eitt eða
lægð fjallið Skjaldbreið, og er pví rétt lýsing Grettlu
á afstöðu dalsins.
Gróður er enginn. Grjótið er alveg bert, og sést vart
skóf á steini. Þessir 16 menn sáu einar þrjár jurtir:
geldingahnapp, músareyra og góubeitiil, að eins eitt af
hverri tegund, og j)ví síður var par nokkurt kvikindi.
Steintegundir eru margar í dalnum og li.tbrigði mikil,
pví ekkert hylur. Grjótið er afar veðurbarið, og líkjast
margir stórir steinar .skipum á hvolfi, og hafa hríðar og
sandrok sorfið á pá j)etta lag.
Ekkert af vötnunum hefir neitt afrensli, svo að séð
verði, enda er bergið gljúpt, og getur ])ví vatn alt sigið
niður og komið fram á öðrum stöðum.
Heim úr dalnum fórum vér aðra leið en vér komuni.
Sú leið er norðar, norðan við svo nefndan Prestahnúk,
og er jökullinn lægstur |)ar. Nokkuð vestur af Þörisdal
er djúp kvos, skiMm frá dalnum af fellum og jökli, og
hafa sumir talið petta hluta af dafnum. Um dalvarpi
petta fellur á, sem rennur inn í hvelfingu mikla undir